fbpx

501

SHOP

Hæ frá mátunarklefanum í Weekday þar sem ég stökk inn til að athuga með buxur sem fengust ekki í minni stærð í Osló á dögunum. Um er að ræða gömlu góðu Levis 501 sem mig “vantar” fyrir sumarið. Ég á tvennar sem ég hef keypt vintage en eru orðnar svo slitnar og nú langar mig að kaupa þær “nýjar”. Þær fást líklega í Levis í Smáralind .. en þið megið gjarnan staðfesta við mig hvort ég fari með rétt mál? Svo góðar! Og því um að gera að deila boðskapnum á blogginu.

//
Wanted for the summer – classic Levi’s 501 jeans with vintage twist. I am trying them as we speak in Weekday in Stockholm.

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&

Trendnet á Facebook – HÉR

SUMAR SAMFESTINGUR(INN)

ÍSLENSK HÖNNUNSHOP

JESS! Þessi sjúklega flotti samfestingur er loksins kominn í sölu. Ég fékk prufuna lánaða fyrir myndatöku um daginn og er búin að bíða spennt eftir að geta keypt mér hann hjá Andreu (Magnúsdóttur) minni. Ég þori að lofa því að þessi á eftir að rjúka út eins og heitar lummur – þið voruð allavega margar spenntar fyrir flíkinni þegar ég var í henni og ég veit að Andrea hefur líka verið að fá ótrúlega góð viðbrögð.
Ég á sambærilegan frá Mango sem ég notaði í afmælinu mínu í fyrra, hér, en þessi er úr þynnra efni og eiginlega miklu betri .. allavega fyrir mig.

//

I have been waiting for this overall to hit the stores for a while now. It’s an Icelandic design by AndreA and you can buy it, HERE.

Dags og nætur flík (!) … notagildið verður mjög mikið.

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&

Trendnet á Facebook – HÉR

GLEÐILEGT SUMAR

BEAUTYLÍFIÐ

Hér í sænska er venjulegur vinnudagur í dag, á aukafrídegi ykkar á Íslandi. Ég sit með betri helmingnum við tölvuna og bæti upp vinnutap sem varð í sólahrings ferð minni til Oslo fyrr í vikunni.

Þegar ég las nýjar færslur á Trendnet í morgun þá rakst ég á sjálfa mig á forsíðunni, eins fékk ég send snöpp frá Miðnæturopnun Kringlunnar í gær þar sem sama auglýsing blasti við fólki fyrir framan Lyfju … aldeilis ;)

Mér finnst því tilvalið að senda smá sumarkveðju yfir hafið með því að minna ykkur á mikilægi Max Factor herferðarinnar sem stendur yfir í sumar – fögnum styrkleikum okkar með því að draga þá fram með förðunarvörum, í stað þess að fela veikleika okkar – svo góður punktur að taka inn. Meira: HÉR og HÉR

Skyrtan er frá Lindex og hálsmenið frá Hildi Yeoman ..

Hér í sænska hoppuðum við yfir vorið sem var mjög kalt hjá okkur í ár, og fórum strax yfir í sumarið. Ég mun drekka síðdegisbollan með börnunum mínum úti á palli í dag og senda sólargeislana yfir hafið til ykkar. Njótið dagsins kæru lesendur … og gleðilegt sumar!

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&

Trendnet á Facebook – HÉR

H&M HÁDEGISVERÐUR – Conscious Exclusive

SHOP

Halla frá Osló kæru lesendur ..

Ég er hér í stuttu stoppi á vegum H&M en þið hafið líklega mörg orðið vör við það á Instagram síðasta sólarhringinn. Tilefnið að þessu sinni er viðburður og kynning á fatalínunni Conscious Exclusive sem er sjálfbær fatalína fyrirtækisins, sett í sölu í sjöunda sinn í ár. Conscious Exclusive línan inniheldur lífrænt ræktuð efni á borð við hör, bómul og silki og endurunnið pólýester. Auk þessara efna kynnir H&M tvö ný efni til sögunnar, endurunnið silfur (að mínu mati mjög spennandi!) og ECONYL sem er 100% endurnýttar trefjar úr fiskinetum og öðrum nælonúrgangi.

//

I went on a short trip to Norway for their presentation on the new Concious Exclusive collection. The collection is a part of their sustainability vision and the fabrics are all recycled. The idea is that you should be able to use the items year after year – they are made with the finest materials in a timeless style.

