fbpx

ÁRAMÓTAHEFÐ

LÍFIÐ

Á síðasta degi ársins vöknuðum við Gunni á hvítu Snæfellsnesi með útsýni sem ég féll fyrir. Við höfum lagt það í vana okkar að fá að stinga af út á land þegar við komum í janúarheimsókn á klakann. Það er svo mikilvægt að rækta sambandið og fá að vera kærustupar án barnanna af og til.


Að þessu sinni völdum við Hótel Búðir, eða þau völdu eiginlega okkur þegar hótelstjórinn sendi inn fyrirspurn um fallegu Sjöstrand kaffivélarnar sem við erum svo stolt af því að vera með umboð fyrir á Íslandi. Hótel Búðir er eitt fallegasta sveitahótel sem ég hef heimsótt. Ó hvað andrúmsloftið gaf okkur mikið innandyra og íslenska orkan úr öllum áttum þegar við gengum út fyrir hóteldyrnar með hraunið, fjöllin og sjóinn í kringum okkur. Við vorum svo stolt af því að vera Íslendingarnir úr hópi erlenda gesta sem voru ekki að spara fögru orðin um umhverfið og Ísland yfir höfuð.

Hótelið er í tveggja tíma akstursfjarlægð frá Reykjavík og við mættum beint í late dinner í myrkinu. Ég get fullyrt að þarna fékk ég einn besta mat sem ég hef smakkað og ég veit að ég er að taka stórt til orða en ég var bara svo svakalega glöð með humarinn minn og rauðrófuréttinn. Ég smakkaði líka kjötið hjá Gunna og það bráðnaði í munninum.  Ég elska veitingastaði sem bjóða upp á fáa rétti á matseðli, þá veit maður að hráefnin eru fersk og þeir leggja áherslu á það sem þeir eru góðir í. Hér var aðeins einn kjötréttur, einn fiskréttur og einn grænmætisréttur á aðalréttaseðlinum (svo það komi fram, þá borguðum við að sjálfsögðu fyrir matinn).

Dásamlegur endir á annasömu ári. Pössum upp á að búa til stundir og stefnumót með fólkinu sem við elskum. Gleðilegt nýtt ár elsku lesendur.

//

I love our new tradition – parents date in the countryside between Christmas and New Year. Our getaway this year was the lovely Hotel Budir on Snæfellsnes. A charming hotel in where you can enjoy so much of the Icelandic landscape.

The most important point is that the food was soooo good. Simple menu with few courses that they have mastered. Couldn’t recommend it more!

It was the perfect way to recharge the batteries before the new year.

Happy new year!

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&

Trendnet á Facebook – HÉR

HAPPY 2019

LÍFIÐ

Skál fyrir 2018 þar sem hápunkturinn hjá undiritaðri var brúðkaup okkar Gunna, brúðkaupsferð til Bali, flutningar í nýtt land, börnin mín lærðu dönsku, Gunni blómstrar inná handboltavellinum og ég er bara sátt með tölvuna í fanginu.

Það eru margar góðar minningar sem við tökum með okkur inn í 2019 sem ég held að verði mjög gott ár.

Gleðilegt nýtt og gæfuríkt ár elsku þið !

Tvær myndir (úr fókus) frá gærkvöldinu .. 

Samfestingurinn er vintage.

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&

Trendnet á Facebook – HÉR

ÍSLENSKT ÁRAMÓTADRESS

HEIMSÓKNÍSLENSK HÖNNUNSAMSTARFSHOP
Færslan er unnin í samstarfi við YEOMAN á Skólavörðustíg

Hildur Yeoman tók vel á móti mér í gær þegar ég heimsótti verslunina á Skólavörðustíg. Jii hvað ég skemmti mér vel að máta mína uppáhalds kjóla í versluninni. Hér að neðan fáið þið topp 10 lista með áramótin efst í huga:

Bleiki pallíettu toppurinn er á sérstöku 15% tilboði til áramóta ef þið segið nafnið mitt ;) nýtið það endilega.

DRESS 1

Galaxy Silki síðkjóll
Verð: 64.900isk

DRESS 2

Style Mafia blúndu og flaueliskjóll
Verð: 34.900isk

DRESS 3

Áramóta dress-ið (!) er on point hér. Einnig til dökkblár.

