fbpx

Við vorum að kaupa hús!

Persónulegt

Hvernig er hægt að byrja aftur að blogga eftir langt hlé án þess að koma með fréttir handa ykkur?

Það fór ekki framhjá mörgum að íbúðin mín (*hóst … íbúðin okkar), fór á sölu fyrir nokkrum dögum síðan og í fyrradag var í fyrsta sinn tekið á móti áhugasömum kaupendum.

www.mbl.is/smartland/heimili/2026/08/14/svana_lovisa_selur_hollina/

www.visir.is/g/20262921961d/svana-a-timamotum-og-selur-slotid

Ég ætlaði varla að trúa því samdægurs þegar ég sat sveitt á dýnunni eftir tíma hjá uppáhalds Helgu Ólafs minni og stalst til að kíkja á póstinn minn – það var komið tilboð! Fasteignamarkaðurinn er kannski ekki jafn frosinn og talað er um?

En íbúðin er reyndar algjör æðibiti þó ég segi sjálf frá svo ekki furða hvað margir voru áhugasamir og var þetta ekki eina tilboðið sem barst. Ég elska þessa íbúð og hér hefur okkur liðið ótrúlega vel sl. ár. Það voru alveg nokkur atriði eftir á to-do listanum mínum og biðu betri tíma að gera innandyra sem næsta fjölskylda heldur kannski áfram með, hver veit. Heimilið okkar er bara á sinn hátt lifandi verkefni sem við nostrum við hægt og rólega eins og bæði tími og fjárútlát leyfa. Við kusum að gera þetta verkefni okkar hægt og rólega – jújú við höfum búið hér í 8 ár og í fyrradag var Andrés að festa gólflista á síðasta hornið. Merkilegt hvað það þarf stundum bara réttu pressuna til að klára leiðinlegu verkin;)

Við fjölskyldan höfum verið með það markmið að komast nær miðbænum í Hafnarfirði, nánar í Hraunið sem er gamli hluti bæjarins, og börnin munu bæði í haust ganga þar í skóla og með vini á hverju horni. Það er eitthvað svo notalegt við þennan hluta bæjarins enda virðist vera setið um hvert hús sem kemur á sölu og því höfum við fengið að kynnast. Og þá er komið að því… húsinu!

Stundum þarf að finna nýjar leiðir til að komast þangað sem við viljum og að sjá möguleika í því sem aðrir sjá ekki. Nei sko, þið munuð fá áfall að sjá húsið. Ég er smá flissandi yfir því hvað ég var að koma mér útí.

P.s. ég verð seint þekkt fyrir skynsemi – og þetta verður smá vandræðalegt blogg ef kaupin ganga ekki upp hahaha… en ég er björtu megin í lífinu og því læt ég slíka hugsun sem vind um eyru þjóta. Ég býð þó þar til ég er komin með alla pappíra í hendurnar og sýni ykkur.

To be continued … mikið sem ég hlakka til að sýna og segja ykkur frá næsta skrefi! Þangað til nokkrar myndir af heimilinu núna <3

          

Hæ aftur eftir ótrúlega langt blogghlé, mikið sem ég hef saknað þess að skrifa.

Eigið góða helgi kæru lesendur x

Lítið sjarmatröll með djúsí sófaeyju

Heimili

Þessi pínulitla íbúð er algjört sjarmatröll og alveg ótrúlega hlýleg og kósý. Fermetrafjöldi skiptir jú engu máli hvort heimili verða hugguleg, heldur hvernig húsráðendur nýta plássið sem þau hafa. Mjög oft eru valin lítil og nett húsgögn fyrir litlar íbúðir, en hér er því einmitt öfugt farið, því sófinn er nánast eins og lítil eyja sem flæðir milli stofu og eldhúss og skapar ekkert smá notalega stemmingu og þetta djúsí og litríka púðafjall setur alveg punktinn yfir i-ið. Takið líka eftir hvað litir skipta miklu máli, bleika teppið á sófanum og blá rúmfötin og teppið í svefnherberginu – án þeirra væri heildarsvipurinn eitthvað svo flatur og óspennandi.

Litir, litir, litir… dálítið sætur líka liturinn á veggjunum, ljósbrúnn/sandlitur með smá gulum í? Kíkjum í heimsókn,

  

Myndir: Historiska Hem

Ljóst & lekkert heimili í Stokkhólmi

Heimili

Það er vor í loftinu og því tilvalið að skoða saman bjart og fallegt heimili, sem að þessu sinni er staðsett í eftirsótta Vasastan hverfinu í Stokkhólmi. Mér fannst tilvalið að brjóta langa bloggpásu með sænsku innliti, því þau hafa verið afar tíð og vinsælt lesefni hér á Trendnet. Stofan er sérstaklega hugguleg með ljósgulum og ljósgrænum tónum sem fara svo vel við beige litaðann sófann, ljósbrúna leðurstólinn og sandlitaða veggina. Ég er líka dálítið skotin í eldhúsinu, með gólfsíðar gardínur fyrir meiri elegans og opnar hillur í eldhúseyjunni þar sem hægt er að raða smekklega í.