My favorite from the event is the drawing from the talented Rakel Tomas – you can see it below. Her job today was to make painting of the guests wearing items from the collection.

Ég á mér nokkrar uppáhalds flíkur úr línunni og má þar nefna jakkann sem ég klæðist hér að ofan, græna kjólann sem ég held á og guðdómlegt kimono sem ég klæðist á myndinni sem Rakel Tómasdóttir málaði fyrir mig (og aðra boðsgesti). Nærfötin og fylgihlutirnir eru líka ofarlega á óskalistanum.

Álfrún í action fyrir Glamour –

Hæfileikaríka Rakel Tómasdóttir <3

Hugsið ykkur að skartgripirnir hér að ofan voru einu sinni pottar, pönnur, kertastjakar eða eitthvað allt annað? Svona má nýta allskonar efni aftur og aftur –

Fegurð –

Besta borðið: Anna Margrét hjá H&M, Marta María frá Smartlandi, Íris frá Vikunni, Álfrún frá Glamour og við Sigríðurr frá Trendnet –

Karin og Carl Larsson, fyrirmyndir línunnar –

Það eru ekki bara fatnaður og skart í línunni, líka skór –

Norska tískuelítan mætti, öll með tölu –

Lyocell og silki –

Svo svo svoo glöð með fallegu #hmcosciousexclusive myndina mína. Takk aftur Rakel!

Sjáið þessa fegurð!

Þetta er ég –

 

Anna Margrét vinkona mín og H&M ofurkona –

Jakkinn er úr línunni og það verða til buxur í stíl. Langar!

Línan í heild sinni er mjög kvenleg og með sérlega fallegu handverki enda sækir hún innblástur í frumlegt og listrænt heimili sænsku listamannanna Karin og Carl Larsson sem allir þurfa að “googla” núna ;)

Takk fyrir mig H&M. Áfram sjálfbær þróun! Fatalínan fer í sölu seinna í vikunni eða 19.apríl.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&

Trendnet á Facebook – HÉR

LOVE WINS TWINS

DRESSSMÁFÓLKIÐ

Vissuð þið að iglo+indi selja líka fatnað á mæður (og feður og frænkur og ömmur …. ) ?
Ég og Alba klæddumst í stíl í gær og vorum að elska það. Um er að ræða bol með setningu sem ég tengi við: LOVE WINS.  Ástin vinnur alltaf allt, það er staðreynd. Fyrir áhugasama þá fæst barnabolurinn: HÉR og fullorðins í verslun i+i á Skólavörðustíg á 3.990isk.

//

LOVE WINS twins <3
Yesterday me and Alba wore the same shirts – both from icelandic iglo+indi.

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&

Trendnet á Facebook – HÉR

Moschino X H&M

FASHIONFÓLKFRÉTTIR

Byrjum þennan dag á sjóðheitum sænskum tískufréttum … trommusláttur ;)

Ég drakk sunnudags morgunbollann yfir live útsendingu á Instagram aðgangi H&M þar sem tilkynnt var um næsta samstarfsverkefni sænska risans við hátískuhönnuð. Það er enginn annar en Jeremy Scott sem mun hanna næstu samstarfslínu með H&M (!!) Fyrirsætan Gigi Hadid sagði frá fréttunum beint frá tónlistarhátíðinni Coachella í árlegu partý sem hönnuðurinn heldur fyrir stjörnurnar og vel valda vini.

Jeremy Scott er listrænn stjórnandi og maðurinn á bakvið ítalska tískuhúsið Moschino og hafa margir kallað hann “Andy Warhol of Fashion” eða síðasta uppreisnarsegginn innan tískuheimsins. Það er gaman að lesa söguna af hans upphafi í tískubransanum en hann flutti ungur til Parísar með draum um að vinna fyrir stórt tískuhús. Það fór ekki betur en svo að hann endaði á því að sofa í neðanjarðarlestunum. Í hörðum tískuheiminum í París virtust allar dyr lokaðar og ákvað hann því að stofna eigin merki og hélt fyrstu tískusýninguna á bar þar sem flíkurnar voru gerðar úr endurunnum efnum og sjúkrahús sloppum. Línan vakti hins vegar svo mikla athygli að Colette ákvað að nýta hana sem útstillingu í gluggum verslunarinnar.

