Ég fékk skemmtilega fyrirspurn í tölvupósti í vikunni og var beðin að taka þátt í leynivinaleik hjá fyrirtæki út í bæ. Ég er ekki viss um að ég megi gefa upp hver það var sem kom með bónina, en leynivinurinn er Ragnheiður Pétursdóttir og er lögfræðingur hjá Árnason Faktor (ráðgjafafyrirtæki á sviði hugverkaréttinda). Hún er að fara að gifta sig í sumar og henni dreymir um Tom Dixon koparljósið en hefur ekki komið sér í að kaupa það enn.
Ég var beðin um að taka saman nokkur flott ljós á góðu verði, það læddist reyndar eitt dýrt með (PH5 ljósið sem mig dreymir um), ásamt upprunarlega koparljósinu sem hannað er af Tom Dixon. Ég vona að þetta gefi ykkur hugmyndir, ég er reyndar alveg ljósaóð og hefði getað sett saman margar svona myndir:)
Ef talið er frá vinstri í efri röð eru þetta: Moth ljós sem fæst í íslensku netversluninni Krúnk Living: 11.900 kr. / Midsummer eftir Tord Boontje fæst m.a. hjá connox.com u.þ.b. 16.000 kr. / PH5 eftir Poul Henningsen, Epal. / Ikea svart ljós 22.990 kr. / Koparljós frá Ilva, 18.995 kr. /NORM69 frá Normann Copenhagen 20.800 kr / 24.200 kr./ Svart ljós frá Ikea, 2.990 kr. / Tom Dixon koparljós, 88.000 kr. Lúmex. / Myntugrænt Moth ljós frá Krúnk Living: 11.990 kr. / Garland eftir Tom Dixon, Habitat 4.820 kr. / Frandsen koparljós fæst m.a. HÉR á u.þ.b. 18.000 kr.
Mig dreymir þessa dagana um nýtt baðherbergi. Ég bið reyndar ekki um mikið, bara helst það að ég þurfi ekki að skammast mín fyrir það, svona eins og staðan er í dag…
Þessi flísalagði veggur er algjör draumur, að blanda saman mörgum ólíkum flísum en þó í svipuðum tón til að mynda fallega heild.
Listaverk á ólíklegum stað!
Þetta baðherbergi er fyrir lengra komna, en marmari á öllu er eitthvað sem ég mun leyfa mér að dreyma um í næsta lífi:)
Svart á hvítu klikkar seint.
Það er eitthvað við þetta baðherbergi, stílhreint og flott. Mig langar í svona stiga-handklæðastand, hafið þið rekist á slíkann í verslunum hér heima?
Það helsta sem ég get gert hér heima til að hressa upp á annars frekar sorglegt baðherbergi er að vera með fínt sturtuhengi, handklæði og smáhluti. Þetta hér að ofan er frá Ferm Living, ásamt stálgrindinni fínu.
Mér finnst eitthvað vera svo heillandi við tímaritastafla, ég er sjálf með nokkra hér heima .. en sem starfsmaður stærsta útgefanda tímarita hér heima kem ég alltof oft með ný tímarit heim (held samt bara eftir 3 af 9), ásamt því að ég kaupi mér sjálf nokkur í mánuði. Ég vil helst hafa þau öll uppivið svo það er auðvelt að grípa í eitt gamalt og gott uppi í sófa eða á meðan ég borða kvöldmatinn.
Það er góð hugmynd að koma þessum bunkum í notkun, t.d. skella borðplötu ofan á og nota sem stofuborð, einnig er hægt að strengja belti utanum og nota sem hliðarborð eða náttborð? Verst þætti mér reyndar að setja þau undir borðplötu og komast sjaldnar í þau.. En þá væri að sjálfsögðu möst að nota glerplötu… og flottasta forsíðan færi efst! Díses hvað það er fín hugmynd:)
Þetta fína tímarit var einmitt að koma úr prentaranum og kemur í verslanir á morgun (ef veður leyfir).
Ég er SJÚK í þessa forsíðu:)
P.S. Mig langar að bjóða ykkur að finna Svart á hvítu á facebook HÉR til að fá allt það nýjasta beint í æð:)
Agent Bauer er síða sem ég gleymi mér stundum við að skoða, þetta er í raun sænsk umboðsskrifstofa sem hefur m.a. stílista, teiknara, hárgreiðslu og förðunarfólk ásamt ljósmyndurum á sínum snærum. Í kvöld renndi ég í gegnum innnahúss-stílista flokkinn og fékk þessar myndir lánaðar þaðan.
Það er mikið úrval af fallegum myndum að finna á þessari síðu, hvort sem þú hefur áhuga á ljósmyndun, matarstílistun eða slíku:
Þessi MALM kommóða bræðir mig því hún er svo falleg, en það sem ég tók reyndar helst eftir við þessa mynd, er að speglarnir (sem eru bara venjulegir hringlaga speglar úr Ikea), það er búið að líma borða bakvið þá svo þeir virðast hanga á borðanum, en gera það í raun ekki. En þannig speglar hafa notið mikillar vinsælda undanfarið, t.d HAY og Adnet speglarnir!
Hér má einnig sjá video af aðeins metnaðarfyllra DIY sem að mér var bent á af lesenda:)
Ég get hreinlega ekki beðið eftir nýja árinu og öllu sem að því mun fylgja, spenntust er ég fyrir verkefnum sem ég er sjálf að vinna að, ásamt tveimur boðsferðum erlendis. Sú fyrri er á hönnunarsýninguna Ambiente í Frankfurt í febrúar og sú seinni er til USA í mars/apríl. Undanfarið ár hefur verið gífurlega viðburðarríkt hjá mér og mig hlakkar til að geta fókuserað á færri hluti og sinnt þeim þá betur. Ég var að lesa skemmtilega stjörnuspá hjá Helga Ómars en ég er einmitt líka í tvíburamerkinu eins og hann. “Vindar breytinganna munu loksins hætta að blása á árinu sem nú fer í hönd og framundan er tími uppbyggingar. Tvíburinn þarf líka að gefa sér tíma til þess að horfa á inn á við og finna sér tíma til þess að sofa, dreyma, skrifa, teikna, halda dagbók eða hvaðeina sem sálin mun þarfnast á næstunni.” Þetta á afskaplega vel við mig en ég trúi mikið á stjörnuspár. Þessa stundina er ég að taka saman árið 2012 hjá mér og útbúa áramótaheit, ég mun deila því með ykkur innan skamms.
Fallegar borðstofur veita mér innblástur þessa dagana, núna þegar jólin eru að koma með tilheyrandi matarboðum og hittingum er skemmtilegt að vera með fallega borðstofu til að bjóða gestum í. Þið ættuð eflaust að geta fengið innblástur frá þessum myndum.
Í kvöld verður jólaskreytt smá, það gengur ekki lengur að það sé kominn 5.desember og það sést ekki ein jólakúla á þessu heimili. Vonandi breytist það í kvöld:)
Ég er að missa mig þessa dagana yfir hvítu tómu veggjunum hér heima og þar sem buddan bíður ekki upp á listaverkakaup þá verður plagat fyrir valinu. Hér að neðan eru nokkrar netverslanir sem selja skemmtileg plagöt, njóttu!
Plagöt hinnar sænsku Therese Sennerholt eru efst á lista hjá mér en þau eru afskaplega falleg.