Kíkjum í heimsókn,

    

Myndir : Historiska Hjem 

Þar til næst!

Blue Lagoon Skincare & mínar uppáhalds vörur!

BeautyÍslensk hönnunMæli meðSamstarf
Undanfarna mánuði hefur mín húðrútína einkennst af óvenjulega miklum lúxus, og er það heldur betur að skila árangri og langt síðan húðin á mér hefur verið í jafn góðu jafnvægi. Flesta daga nota ég BL+ serumið, BL+ andlitskremið, BL+ retinol og síðast bætti ég við rútínuna BL+ Eye serum og BL+ Eye cream og er því í dag komin með flestar af þeirra helstu snyrtivörum í snyrtiskápinn (*keypt sjálf og fengið í gjöf).
Augnserumið er í sérstöku uppáhaldi og það er alveg geggjað að geyma það í kæli og er því ótrúlega frískandi að rúlla ískaldri stálrúllunni yfir augnsvæðið á morgnanna sem gerir töfra ef þú vaknar eitthvað þreytuleg og þrútin um augun, en það gefur bæði góðan raka, frískar og vinnur á fínum línum! Já takk

Bláa Lónið er svo sannarlega íslensk perla en það eru líka snyrtivörurnar þeirra, en ekki allir vita að fyrstu fimm vörurnar þeirra – þar á meðal kísilmaskinn og baðsalt Bláa Lónsins – komu á markað árið 1995.

BL+ the serum

Öflug formúla sem vinnur gegn öldrun húðar og styður við heilbrigði hennar. Inniheldur hinn einstaka BL+ COMPLEX, sem bætir kollagenbirgðir húðar og styrkir náttúrulegt varnarlag hennar, ásamt jarðsjó Bláa Lónsins, C vítamíns og þriggja tegunda hýalúrónsýra.

 

Eye Expert gjafasett

BL+ EYE SERUM
Áhrifaríkt augnserum sem gefur góðan raka, frískar, vinnur á fínum línum og dregur úr einkennum þreytu og þrota á viðkvæmu augnsvæðinu.

BL+ EYE CREAM
Háþróað augnkrem sem nærir, þéttir og dregur úr fínum línum. Næringarríkt og silkimjúkt krem sem verndar viðkvæmt augnsvæðið, gefur slétta og bjarta ásýnd.

SILK EYE MASK
Glæsilegur svefnmaski úr silki sem gerir góðan svefn enn betri.

Þessu setti mæli ég svo innilega með ♡

FALLEGAR ÚTSKRIFTARGJAFIR

Íslensk hönnunÓskalistinnSkart

Það eru margar útskriftir um helgina og í tilefni þess tók ég saman nokkrar góðar gjafahugmyndir sem munu án efa hitta í mark hjá fagurkerum. Falleg íslensk hönnun er í meirihluta að þessu sinni þar sem að útskrift Listaháskólans er meðal annars núna um helgina, má þar nefna skartgripi frá – bylovisa-, bolur og kerti frá Yeoman, vasa eftir Önnu Þórunni, veski eftir Andreu og íslensk list frá Listval ♡

 

Ef þú smellir hér þá ferðu yfir á minn lista hjá -by lovisa- þar sem ég hef tekið saman mitt uppáhalds skart ♡ Óskalisti Svönu / Svart á hvítu

Hér að ofan má einnig sjá Panthella hleðslulampa úr Epal // Gordjöss bol frá Yeoman ásamt handgerðum kertum // Royal Copenhagen stafabolla og Frederik Bagger glös, bæði úr Epal. // Allt skartið er frá Bylovisa. 

Dolce keramíkvasinn eftir Önnu Þórunni er svo flott hönnun, fæst m.a. í Epal // Hér má einnig sjá allskyns vasa úr smiðju Iittala en blómavasar & blóm eru alltaf góð gjöf að mínu mati:) // Albúmabækurnar frá Printworks eru svo skemmtileg gjöf og hægt að vera búin að prenta út myndir og látið fylgja með – fást hér! //Íslensk list á veggina gleður fagurkera og er þetta prentverk frá Listval // Draumaveskið mitt er þetta í neðstu röðinni frá elsku Andreu, svo fallegt og perlubandið alveg einstakt. // Hleðslulampar eru skemmtileg gjöf og ótrúlega nytsamleg, þessi flotti gyllti heitir Como og er frá Epal // Skartgripirnir á myndinni eru frá –bylovisa- úr Fairy tale línunni og eru úr ekta gulli og eðalsteinum og alveg stórkostlega fallegir