Tveimur árum síðar var það okkar kona. Björk, sem hjálpaði honum uppá stóra sviðið. Hún elskaði “Total White” línuna hans og fékk hann til að hanna allan hennar fatnað á tónleikaferðalagi það árið. Jeremy hefur síðan klætt stórstjörnunar hverja af annarri – Katy Perry, Madonna, Nicki Minaj og Lady Gaga sem dæmi. Þá sagði Karl Lagerfeld að Jeremy væri eini maðurinn sem gæti tekið við Chanel eftir að hann hætti störfum.

Semsagt – risa nafn í þessum blessaða tískubransa!

H&M hefur nú unnið með hverjum stóra hönnuðinum á fætur öðrum og bætist Scott nú í þann hóp. Eins og áður gefur keðjan fólki tækifæri á að kaupa hátískuhönnun á sanngjörnu verði og þá held ég að þetta sé einnig mjög góð markaðssetning fyrir hönnuðina sjálfa sem ná til nýs markhóps.

Ég er byrjuð að telja niður! Línan fer í sölu 8 nóvember, þar á meðal á Íslandi!
//

The next H&M collaboration will be with Jeremy Scott. One of the biggest names in the fashion industry and the creative director of the Italian fashion house, Moschino.

The collection will hit the stores the 8th of November and I can’t wait!

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&

Trendnet á Facebook – HÉR

GEYSIR – KARLMENN & KONUR

FRÉTTIRSHOP

Á síðustu tveimur vikum hafa umfangsmiklar framkvæmdir átt sér stað í verslun Geysis á Skólavörðustíg 16, sem er jafnframt fyrsta verslun fyrirtækisins í götunni. Rýmið hefur verið lokað undanfarið og fólk velt því fyrir sér hvað standi til með breytingunum.

Hulunni hefur loks verið svipt af breytingunum sem að mínu mati verða pottþétt til bóta. Verslunin á Skólavörðustíg 16 opnar aftur, endurhönnuð af innanhúshönnuðinum Hálfdani Pedersen, sem herrafataverslunin GEYSIR KARLMENN. Á sama tíma hafa verið gerðar breytingar á verslun Geysis á Skólavörðustíg 7, sem umbreytist nú í kvenfataverslun og fær nafnið GEYSIR KONUR.

“Breytingarnar eru í takt við öra stækkun Geysis sem skerpir nú enn betur á þjónustu sinni við viðskiptavini með þessum áherslubreytingum á verslunarrýmum sínum.”
(segir í Fréttatilkynningu)

Í tilefni opnunar GEYSIR KARLMENN verður haldið opnunarpartý með pompi og prakt í dag, laugardaginn 14.apríl. Ég myndi sjálf vilja mæta og bera verslunina augum þar sem vel hefur tekist til með verslanir þeirra hingað til – upplifun að heimsækja í 101 Reykjavík og ein af þeim sem ég hvet útlendinga vini mína til að skoða þegar ég gef íslensk verslunartips. Ekki má gleyma að nefna það góða úrval hátískufatnaðar sem hangir á slánum! Úrvalið af verslunum fyrir karlmenn á Íslandi hefur einnig ekki verið til að hrópa húrra fyrir og ég veit að t.d. minn maður fagnar svona verslun.

Myndirnar hér að neðan eru úr nýrri sumarherferð Geysis fyrir verslanirnar. Þær eru teknar af ljósmyndaranum Silju Magg og stíliseraðar af Eddu Gunnlaugsdóttur.

Tónlistarmennirnir Unnsteinn Manuel Stefánsson, Erling Bang og Örvar Þóreyjarson Smárason sátu fyrir á myndunum ásamt þýsku fyrirsætunni Löru Koch. Ég er sjúk í þetta allt – lúkkið út í gegn og eruði að sjá Löru (!) bilast.

Eins og áður sagði – opnunarpartý í dag og meira um það – HÉR

Skilið góðum kveðju frá mér.

Áfram íslensk verslun!

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&

Trendnet á Facebook – HÉR

E&G – BOÐSKORTIN

BRÚÐKAUPLÍFIÐ

English Version Below

Ég átti dásamlegt stefnumót við minn mann í gærkvöldi þegar við fengum loksins brúðkaups boðskortin í hendurnar. Mig kitlar í magann við að skrifa þessar línur og miðað við tilfinningarnar yfir einu korti er kannski ágæt hugmynd að vera með vatnsheldan maskara í brúðkaupinu. Elísabet Gunnars, tilfinningavera, mun örugglega grenja yfir öllu næstu vikurnar og fram yfir stóra daginn.

