Vá hvað ég er að elska litasamsetninguna á þessu fallega íslenska heimili sem hannað var af HAF STUDIO. Íbúðin er mjög björt og opin og aðeins glerveggir aðskilja svefnherbergið frá alrýminu sem er skemmtileg nýting á plássi og sjáið líka hvað veggurinn sem tengir forstofu við svefnherbergið nýtist vel undir skápa. Eigum við síðan að ræða eitthvað bleika flísalagða vegginn og þetta tryllta baðherbergi.
Frábærlega vel hannað heimili sem nú er komið á sölu!
Áhugasamir ættu að smella hér –

Ljósmyndir : Fasteignaljósmyndun.is












Ljósmyndir : Fasteignaljósmyndun.is / Mbl.is
Algjörlega einstakt heimili, hér býr greinilega mikill smekkmaður!
// Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu
Skoðum í dag fallegt heimili í Urriðarholti sem innréttað er af HAF STUDIO í sínum einkennandi og eftirsótta stíl.
HAF STUDIO sá nýlega um að innrétta íbúðir við Sjónarveg í Urriðaholti. Leitast var við að hafa létt, hlýlegt og klassískt yfirbragð. HAF grár litur sem fæst hjá Sérefni er á öllum veggjum. Loft, gluggar og hurðir eru í hvítu. Lítil smáatriði eins og hurðarhúnar, höldur og ljós eru svo svört til að skerpa aðeins á heildarútliti og tengja húsgögnin betur saman við rýmin. // Myndirnar tók Gunnar Sverrisson.
Kíkjum í heimsókn –

“Flest húsgögn eru framleidd á Íslandi af HAF STUDIO en þau hafa boðið uppá sérsmíðuð húsgögn útfrá þörfum viðskiptavina undanfarið. Þessum húsgögnum er svo blandað við aðrar þekktari mublur frá Ikea í íbúðinni.”
Innréttingar eru steingráar með svörtum höldum og hvítri quartz borðplötu. Á gólfum er einstaklega fallegt síldarbeinsparket frá Parka. Ljósahönnun var í höndum Rafkaup. Flísar á baðherbergi eru frá Parka.”