Verð: 45.900isk

DRESS 4

Hér mátaði ég undirkjól sem er dásamlegur einn og sér en svo tók ég myndir þegar ég var komin í Wrap top yfir og þannig fullkomnaði ég áramótalúkkið að mínu mati.

Verð: 25.900isk


DRESS 5

Silki breeze er snið sem margir þekkja frá Hildi. Hægt að dressa upp og niður eftir tilefnum. Þessi er með black pearl mynstri.

Verð: 49.900isk


DRESS 6

Blúndukjóll í sama sniði og pallíettukjóllinn hér að ofan.

Verð: 31.900isk
Lokkarnir frá Eyland eru á 12.900isk


DRESS 7

Þessi er í miklu uppáhaldi hjá undiritaðri, kominn á minn óskalista eftir að ég mátaði hann í gær. Einnig til skósíður.

Silki kjóll með juliet prenti …

Verð: 54.900isk


DRESS 8

Þessar möttu bleiku pallíettur eru dásamlegar.

Verð: 36.900isk
(EN 15% AFSLÁTTUR EF ÞIÐ SEGIST HAFA LESIÐ ÞENNAN PÓST  ;) )


DRESS 9

Ohhhh þesssi ! The sparkle dress.

Verð: 34.900isk



DRESS 10 

Því miður gleymdum við að taka mynd af lúkki númer 10 en kjóllinn kom mér á óvart. Ég er aldrei í grænu en er orðin rosalega skotin í þessum sem hægt er að binda og breyta á marga vegu. Sjá betur: HÉR

Verð: 54.900isk

Takk fyrir mig YEOMAN. Heimsóknina í heild sinni getið þið skoðað í Highlights á Instagram hjá mér: HÉR

Happy shopping kæru lesendur!

Verslun Yeoman á Skólavörðustíg er opin sem hér segir fram að áramótum:
Laugardagur: 11:00 – 18:00
Sunnudagur: 13:00 – 16:00
Gamlársdagur: 10:00 – 15:00

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&

Trendnet á Facebook – HÉR

GLEÐILEG JÓL

LÍFIÐ

Góðan daginn Ísland og gleðileg jól …

Eftir annasaman desembermánuð fögnuðum við Aðfangadegi með stórfjölskyldunni. Jólin eru svo yndislegur tími! Eftir að hafa eytt þeim síðustu ár á heimili okkar í útlöndum þá gleður það okkur og börnin mín svo mikið að fá að eyða þeim með öllum ömmunum og öfunum og ríkidæminu sem við eigum hér á Íslandi í ár. Ég vona að þið séuð líka að njóta lífsins með fólkinu sem ykkur er kært.

Jii hvað var skemmtilegt að sjá svona margar stelpur á Instagram í jólakjólum úr færslunni sem ég birti nokkrum dögum fyrir jól, HÉR, það sýnir mér að kauphugmyndirnar sem ég tek saman á blogginu séu vel metnar af ykkur sem fylgist með, yndis.

Ég klæddist sjálf rauðum jólakjól frá Lindex sem var einn af nokkrum í færslunni en því miður tók ég svo fáar myndir í amstri kvöldsins. Hér sést djúpi rauði liturinn samt nokkuð vel …

Gunni græjaði litla Gucci gjöf – kortaveski með þremur heimatilbúnum kortum í. Eitt innihélt “10 x fótanudd”, annað innihélt “hjól” sem mig hefur virkilega vantað og ætlaði að kaupa mér sjálf og þriðja “nýja strigaskó” sem eru víst á leiðinni heim til DK þegar þetta er skrifað. Ég elska persónulegar gjafir og það að fótanuddkortið (ásamt fótanuddkremi) vinni litla Gucci veskið segir til um hvað jólin snúast um fyrir mér.

Eitt af plönum dagsins er að fara á stjá og afhenda jólagjafirnar frá Trendnet jólasveininum
Fjórir heppnir lesendur fá veglegar gjafir frá samstarfsaðilum okkar. Mikið hlakka ég til!

Haldið áfram að borða mikið og hvílast vel. Hlýjar hátíðarkveðjur frá mér xxxx

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&

Trendnet á Facebook – HÉR

SUNDAYS ..

LÍFIÐ

Góðan daginn frá hvítri Kaupmannahöfn …
Það var besta ákvörðun í heimi að bruna beint í höfuðborgina eftir síðasta leik eiginmannsins sem fram fór í gær. Hér vöknuðum við á Scandic Kødbyen (veljum oft Scandic þegar við erum á hóteli með krakkana – fjölskylduvænt) og ég mæli mikið með þessu hóteli sem er á Vesterbro (ekki #ad), uppáhalds hverfinu mínu í Köben. Það var ekki verra að krakkarnir vöktu okkur með setningunni “ÞAÐ ER SNJÓR” og ég átti klukkutíma vinnumorgun á leðurbekknum og horfði á snjókornin falla og borgina vakna. Góð byrjun á deginum.

Ég dreg úr síðasta Aðventuleiknum mínum á Instagram í kvöld og á morgun verður dregið úr stóra jólasveinaleiknum á Trendnet HÉR – ekki missa af þeirri snilld.

Njótið þessa góða Þorláksmessu sunnudags – bráðum koma blessuð jólin.

 

Alltaf að velja hótel þar sem sloppur er innifalinn ;) … sakna samt strax Tekla sloppsins míns sem ég gat ekki pakkað með mér til Íslands. Og það er ekki Sjöstrand kaffi í þessum kaffibolla haha.

xx,-EG-.

AÐVENTUGJÖF #4

ÍSLENSK HÖNNUNSAMSTARFSMÁFÓLKIÐ
Færslan er unnin í samstarfi við As We Grow

 

Kæru vinir, mikið hefur verið gaman að gleðja með Aðventugjöfum á Instagram síðasta mánuðinn. Fyrstu gjöfina gaf ég með Andreu í Hafnafirði, númer tvö var frá Norr11 þegar ég gaf Tekla slopp og rúmföt frá sama merki þá kom Hildur Yeoman með jólakjólinn og GHD gaf krullujárn og nú er komið að síðustu gjöfinni sem ég gef með barnafatamerkinu As We Grow. 

Jólin eru hátíð barnanna og þess vegna vil ég gleðja smáfólkið okkar með fjórðu og jafnfram síðustu aðventugjöf þessa árs. Búsett erlendis, elska ég að klæða börnin mín í íslenska hönnun og þar verður engin breyting á. Ég hef ekki talað mikið um As We Grow á blogginu áður en merkið hefur farið sigurför um heiminn með dásamlega vönduðum og hlýjum fatnaði sem lifa lengi.
Merkið var stofnað árið 2012 og í dag fást fötin í yfir 70 verslunum í 10 löndum en einnig á heimasíðu aswegrow.isAs We Grow hlaut Hönnunarverðlaun Íslands 2016 og aðalverðlaun Junior Design Awards, bæði 2017 og 2018
og er á óskalista margra.

Börnin mín voru sæt og fín í gær á leiðinni í skólann í síðasta sinn fyrir jólin. Alba er á þeim aldri að nú þýðir ekkert fyrir miga ð velja á hana föt nema með hennar samþykki. Hún valdi sér “sleeveless dress” í bláu denim og bleika slá yfir sig. G. Manuel er í “Lusa” gollu og “grandpa pants” mér finnst passa vel að klæða hvítar skyrtur með kraga innan undir. Slaufan er í einkaeign (gömul frá Gunna) …

Ég gef hátíðarföt frá toppi til táar “Á HANA” & “Á HANN” og hvet ykkur öll til að taka þátt á Instagram hjá mér: HÉR

Meira úrval af As We Grow klæðum getið þið skoðað: HÉR

 

Jólakossar frá okkur


xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&

Trendnet á Facebook – HÉR

HÉR FINNIÐ ÞIÐ JÓLAKJÓLINN

ÍSLENSK HÖNNUNSHOP

… eða jólafötin réttara sagt. Það er auðvitað engin skylda að maður eigi að klæðast kjól á jólunum en úrvalið hefur þó sjaldan verið meira af fallegum síðkjólum og nú. Það lítur einnig út fyrir að við munum nota þá áfram í janúar en þá munum við dressa þá niður með strigaskóm eða jafnvel hettupeysu. Pössum okkur þegar við kaupum okkur jólaföt að horfa á notagildið. Ekki kaupa jólaföt sem þú sérð fyrir þér að nota þetta eina aðfangadagskvöld, það er svo mikil synd. 

Ég fletti vel og vandlega í gegnum úrvalið hjá íslenskum verslunum (sem eru aðgengilegar á netinu) og setti saman lista með mínum uppáhalds jóladressum. Hér fáið þið því kauphugmyndir sem vonandi auðvelda einhverjum valið – notagildið var einnig í hávegum haft í þessu vali mínu.

Alveg óvart varð litavalið rautt – grænt – gult & svart … en það eru svo sannarlega litir jólanna, ekki satt?

Ó þetta íslenska draumasett.
MAGNEA – fæst: HÉR

Ullarkjóll
MAGNEA – fæst: HÉR

Ég er búin að vera með augastað á þessum í nokkrar vikur.
LINDEX – fæst: HÉR

Svipaður í gulu.
ZARA – fæst: HÉR

Geislandi AndreA í Habanera wrap dress.
AndreA Hafnafirði – Fæst: HÉR

Þær flíkur sem ég á frá Malene Birger eru þær sem ég nota lang mest og lengst.
EVA verslun – Fæst: HÉR

Allt sem er rautt rautt …
H&M – Fæst: HÉR

Ég er með þennan á heilanum eftir samstarf mitt með Baum und Pferdgarden (færsla: HÉR)
Fæst: HÉR

Grænn með doppum frá Mads NørgaardHúrra Reykjavík – Fæst: HÉR

Ég fékk þann heiður að gleðja fylgjanda á Instagram með þessum í gærkvöldi. Aðventugjöf númer 3 var vegleg.
Hildur Yeoman – Fæst: HÉR

.. þessi er á mínum óskalista en hann er nýr í smiðju Hildar. Hannaður sem undirkjóll en það má klárlega nota hann sem spari einan og sér.
Fæst: HÉR

Basic er oft best … en með smá twisti.
H&M – Fæst: HÉR

Hér er lögð áhersla á smáatriðin. Áfram Ísland!
Aníta Hirlekar – Fæst: HÉR

Þið eruð nokkuð safe með þetta dress frá toppi til táar.
Vero Moda – Fæst: HÉR

Tailor lúkk í boði Mads Nørgaard með Satin rönd á hliðinni.
Húrra Reykjavík – Fæst: HÉR

Velour er svo hátíðlegt. Þessi er æði!
Selected Femme – Fæst: HÉR

Blómamunstur getur líka átt við á jólunum. Þessi er frá Envii sem er undirmerki Samsoe Samsoe.
Gallerí 17 – Fæst: HÉR

Elska þetta lúkk.
Lindex – Fæst: HÉR

Þið vitið hvernig ég virka … náttföt (sloppur) við hæla og rauðar varir er mitt thing.
Lindex – Fæst: HÉR

Æ svo verður þessi að vera með. Þetta snið fer öllum.
AndreA – Fæst: HÉR

Vonandi finnið þið eitthvað við ykkar hæfi í úrvalinu hér að ofan. Ég hefði getað sett svo miklu miklu meira en læt þetta duga að sinni. Lesendur mínir ættu ekki að fara í jólaköttinn í ár ;)
Engin af verslununum veit af því að ég sé að taka þessar vörur saman og því er þetta einungis goodwill frá mér til ykkar – ekkert fyrirfram ákveðið samstarf hér á ferð <3

Njótið síðustu daganna í jólaundirbúningnum. Happy shopping!

xx-EG-.