Ég vona að þessar gjafahugmyndir komi ykkur að góðum notum ♡

Falleg íslensk heimili : Gordjöss hönnunarheimili í Urriðaholtinu

Íslensk heimili

Hér er á ferð heimili sem segir VÁ! Það er ekki alltaf sem ég hef heimsótt þessi fallegu heimili sem ég sýni myndir frá, en hér hinsvegar býr ein uppáhalds vinkona mín ásamt fjölskyldu sinni. Um er að ræða ótrúlega glæsilegt 6 herbergja Svansvottað raðhús í Urriðaholtinu á alveg frábærum stað í hverfinu, efst við Urriðaholtsstræti. Ég man þegar ég heimsótti hana fyrst í splunkunýtt húsið og hugsaði einmitt “VÁ þetta er næs hús”, það er smá skandinavískur fílingur yfir því, efnisvalið og allt umhverfið er svo sjarmerandi. Þið eiginlega verðið að kíkja á húsið, sjón er sögu ríkari ♡

„Í þessum húsum erum við að vinna með þætti sem hafa jákvæð áhrif á líðan og heilsu fólks. Þar á meðal má nefna áherslu á góða hljóðvist, sem dregur úr streitu og þreytu. Einnig náttúrulega lýsingu, því að við mannfólkið leggjum mikið upp úr dagsbirtunni.“

Það er svo falleg hugsun á bakvið alla hönnun hússins sem miðar að því að íbúum þess líði vel.

Hér er ansi áhugaverð lesning um húsið sem ég mæli með fyrir áhugasama:

„Svansvottuð raðhús fyrir aukin lífsgæði

Vistbyggð ehf hefur sett ný Svansvottuð raðhús í sölu, efst við Urriðaholtsstræti. Raðhúsin eru byggð úr krosslímdum timbureiningum og fylgja ströngum kröfum um efnisval og umhverfisspor til að standast kröfur Svansins, sem er umhverfismerki Norðurlandanna.

„Í þessum húsum erum við að vinna með þætti sem hafa jákvæð áhrif á líðan og heilsu fólks. Þar á meðal má nefna áherslu á góða hljóðvist, sem dregur úr streitu og þreytu. Einnig náttúrulega lýsingu, því að við mannfólkið leggjum mikið upp úr dagsbirtunni. Í húsunum er janframt loftskiptikerfi sem minnkar orkunotkun húsanna verulega og hindrar rakamyndun,“ segir Benedikt Ingi Tómasson, framkvæmdastjóri Vistbyggðar ehf.”

Heimild: Urriðaholt.is

„Áhersla á vellíðan

„Við Íslendingar verjum mjög miklum tíma innanhúss, um 65% af þeim tíma er á heimilinu og því skiptir miklu máli að húsakynnin láti okkur líða vel. Kröfur Svansvottunarinnar styðja afar vel við þau markmið og stuðla auðvitað um leið að umhverfisvænum byggingarmáta,“ segir Benedikt.

„Sem dæmi má nefna loftskiptikerfið. Þá er fersku lofti að utan blásið inn og svo sogað út aftur og varminn frá útsogsloftinu notaður til að hita loftið sem kemur inn. Þessi varmaendurvinnsla minnkar orkunotkunina verulega og þarmeð hitaveitureikninginn. Um leið draga þessi loftskipti úr rakamyndun innanhúss,“ bætir hann við.

„Við hönnun húsanna horfðum við til þess að skapa heilnæmt húsnæði fyrir alla fjölskylduna, að það yrði auðvelt að fá vini í heimsókn og geta verið saman, en líka sitt í hvoru lagi í ró og næði.“

Heimild: Urriðaholt.is

Myndir : Fasteignasíða Vísir.is / Pálsson fasteignasala     

Fyrir áhugasama þá hvet ég ykkur til að kíkja á opna húsið núna á sunnudaginn þann 18. febrúar. Smelltu svo hér til að lesa enn meira um þessi heillandi Svansvottuðu hús.

Hér gæti ég hugsað mér að búa ♡

60 ÁR AF DEKKUÐU JÓLABORÐI MEÐ ROYAL COPENHAGEN

Fyrir heimiliðJól

Ég er ein af þeim sem kann miklu betur við það að leggja á borðið en að elda matinn og hef hingað til fengið að halda mig í þeirri deild. Fallega dekkuð borð gera matarboðin og borðhaldið aðeins skemmtilegra og það má nota ýmislegt óhefðbundið til að skreyta borðið með og getur alveg verið hin besta skemmtun. Listinn er endalaus og stoppar aðeins við þitt eigið hugmyndaflug. Ég elska að leggja á borð um jólin með gömlum Royal Copenhagen jólaplöttum sem ég hef sankað að mér í gegnum árin og blanda þeim við klassískt Blue Elements stell og ýmislegt punt sem ég vel að hverju sinni, jólanammistafir, piparkökur, litlar batterísseríur, styttur í vetrarþema og að binda slaufu með fallegum borða á glösin, hnífapörin eða kertastjakana eru nokkrar hugmyndir af borðskrauti í fljótu bragði. Hér að neðan má sjá fallegar hugmyndir til að leggja á borðið fyrir jólin.