Myndir : Gunnar Sverrisson // Sjá nánar á Fasteignavef Vísis
Glæsileg sýningaríbúð sem gefur væntanlegum kaupendum góða tilfinningu fyrir hvernig heimilið þeirra gæti orðið. Ég er mjög hrifin af þeirri hugmynd að stílisera söluíbúðir og hér er búið að velja mildan lit á alla veggi og vandað gólfefni sem oft er erfiðasta valið hjá þeim sem eru að kaupa sér eign.
Eigið góða helgi kæru lesendur –
// Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu
Hreiðurgerðin hefur tekið yfir á okkar heimili en með aðeins 3-5 vikur í komu barnsins er orðið tímabært að gera barnaherbergið huggulegt. Í samstarfi við verslunina Epal og danska barnavörumerkið Sebra Interiør fékk ég að velja mér draumabarnarúmið sem var efst á óskalistanum þegar ég átti son minn fyrir 6 árum síðan og hefur rúmið ekki haggast af óskalistanum síðan þá. Hér má sjá færslu sem ég skrifaði um Sebra rúmið nokkrum dögum fyrir fæðingu sonar míns og hér þegar það voru um 2 mánuðir í komu hans, það var augljóslega ofarlega í mínum huga þá og það kom því ekkert annað til greina en að velja loksins Sebra rúmið fyrir komu dótturinnar.
Sebra rúmið á sér skemmtilega sögu sem mig langar að segja ykkur frá, en á næstu vikum kem ég til með að sýna ykkur barnaherbergið okkar og nýja rúmið sem við vorum að setja saman.
Sebra Interiør er í dag einkaréttshafi af þessu klassíska rúmi sem hannað var árið 1942-43 af danska arkitektnum Viggo Einfeldt og hét rúmið lengst af Junoseng /Juno bed og þekkja margir það enn í dag aðeins undir því nafni enda um 77 ára gömul hönnun sem gengið hefur kynslóða á milli. Rúmið seldist gífurlega vel til að byrja með en það var sérstakt fyrir það leyti að rúmið “vex með barninu”. Byggingarefni var þó af skornum skammti í Danmörku á þessum tíma og erfitt var að anna eftirspurn (sem var mjög mikil) og hætti rúmið í framleiðslu uppúr árinu 1955 stuttu eftir andlát hönnuðarins.
Hönnunin á rúminu er tímalaus og var byggð á þeirri hugmynd að rúmið ætti að vaxa með barninu og vera öruggt. Hönnun rúmsins var mjög sérstök og auðþekkjanleg og þótti einnig á þeim tíma mjög einstakt að áherslan væri á öryggi fyrir barnið og var það líklega eitt fyrsta barnarúmið í heiminum þar sem hönnunin snérist fyrst og fremst um öryggi. Þetta fallega rúm varð fljótlega mjög vinsælt og er í dag talið vera danskt hönnunartákn.
Sebra Interiør eignaðist árið 2016 einkaréttinn á upprunalega Juno rúminu og kynnti uppfærða útgáfu af klassíska og fallega rúminu undir nafninu Sebra rúm – rúmið sem vex með barninu.
Sebra rúmið er einstakt fyrir þær sakir að hægt er að lengja rúmið og breyta rúminu úr ungbarnarúmi yfir í barnarúm (155 cm) þannig nýtist rúmið í mörg ár sem er ekki aðeins gott fyrir umhverfið heldur sparar einnig pening til lengra tíma litið. Eftir að Sebra tók yfir framleiðsluna þá uppfærðu þau rúmið til að mæta öllum nútímaöryggisstöðlum en ásamt því var bætt við þeim möguleika að hækka rúmbotninn svo að á fyrstu mánuðunum er hægt að hafa barnið ofar í rúminu sem minnkar álag á (sérstaklega móður) að þurfa ekki að lyfta barninu hátt úr rúminu á næturnar og veitir meira öryggi.
Ég veit fyrir mína parta að ég gæti ekki verið ánægðari með að Sebra rúmið sé loksins orðið okkar. Þegar ég átti son minn fyrir 6 árum síðan vorum við virkilega að halda að okkur fjárhagslega og enduðum með gamalt barnarúm þar sem ekki aðeins ískraði í hliðinni sem draga þurfti upp og niður á hverri nóttu heldur þurfti ég einnig að teygja mig langt ofan í rúm til að lyfta barninu upp verandi nýkomin úr keisaraskurði. Þegar ég horfi tilbaka voru það svo sannarlega ekki ánægulegar stundir og ég lofaði mér að það fengi ekki að gerast aftur ♡



// Færslan er unnin í samstarfi við verslunina Epal og Sebra Interiør.
Í dag er Sebra rúmið framleitt í nokkrum fallegum litum ásamt með viðaráferð, til að skoða úrvalið getið þið smellt hér og farið þá yfir í vefverslun Epal þar sem þið getið einnig skoðað allt úrvalið frá Sebra.
Ég get ekki beðið eftir að klára að græja barnaherbergið og hlakka mikið til að sýna ykkur myndir. Ég vona að þið hafið haft gaman af því að fræðast um þessa klassísku og fallegu dönsku hönnun.
// Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu
Við elskum svo sannarlega falleg íslensk heimili og hér er eitt bjart og smart í Vesturbænum í Reykjavík sem vert er að skoða. Hér býr Anna Fríða Gísladóttir smekkdama og markaðsstjóri Domino’s pizzu ásamt fjölskyldu sinni. Klassísk hönnun og íslensk list skreytir heimilið sem nú var að lenda á sölu. Fyrir meiri upplýsingar um þessa fallegu íbúð smellið þá hér.

Ljósmyndir : Fasteignaljósmyndun.is




Ljósmyndir : Fasteignaljósmyndun.is / Fasteignir.Vísir.is
// Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu
Ég hef verið að leita að stórum blómapotti undanfarið undir stærstu plöntuna mína, Strelitziu þar sem hún þarf á nýjum og stærri potti að halda. En ég hef aldeilis rekið mig á það að úrvalið af mjög stórum blómapottum er afar takmarkað. Eitt vil ég líka benda áhugasömum á – þar sem ég fæ reglulega mjög margar fyrirspurnir um plönturnar mínar að þetta er dýrt hobbý að eiga – ekki aðeins eru plöntur yfir meðalstærð mjög dýrar hérlendis heldur þarf einnig að huga að umpottun og sumar stækka það hratt að það þarf stærri potta á hverju ári sem kosta jafnvel hátt í 20 þúsund krónur stykkið.
En fyrir utan það er auðvitað mjög gefandi að eiga og sinna plöntum og auk þess hvað þetta lífgar heimilið við.

