Hvernig er hægt að byrja aftur að blogga eftir langt hlé án þess að koma með fréttir handa ykkur?
Það fór ekki framhjá mörgum að íbúðin mín (*hóst … íbúðin okkar), fór á sölu fyrir nokkrum dögum síðan og í fyrradag var í fyrsta sinn tekið á móti áhugasömum kaupendum.
www.mbl.is/smartland/heimili/2026/08/14/svana_lovisa_selur_hollina/
www.visir.is/g/20262921961d/svana-a-timamotum-og-selur-slotid
Ég ætlaði varla að trúa því samdægurs þegar ég sat sveitt á dýnunni eftir tíma hjá uppáhalds Helgu Ólafs minni og stalst til að kíkja á póstinn minn – það var komið tilboð! Fasteignamarkaðurinn er kannski ekki jafn frosinn og talað er um?
En íbúðin er reyndar algjör æðibiti þó ég segi sjálf frá svo ekki furða hvað margir voru áhugasamir og var þetta ekki eina tilboðið sem barst. Ég elska þessa íbúð og hér hefur okkur liðið ótrúlega vel sl. ár. Það voru alveg nokkur atriði eftir á to-do listanum mínum og biðu betri tíma að gera innandyra sem næsta fjölskylda heldur kannski áfram með, hver veit. Heimilið okkar er bara á sinn hátt lifandi verkefni sem við nostrum við hægt og rólega eins og bæði tími og fjárútlát leyfa. Við kusum að gera þetta verkefni okkar hægt og rólega – jújú við höfum búið hér í 8 ár og í fyrradag var Andrés að festa gólflista á síðasta hornið. Merkilegt hvað það þarf stundum bara réttu pressuna til að klára leiðinlegu verkin;)
Við fjölskyldan höfum verið með það markmið að komast nær miðbænum í Hafnarfirði, nánar í Hraunið sem er gamli hluti bæjarins, og börnin munu bæði í haust ganga þar í skóla og með vini á hverju horni. Það er eitthvað svo notalegt við þennan hluta bæjarins enda virðist vera setið um hvert hús sem kemur á sölu og því höfum við fengið að kynnast. Og þá er komið að því… húsinu!
Stundum þarf að finna nýjar leiðir til að komast þangað sem við viljum og að sjá möguleika í því sem aðrir sjá ekki. Nei sko, þið munuð fá áfall að sjá húsið. Ég er smá flissandi yfir því hvað ég var að koma mér útí.
P.s. ég verð seint þekkt fyrir skynsemi – og þetta verður smá vandræðalegt blogg ef kaupin ganga ekki upp hahaha… en ég er björtu megin í lífinu og því læt ég slíka hugsun sem vind um eyru þjóta. Ég býð þó þar til ég er komin með alla pappíra í hendurnar og sýni ykkur.
To be continued … mikið sem ég hlakka til að sýna og segja ykkur frá næsta skrefi! Þangað til nokkrar myndir af heimilinu núna <3


Hæ aftur eftir ótrúlega langt blogghlé, mikið sem ég hef saknað þess að skrifa.
Eigið góða helgi kæru lesendur x
Skrifa Innlegg