Að skrifa niður gestalista er ekkert grín og mikið sem ég vildi að ég gæti boðið miklu miklu fleirum – það sem maður á marga góða í kringum sig – alltof marga <3 Það er vandaverk að bjóða í brúðkaup og það vita þeir sem hafa nú þegar gift sig að þetta er mesti höfuðverkurinn. Við Gunni ákváðum að bjóða bara þeim sem við erum í mestu samskiptum við og þekkjum mjög persónulega, óháð því hvernig þeir eru skyldir okkur. Ég held að það hafi verið rétta leiðin fyrir okkur og vona að fólk virði ákvarðanir brúðhjóna í svona málum. Ég kann ekki að “skilja útundan” en það er gott að hafa Gunna til að róa taugarnar.

Ég vildi að þið gætuð komið við pappírinn .. hér er hugsað út í öll smáatriði.

En aftur að boðskortunum. Ég hef í gegnum árin lofsungið Reykjavik Letterpress fyrir þeirra góðu, fagmannlegu og persónulegu vinnu og hér held ég áfram með sönginn. Þær eru lang bestar á Íslandi að mínu mati og það sannaðist enn og aftur í þessu samstarfi síðustu vikurnar (og næstu vikurnar ..) <3 TAKK ÓLÖF ENGILL! Ég er svo yfir mig ánægð með útkomuna!

Ég ætlaði mér ekkert endilega að gera sér bloggpóst um kortin en þar sem þið eruð svo margar að senda mér línu og spyrja mig út í brúðkaupsundirbúninginn þá reyni ég nú bara að koma með sem mest af upplýsingum hér. Líka gaman fyrir mig sjálfa að hafa skrifað smá “dagbók” til að eiga á netinu í framtíðinni.

Ég heimsótti verslun/vinnustofu þeirra úti á Granda síðast þegar ég var á Íslandi. Hún er staðsett á Fiskislóð 24 fyrir áhugasama.

Fallega vél – vá!

Uppkast … óákveðni.

Hvað hefðum við gert án aðstoðar Ólafar?

Við völdum að hafa boðskortin mjög einföld með fallegri skrift og okkar lógói sem verður áberandi á öllu sem viðkemur brúðkaupinu.

Þó ég setji myndir af boðskortunum hér, þá er ekki þar með sagt að ég sé að bjóða ykkur öllum í brúðkaupið ;) því miður. En ég býð ykkur að fylgjast með í beinni hér á blogginu og á samskiptamiðlum. Það er meira en ég hef lagt í vana minn hingað til hvað varðar persónulega nálgun – svo skál fyrir því!

 

Afsakið hvað ég fel mikið – ég vil ekki sýna allt alveg strax þar sem kortin eru ekki komin í hendurnar á gestunum en get glöð sent einhverjum sem eru í vanda með orðavalið eða uppsetnigu. Sendið mér þá línu hér í kommentakerfið með e-mailinu ykkar eða beint á mitt mail – eg@trendnet.is.

Reykjavík Letterpress mun hjálpa mér með boðskortin, servíettur, sætaskipan og matseðla sem allir verða í þessu sama lúkki. Bestar í sínu fagi! Ég veit ekki hvort þið þekkið Letterpress tæknina, en stafirnir verða allir upphleyptir og það er einhvern veginn svo yndisleg áferð á boðskortinu og það verður svo gæðalegt.
Rakel Tómasdóttir sá um að hanna fallega lógóið okkar sem ég segi ykkur betur frá seinna. Talandi um Rakel, lásuð þið ekki þennan póst í gær? Norr11 bíður ykkar ;)

//

I am so glad over the invitation cards to our wedding. They are made by the geniuses at Reykjavik Letterpress – such a great service, couldn’t recommend more!

Hope all you “not-icelanders” that receive a letter will forgive that we just made them in Icelandic. We decided to keep it simple and basic, the logo is made by Rakel Tomas and we will use it on all the material we make. 