Hér að neðan má sjá einn sem ég hef verið að íhuga, en ég þarf að fá pott sem er ekki minni en 40 cm í þvermál til að hún þrífist sem best. Hourglass frá Ferm Living er frekar flottur að mínu mati en hækkar plöntuna þó um 60-70 cm, sem færi eftir hvort ég tæki miðstærð eða stærsta (40 – 50 cm).


Lúxusvandamál hér á bæ, en þetta er ein uppáhalds plantan mín og ég væri til í að þurfa helst bara að skipta um undipott á næsta ári en geta notað yfirpottinn lengur. Strelitzia er þó hitabeltisplanta og mun aldrei þrífast fullkomnlega vel á íslenskum heimilum ykkur til upplýsinga sem liggið yfir netinu að reyna að komast yfir eina slíka. Ég hef heyrt frá mörgum sem eru að leita að þessum plöntum án árangurs og borga svo háar upphæðir fyrir litlar Strelitziur. Sem betur fer eru til óteljandi minni tegundir sem eru alls ekki síðri og töluvert auðveldari í umhirðu og ódýrari.
Átt þú þér uppáhalds plöntu?
// Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu
Þá er loksins komið að því að sýna ykkur myndir af draumaeldhúsinu mínu sem hefur aldeilis tekið breytingum en það hefur verið draumur síðan við fluttum inn að skipta um borðplötu og blöndunartæki í eldhúsinu. Eins og allt sem við höfum gert fyrir heimilið & húsið þá er vel forgangsraðað og ráðist í eitt verkefni í einu. Núna kom þó loksins að því eftir ýmsar framkvæmdir að eldhúsið komst að á listanum langa. Ég hóf gott samstarf við Granítsmiðjuna varðandi val á borðplötu og valdi að lokum Mistery White kvartsstein, gullfallegur hvítur steinn sem þolir mikið og þarf ekki að halda of mikið við. Í anda draumaeldhússins sem ég hafði í huga valdi ég hvítan vask og gyllt blöndunartæki sem höfðu verið lengi á óskalistanum.
Ég gæti ekki verið ánægðari með útkomuna og er alsæl með samstarf mitt við Granítsmiðjuna sem var eins og draumur að vinna með. Næst á dagskrá er að smíða eldhúsbekk í borðkrókinn, hengja upp einhverjar myndir og líklega eina hillu – hlakka mikið til að sýna ykkur ennþá meira.
Hér að neðan má sjá myndir af eldhúsinu fyrir breytinguna, eins og sjá má þá var borðplatan orðin lúin og frágangur lélegur, en allar innréttingar og tæki fylgdu húsinu og var allt saman Ikea.

Hér að neðan má sjá nokkrar framkvæmdarmyndir. Við (lesist Andrés) tókum niður flísarnar á veggnum og þurftum því að sparsla vegginn og mála að nýju. Liturinn er Svönubleikur sem er frá Sérefni – minn uppáhalds litur.
Ég nýtti líka útsölurnar nýlega og keypti span helluborð en það sem var fyrir var gashelluborð sem hentaði okkur illa og vá hvað það er mikill munur að þrífa allt eldhúsið í dag með niðurfelldu helluborði og undirlímdum vaski.
Og þá er það lokaútkoman sem við erum bálskotin í !

Þessi ljósi kvartssteinn, Mistery White er fullkominn við bleika eldhúsið mitt. Það kom mér líka á óvart hversu fljótir þeir frá Granítsmiðjunni voru en ég hafði haldið að þetta væri nokkra vikna verk. Ég gæti ekki mælt meira með Granítsmiðjunni og er alsæl með okkar samstarf. Fyrir áhugasama í borðplötupælingum þá mæli ég með að heyra í þeim varðandi tilboð – sjá betur hér.
Takk fyrir lesturinn ♡
// Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu