fbpx

SIRKUS BARNAHERBERGI Á ÞRJÁ VEGU

Barnaherbergi

Hvaða barn gæti ekki hugsað sér að eiga sirkus herbergi? Aðferðin er það einföld að það mætti telja ótrúlegt að við þekkjum ekki öll að minnsta kosti eitt barn sem á sirkus herbergi:) Þú einfaldlega finnur miðjupunktinn á loftinu og með málningarteipi afmarkar þú rendur í “sirkustjaldinu” sem þú síðan tekur burt þegar málningin er þornuð.

Prófaðu!

Myndir : Pinterest / Fyrir fleiri hugmyndir er hægt að slá inn t.d. leitarorðið ‘circus themed kids room’ á Pinterest.

1, 2, eða 3? Hvert er þitt uppáhald?

Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu

VINSÆLASTA ELDHÚSIÐ Á PINTEREST // HJÁ ATHENU CALDERONE

Eldhús

Athena Calderone er innanhússhönnuður, bókahöfundur, bloggari og smekkkona mikil. Hún er höfundur bókarinnar Live Beautiful sem slegið hefur í gegn hjá hönnunarunnendum um allan heim. Eldhúsið á heimili fjölskyldunnar í Brooklyn nýtur einstaklega mikilla vinsælda á Pinterest og er gjarnan kallað fallegasta eldhús í heiminum (það prýðir jafnframt kápuna á Live Beautiful bókinni) en núna má sjá myndir af sumarhúsaeldhúsinu hennar í Hamptons og er það svo sannarlega ekkert síðra en það fyrrnefnda.

Calacatta marmari spilar stórt hlutverk í báðum eldhúsum og vekur sérstaka athygli hvernig marmarinn nær uppá vegg og toppurinn er skrauthillan úr marmara þar sem listaverk njóta sín í bland við eldhúsmuni. Eldhúsin eru ekkert svo ólík þrátt fyrir ólíka litapallettu.

Skoðum myndirnar af þessum einstaklega fallegu eldhúsum, byrjum á því í Hamptons.

Hér að neðan má svo sjá eldhúsið í Brooklyn heimili hennar,

Myndir via Pinterest 

Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu

3 MÁNUÐIR SYKURLAUS OG LJÚFFENG SÚKKULAÐIKAKA

Matur & baksturSamstarf

Í dag hef ég verið í meira en 3 mánuði sykurlaus sem hefur verið ansi skemmtileg áskorun sérstaklega í sumarfríinu með börnin. Mig langaði í dag alveg ótrúlega mikið í nýbakaða köku og þá að sjálfsögðu baka ég köku ♡Það breytir engu hvaða dagur er… ef þig langar í köku þá færðu þér köku. Það er orðið langt síðan að ég bakaði eftir þessari uppskrift en ég var með algjört æði fyrir henni fyrir nokkru síðan þegar ég prófaði fyrst að vera sykurlaus (2019). Í dag finn ég að bragðlaukarnir hafa aðeins breyst og ég minnka núna töluvert magnið af gervisætunni og leyfi súkkulaðinu að njóta sín. Það er alveg nauðsynlegt að bera þessa köku fram með þeyttum rjóma og berjum til að vega upp á móti sæta bragðinu. Mmmm.

Ég er mjög stolt að segja frá því að í dag er ég í samstarfi við Valor súkkulaðið – en það raunverulega bjargaði mér frá sykurpúkanum bæði núna og árið 2019 og hef ég keypt mér mjög mikið magn af þessu uppáhalds súkkulaði áður en samstarf hófst. Ég mæli með að prófa, mitt uppáhalds þessa stundina er mjólkursúkkulaðið með möndlum ♡

Ég átti til fersk bláber og frosin hindber sem var mjög ljúffengt með rjómanum.

