hönnun, heimili og hugmyndir

NÝTT : HANS WEGNER

Þessi fagri Hans J.Wegner sýningarposter er loksins kominn upp á vegg hér heima. Ég sá hann fyrst í innliti hjá hinni yndislegu Steinunni Völu (hring eftir hring) fyrr í vetur, en posterinn var hannaður og prentaður í takmörkuðu upplagi fyrir sýningu PP möbler húsgagnaframleiðandans á hönnun Hans J.Wegner árið 2006. Það er erfitt að sjá á þessari mynd hvað þetta er, en þetta eru teikningar Hans J.Wegner af öllum hans frægustu stólum.

Bjútí.

TILTEKT

 Hér heima er allt á hvolfi þar sem allsherjartiltekt er í gangi ásamt vorþrifum:) Verst er að þegar ég byrja á svona tiltekt þá dett ég í það að flokka alltsaman og því eru nokkrir svartir ruslapokar orðnir fullir af hlutum+fötum, sem ýmist fara í Rauða Krossinn eða á Bland.is. Og ég er bara rétt að byrja…

Svo bíður mín stór bunki af lesefni sem ég ætla að njóta um helgina þegar allt er orðið fínt.

Eigið góða helgi!

x

HOUSE DOCTOR

Ég er algjörlega heilluð af danska House Doctor merkinu þessa dagana.

 Ég átti leið í Tekk Company í vikunni en þangað hafði ég ekki komið lengi og ég varð ástfangin af House Doctor deildinni. Virkilega fallegar og hlýlegar vörur fyrir heimilið, smáhlutir og húsgögn.

Ég hef talað um hér áður að mér finnist vanta smá hlýleika á heimilið mitt, ég fékk allavega nýja bæklinginn frá House Doctor með mér heim, og er búin að fletta honum fram og tilbaka (án gríns), svo ég verð vel undirbúin fyrir næstu ferð mína:)

zzz

Brakandi fersk rúmföt og staflar af púðum heilla mig eftir löng vinnukvöld.

xxx

MEÐ LIST Á VEGGJUM

Þetta hlýlega og fallega heimili rakst ég á í hinu eina sanna Bo Bedre, en það sem einkennir það eru án efa öll listaverkin sem skreyta veggina. Þarna býr Metta Helena Rasmussen sem er innanhússstílisti, listakona og eigandi netverslunarinnar Retro Villa, og augljóslega líka mikil smekkkona.

Ótrúlega fallegt mix af flísum í eldhúsinu.

Þetta heimili er algjör draumur, en það sem heillar mig mest við það er hversu vel allt er raðað og hvernig hver hlutur virðist eiga sinn stað. Ég hef þó reyndar ekki nokkra trú á því að heimilið sé alltaf svona, eins með öll heimili í öllum tímaritum sem við lesum. Ég vil allavega trúa því að það séu öll heimili með drasli flesta daga vikunnar.. ekki bara mitt.

[vfb id='3']

Tískuráðgjöf frá bloggurum Trendnet

Að tilefni Tískudaga í Smáralind býður Trendnet uppá persónulega tískuráðgjöf þessa helgina.

Leggðu fram þína spurningu/ar hér fyrir neðan.

Öllum verður svarað.

Nafn

Netfang

Hvern viltu spyrja

Spurning