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&

Trendnet á Facebook – HÉR

AUGNABLIK

ÍSLENSK HÖNNUN

Rakel Tómasdóttir er ung kona á uppleið … skrifaði ég á bloggið 23.mars 2016, fyrir tveimur árum síðan (HÉR). Ég stend enn við þau orð ef hún er ekki nú þegar búin að meika’ða. Þetta er ekki eini pósturinn þar sem ég hef dásamað þessa kláru konu heldur talaði ég líka um hana HÉR og HÉR og kynntist henni vel þegar við AndreA fengum hana með okkur í skemmtilegasta verkefni síðasta árs, KONUR ERU KONUM BESTAR.

Á morgun heldur Rakel sína fyrstu myndlistasýningu og ég hvet alla til að mæta! Sýningin verður haldin í NORR11 á Hverfisgötu 18A klukkan 18:00 (!).


Gjafapokar í boði fyrir stundvísa gesti og 25% afsláttur af öllum eftirprentunum kallar á að vera tímanlegur. Ég sá gjafapokann á story hjá Rakel í gær og læt fylgja með mynd af honum því hann er sko “keeper” og ég fékk líka þær góðu fréttir að það verði Sjöstrand glaðningur í pokanum ásamt fleiru.


Kvennlíkaminn á súrrealískan hátt –


Myndirnar eru teiknaðar með blýanti og kol á pappír –

„Ég hef alltaf verið að teikna, sama hvað annað ég er að gera í lífinu, ég byrjaði þegar ég var nógu gömul til að halda á blýanti og hef varla stoppað síðan. En ég byrjaði að vinna með þetta konsept að teikna kvennlíkamann á súrrealískan hátt fyrir um það bil ári síðan.”

“Þetta er fyrsta sýningin mín og original teikningarnar mínar hafa aldrei farið út fyrir íbúðina mína áður, hvað þá verið á sýningu. Þetta er mjög stórt skref fyrir mig sem listakonu, ég er segja að mér sé alvara og hvergi nærri hætt.”

“Á sýningunni verð ég með sex nýjar myndir, stærri en ég geri vanalega. Einnig verð ég með myndirnar sem margir hafa séð á instagram og eiga jafnvel eftirprent af ásamt mínum túlkunum á þeim. Á opnuninni verða líka til sýnis hraðspóluð video af teikningunum að verða til, gjafapokar, dj, drykkir og almennt stuð. Hlakka til að sjá sem flesta!

Gangi þér vel elsku Rakel .. Áfram Ísland!
Meira: HÉR

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&

Trendnet á Facebook – HÉR

GINA TRICOT x ANINE BING

FÓLKSHOP

Sænska verslunarkeðjan Gina Tricot mun í vikunni launcha sínu fyrsta samstarfsverkefni með hátískuhönnuði. Hér á meginlandinu er allt í hæpandi spenningi yfir þessari línu sem hönnuð er af Anine Bing. Hún er danskur fatahönnuður, búsett í LA og hefur verið að gera það gott um allan heim. Ég hlakka til fimmtudagsins (12.apríl) og hafði hugsað mér að kaupa eina eða tvær flíkur ef ég næ þeim af slánum.

Ég kann svo vel að meta svona samstörf og virðist þetta vera sú leið sem flesta stærri keðjur velja til að koma sér á framfæri þessa dagana. Allir hafa efni á að fjárfesta í vöru eftir hönnuði sem yfirleitt selja flíkur sínar með mun hærri verðmiða.

Hér að neðan sjáið þið brot úr línunni sem er innblásin af rokki og grófum LA stíl eins og segir í fréttatilkynningu.  Mig langar að eignast merktan stuttermabol, blúndutoppinn og svo heillar bláa peysan mig líka. Leðurjakkarnir frá Anine Bing hafa verið mjög vinsælir og því mæli ég með að fólk skoði sniðið á þeim sem hún hefur hannað með Ginu Tricot, eflaust góð kaup. Þið sendið mér svo bara línu og ég fer í röð hér í sænska ;) (eins og í gamla daga þegar ég keypti í skandinavísku verslunum fyrir lesendur mína) –  verslunin er auðvitað ekki á Íslandi.

//

I am exited about the new collaboration – Gina Tricot and the swedish designer Anine Bing. The items will hit the shops the 12th of April and I hope I can find some of my favorites – t-shirt, the blue sweater or the lace bra. Anine also makes great leather jackets so I guess this one is a keeper.

 

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&

Trendnet á Facebook – HÉR