UPPSKRIFT

  • 175 g  mjúkt smjör
  • 80 g  /   Sukrin Gold (gervisæta – til í bakstursdeild / ég set minna magn).
  • 3 egg
  • 40 g   /  1/3 bolli kakó
  • 175 g / sykurlaust súkkulaði frá Valor (samstarf) – Uppskriftin segir amk 75% dökkt súkkulaði, ég hef prófað bæði með mjólkursúkkulaði og dökku og finnst það vera smekksatriði hvort þú viljir. Fyrir þau ykkar sem eruð ekki alveg sykurlaus þá mæli ég einnig með sykurminni súkkulaðinu frá Valor, dökkt súkkulaði með minna sykri en flestar tegundir. Þú finnur Valor í flestum betri verslunum en besta úrvalið er í Fjarðakaup, Nettó og Bónus (allar tegundir). 
  • 75 g  /  3/4 bolli möndlumjöl. 

Aðferð:

    1. Hitaðu ofninn í 180 gráður.

    2. Bræddu súkkulaðið. Yfir vatnsbaði eða á afþýðingu í örbylgjuofni.

    3. Blandaðu saman mjúku smjöri, hægt að mýkja á afþýðingu, bættu svo við sætunni, eggjum og kakói. Ég nota þeytara – einnig hægt að nota blandara, matvinnsluvél eða hrærivél.

    4. Bættu við súkkulaðinu og möndlumjöli og hrærðu vel saman þar til deigið er þykkt og mjúkt.

    5. Settu bökunarpappír í mót og inní ofn. Ég nota miðlungsstórt eldfast mót, eða lítið hringform þar sem uppskriftin er ekki mjög stór.

    6. Bakið í 25 mín en ég fylgist vel með kökunni og tek yfirleitt út aðeins fyrr:)

      Leyfðu kökunni að kólna áður en þú tekur hana úr forminu. Kakan verður mjög mjúk þegar hún er heit, en stífnar svo þegar hún kólnar. 

// Uppskrift upprunalega frá Sugarfree Londoner en smá breytt. Uppskriftin er merkt “Fabulously fudgy Keto brownies” en þó tek ég fram að ég fylgi engu sérstöku matarræði, er alls ekki ketó og borða bara 100% venjulegan mat eins og allir aðrir en les þó vel á umbúðir og sneiði hjá því sem er með viðbættum sykri í. Einfaldara gæti það ekki verið!

Færslan er unnin í samstarfi við Valor á Íslandi. 

Verði ykkur að góðu! 

Smelltu á flokkinn efst í færslunni til að sjá fleiri sykurlausar uppskriftir! Fyrir ykkur sem hafið áhuga að verða sykurlaus er ykkur velkomið að hafa samband að sjálfsögðu. Ég verð einnig að mæla með þessari einföldu og léttu köku hér – sykurlaus kaka með súkkulaði – sem er algjört æði.

Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu

DIY // SJÓNVARPSSKENKURINN FYRIR & EFTIR

DIYFyrir heimiliðHugmyndirPersónulegtSamstarf

Nýlega lét ég verða af því græja sjónvarpsskenk í stofunni en mig hafði lengi langað að prófa rattan efni og mig dreymdi einnig um skenk sem væri það stór að ná yfir allan vegginn. Niðurstaðan var að kaupa Ikea skenk og gera hann upp (Montana draumurinn bíður betri tíma;) Hugmyndin var því að finna einfaldan grunn og mála, setja fallegar höldur, rattan efnið og að lokum plötu ofan á.

Rattan efni hefur notið mikilla vinsælda undanfarið og hægt að nota það á mjög marga vegu til að gefa húsgögnum og innréttingum nýtt og aðeins hlýrra útlit. Það sem ég þurfti í verkefnið var að sjálfsögðu skenkurinn sem ég keypti í Ikea (Besta skenkur), en það má vissulega gera svona uppfærslu með öðrum húsgögnum, bæði gömlum og nýjum. Fyrir hugmyndir þá mæli ég með Pinterest og skrifa til dæmis “rattan hack” eða “ikea rattan cabinet”….