COPY/PASTE: SANDALAR

COPY/PASTEFASHIONSHOP

 

 

Bloggum um sandala í desember? Einhverjum gæti þótt það skrítið en ég er þekkt fyrir að deila því með ykkur þegar ég finn hátískuna “coperaða” á lægra verði. Hermés hitti í mark neytendans fyrr árinu þegar þau sendu öllum helstu áhrifavöldum sandalana “Oran” – markaðsetningin virkaði því í kjölfarið “urðu” allar stúlkur að eignast þá. Ég er sjálf sek um að hafa mátað par í Kaupmannahöfn en var fljót að forða mér þegar ég sá verðið sem var um 75.000 krónur. Mér finnst það of mikið fyrir sandala. Sigríðurr bloggaði um sandalana HÉR á Trendnet í sumar.

Á netrölti datt ég inn á sambærilega frá Zöru. Þeir eru ekki alveg nákvæmlega eins en hafa líklega verið innblástur fyrir spænsku skóhönnuðina. Verðið passar buddunni örlítið betur eða um 4.500 íslenskar krónur – þeir eru samt ekta leður. Fást: HÉR

 

Hermés: 75.000 isk
VS
Zara: 4.500 isk

… ég er strax farin að huga að því hvað ég ætla að gera við allan peninginn sem ég er að spara ;)

Happy shopping!

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&

Trendnet á Facebook – HÉR

AÐVENTUGJÖF #3

INSTAGRAMÍSLENSK HÖNNUN
Gjafaleikurinn er unninn í samstarfi með Yeoman Store á Skólavörðustíg

 

Ég gef þriðju aðventugjöfina á Instagram með íslenska fatahönnuðinum og listakonunni Hildi Yeoman, ég geri betur með því að bæta einnig við uppáhalds krullujárninu mínu frá GHD – í fyrsta sinn á ævinni kann ég að setja liði í hárið á mér, alveg sjálf (!) og það er saga til næsta bæjar. Sjáiði hvað þetta krullujárn er mikil snilld (!) Guðrún Sortveit mælir líka með því: HÉR

Toppurinn sem ég klæddist um helgina er ein flík af mörgum dásamlegum úr hátíðarlínu Hildar og á Instagram hvet ég fylgjendur til að velja á milli tveggja flíka: Hvort viltu draumaflík margra, töfrandi rúllukragakjól? Eða eins wrap top og ég klæðist hér að ofan? Taktu þátt: HÉR
Vinningshafi fær jólaflík og krullujárn og ég dreg út á miðvikudagskvöld, það er til mikils að vinna.

Hér að neðan eru fleiri fallegar flíkur úr jólalínu Yeoman, teknar af Kára Sverrissyni. Hátíðarlínan er innblásin af ástarsögunni um Romeo og Juliet og er mikil fegurð fyrir augað. Sjón er sögu ríkari:

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&

Trendnet á Facebook – HÉR

ALLT SEM ER RAUTT RAUTT ..

LÍFIÐ

Þetta gerist alveg óvart hjá mér í desember. Ég fer ósjálfrátt að klæðast rauðu, bera rauðar varir og vel alltaf rautt lakk á neglurnar. Er einhverjir fleiri sem tengja? Rauður er svo sannarlega litur jólanna og gerir allt svo miklu hátíðlegra að mínu mati.

Ég hef oft nefnt það hér á blogginu og annarsstaðar hversu löt ég er að farða mig eða greiða dagsdaglega þegar ég hvort eð er sit við tölvuna allan daginn. Samt set ég á mig varalit eða salva og það var staðan í gær, óförðuð (þó með baugafela – annað must í busy desember) með eldrauðar varir – það er lúkk sem gekk ágætlega upp finnst mér.

Sjáið þið nýja hringinn minn frá SIF JEWRELLY, hann var fyrirfram jólagjöf sem ég opnaði í gær … sumar gjafir má opna aðeins fyrr. Ég elska þessa viðbót á fingurnar en held þó ennþá mest upp á annan hring sem merktur er Gunna og var settur upp síðasta sumar. 

Naglalakk: ESSIE (keypt fyrir síðustu jól)
Varalitur: Isabel Marant x Loréal // Liturinn heitir La Seine Shadow

Kaffið í bollanum á myndunum hér að ofan, er að sjálfsögðu SJÖSTRAND <3

Góða helgi kæru lesendur. Langur dagur framundan hjá mér og á morgun birti ég þriðju aðventugjöfina á Instagram, ekki missa af því, HÉR

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&

Trendnet á Facebook – HÉR