Á hverju ári síðan 1963 hefur Royal Copenhagen fagnað jólunum með glæsilegu jólaborði þar sem fallegt borðstellið fær sín notið á listrænan hátt. Í ár eru því komin 60 ár af Royal Copenhagen jólaborðum og í tilefni þess voru fimm ólík jólaborð kynnt sem voru dekkuð af sex skapandi aðilum, sem öll eiga þau sameiginlegt að hafa mikil áhrif á danska menningu – sum í nokkra áratugi, og önnur sem eru á uppleið.

Hvert og eitt þeirra fékk að túlka sín jól á sinn persónulega hátt og eins og alltaf eru jólaborðin staðsett í gullfallegri og sögulegri flaggskipsverslun Royal Copenhagen við Amagertorv 6 í Kaupmannahöfn fram að jólum.

Smelltu hér til að lesa meira um 60 ár af jólaborðum Royal Copenhagen. Hér að neðan tók ég saman fallegan innblástur af jólaborðum Royal Copenhagen.

Og fyrir áhugasama þá má skoða hér jólaborðið sem ég og Andrea gerðum í hittifyrra, þegar tveir Royal Copenhagen safnarar hittast og fá að dúlla sér við að leggja á borð er mjög gaman ♡ Fyrir áhugasama þá fæst þetta fallega stell hjá Kúnígúnd og í Epal.

DRAUMAVASI OG GULLFALLEGIR KERTASTJAKAR FRÁ IITTALA

Hönnuniittala

Ultima Thule blómavasinn frá Iittala er innblásinn af klassískri hönnun Tapio Wirkkala og einni vinsælustu vörulínu Iittala, Ultima Thule sem við öll könnumst líklega við. Blómavasinn kemur í tveimur stærðum og fæst sá minni einnig í leirútgáfu. Ultima Thule vörulínan hefur verið í mörg ár í miklu uppáhaldi hjá mér og er blómavasinn nýjasta viðbótin í safnið mitt og ég elska hvað vasinn getur líka staðið einn og sér til skrauts og verið alveg jafn fallegur með engum blómum í.

Önnur nýjung sem ég er svona heilluð af eru brass kertastjakarnir sem bættust við Aalto vörulínuna og stela þeir auðveldlega athyglinni í hvaða uppstillingu sem er þar sem gyllt og glansandi áferðin grípur svo augað. Algjörlega gullfallegir og gordjöss.

      Algjör draumur –

 

Á ÓSKALISTANUM : PALE ROSE LAMPI FRÁ LOUIS POULSEN

HönnunÓskalistinn

Louis Poulsen kynnti Pale Rose ljósin í fyrsta skipti á árlegu Salone hönnunarsýningunni í Mílanó árið 2022 og ég varð samstundis ástfangin! Þar mátti sjá nokkur af þeirra þekktustu ljósum í ljósbleikri útgáfu sem slógu algjörlega í gegn en þó var aðeins hægt að versla ljósin beint frá vefsíðu Louis Poulsen þar til núna… Viljið þið sjá þessa fegurð!

Myndirnar fékk ég að láni á Instagram síðu @louispoulsen 

Sjá myndir hér að neðan frá fyrstu kynningu á Pale Rose í Mílanó 2022.

Svo ótrúlega falleg útgáfa og er svo sannarlega komin efst á minn heimilis-óskalista!

FERM LIVING & VILLA COPENHAGEN

Hönnun

Villa Copenhagen er eitt glæsilegasta hótelið sem ég hef heimsótt, staðsett í sögulegri byggingu frá árinu 1912 í hjarta Kaupmannahafnar við hliðina á Tívolí þar sem áður mátti finna pósthús borgarinnar. Byggingin var endurhugsuð með tilliti til nútímans og var gerð upp á einstakan hátt þar sem upprunalegum smáatriðum var vel viðhaldið,  en hér eru um 390 herbergi, veitingastaður, bar, gymsauna og sundlaug ásamt ráðstefnu & veislusal. Ég mæli alveg innilega með heimsókn hingað ef þú átt leið til borgarinnar. Nú á dögunum kynntu þau glæsilega nýja íbúðarsvítu þar sem lúxusferðalangar geta haft það einstaklega ljúft í rúmgóðri íbúð og auk þess verið umkringd fallegri hönnun frá Ferm Living. Kíkjum í heimsókn,

   

Villa Copenhagen er eitt af mínum uppáhalds hótelum og ég gæti ekki mælt meira með.