Hurðirnar eru Ikea Ostvik með gleri sem var brotið úr með mikilli þolinmæði þar sem glerið er hert og ætlaði svo sannarlega ekki að gefa sig! (tips: að nota síl, dúkknál eða álíka og hamra FAST í hornin.) Eftir að glerið var farið þurfti að spartsla og pússa í raufina og að lokum að grunna og mála. Ég valdi að mála í sama lit og vegginn sem er Soft Sarceilles frá Sérefni (samstarf).

Rattan efnið er frá Sérefni (samstarf) – og kemur í nokkrum ólíkum tegundum, það klippti ég til og festi með heftibyssu.

Höldurnar pantaði ég af Amazon en ég fékk þó ábendingu að svona höldur fáist einnig hér á Íslandi – væri gaman að heyra í athugasemd í hvaða verslun það er.

Platan ofan á er harðplast með marmaraáferð keypt í Hegas (ætlað á borðplötur) og Andrés minn sagaði í rétta breidd og límdi á masónít plötu því ég vildi hafa þetta sem þynnst. Ég sé fyrir mér að setja alvöru stein eða kvarts ofan á og það fær vonandi að gerast seinna og er þessi lausn líklega bráðabirgða – en ég á eftir að fikta meira í þessum skáp og hurðum haha. Næst mun ég líklega mála ljósa rönd yfir brúna kantinn.

Til að vera 100% hreinskilin þá er skápurinn fallegri á mynd en í persónu haha, það er vandmeðfarið að festa rattan efnið á alveg rétt og ég málaði það eftir að hafa fest á og það færðist smá til eftir að hafa blotnað. Einnig hefði ég mátt vera þolinmóðari og pússa á milli umferða sem ég mætti gera á næstunni og laga ójöfnur. Að lokum þá þarf ég einnig að finna lausn á brúnu röndinni sem truflar mig. Haha thats it (!) ;)

Að öðru leyti er ég mjög ánægð með útkomuna og ætla núna að hengja upp myndir á vegginn ásamt sjónvarpið!

Smellið á slóðina til að sjá DIY Instagram myndbandið sem ég setti saman // DIY sjónvarpsskenkur fyrir og eftir. Takk fyrir að fylgjast með – þangað til næst:)

Fylgstu endilega með á Instagram @svana.svartahvitu

SUMARLEGT INNLIT & FALLEG HÖNNUN

BorðstofaStofa

Vá! fallega og sumarlega heimili…

Ég er í smá sumarleyfi þessa dagana en stenst ekki mátið að deila með ykkur þessum fallega innblæstri fyrir heimilið. Ef vel er að gáð þá sjáið þið glitta í íslenska hönnun á myndunum, spottið þið hlutinn?

Myndir frá Entrance Makleri – þar sem sjá má fleiri myndir 

Eigið góðan dag kæru lesendur, hvort sem þið eruð í sumarfríi eða ekki:)

Fylgstu endilega með á Instagram @svana.svartahvitu

Þangað til næst ♡

LITRÍK DRAUMAMOTTA EFTIR TEKLAN & HEYMAT

Fyrir heimiliðHönnun

Ég eignaðist á dögunum algjöra draumamottu í forstofuna sem ég hafði verið með augun á frá því að samstarf Teklan og Heymat var kynnt. Um er að ræða litríka mottu sem kallast Mix frá norska hönnunarmerkinu Heymat sem hefur hannað og framleitt endingargóðar gæðamottur fyrir heimilið frá árinu 2016. Tekla er hinsvegar súperstjarna í hönnunarheiminum, er innanhússhönnuður, mikill áhrifavaldur og algjör litaséní, því kom ekki á óvart að mottan hennar væri einstaklega litrík en segist hún hafa verið innblásin af gimsteinum við hönnun mottunnar.

Heymat vörumerkið fæst í Dimm og keypti ég mína mottu þar.

DRAUMAHÚSGÖGN Í BARNAHERBERGIÐ FRÁ NOFRED

BarnaherbergiÓskalistinn

Það krúttlegasta sem ég hef séð eru fallegu barnahúsgögnin frá danska hönnunarmerkinu Nofred og þar eru músastólarnir klassísku fremstir í flokki. Stólarnir koma bæði í barnahæð og henta því mjög vel í barnaherbergið og koma einnig í eldhúsborðhæð og eru því tilvaldir við matarborðið. NoFred hefur vakið mikla eftirtekt undanfarið fyrir vönduð húsgögn og smávörur fyrir börn sem eru það falleg að þau eiga jafnvel heima í stofunni og gætu notið sín þar vel.

Það eru nokkrar vörur frá NoFred á óskalistanum okkar fyrir herbergið hennar Birtu Katrínar sem er enn í smíðum (haha eilífðarverkefnið), en þar má helst nefna Mouse stól og borð í hvítu ásamt bogadregnum spegli með krókum á, svo er dúkkuhúsið algjör klassík og myndi slá í gegn í öllum barnaherbergjum.

Það má vel leyfa sér að dreyma… sjáið þessa fegurð!

 

“Danska hönnunarmerkið NoFred skapar falleg og vönduð húsgögn og smávörur fyrir börn sem hvetja til samveru fjölskyldunnar. Hver vara er hönnuð með það í huga að heilla jafnt fullorðna sem börn og hefur þann eiginleika að falla vel að innréttingum heimilisins – og gerir það að verkum að vörurnar fá sín notið í fleiri rýmum en barnaherberginu einu. Með tímalausa hönnun, óaðfinnanleg gæði og framúrskarandi handverk munu NoFred vörurnar fara kynslóða á milli. ” Tekið af Epal vefnum. Fyrir áhugasama þá fæst NoFred í Epal.

Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu

SUMARLEGT OG SÆNSKT HEIMILI SEM HEILLAR ÞIG UPPÚR SKÓNUM

GarðurinnHeimiliStofa

Vá hvað það er skemmtilegt að fá að deila með ykkur svona ótrúlega fallegu heimili. Stofan, svefnherbergið og eldhúsið heillar mig uppúr skónum ásamt draumasvölum sem flestir gætu hugsað sér að eiga á svona sólríkum degi. Falleg listaverk á veggjunum setja sterkan svip á heimilið ásamt bláum sófa í stofunni, hér er nóg af litum og blómum og útkoman er algjört æði.

Kíkjum í heimsókn,

Myndir : Entrance Makleri fasteignasala

Fallegt ekki satt? Ég gæti svo sannarlega hugsað mér að búa hér!

Eigið góðan dag í sólinni – þangað til næst.

Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu

SYKURLAUS DÖÐLUKAKA MEÐ SÚKKULAÐI

AfmæliMatur & baksturSamstarf

Mmmmm ég hætti ekki að hugsa um þessa ljúffengu köku sem ég er nú þegar búin að baka tvisvar sinnum í sömu vikunni. Uppskriftin kemur upphaflega frá Guðrúnu Ýr sem heldur úti matarblogginu Döðlur og smjör og gaf mér góðfúslegt leyfi til að deila með ykkur. Afmælin okkar Birtu voru í síðustu viku (bloggfærsla um þau á leiðinni) og mér finnst alveg nauðsynlegt að bjóða líka uppá sykurlausar kræsingar við slík tilefni.

Í uppskriftina má að sjálfsögðu nota gott súkkulaði sem er ekki endilega sykurlaust, en ég kýs að nota sykurlaust Valor súkkulaði sem ég held mikið uppá og á alltaf til í mínum skúffum *samstarf. 

Döðlukaka // upphaflega frá Döðlur & Smjör blogginu

1 dl döðlumauk (6 ferskar döðlur & u.þ.b. ½ vatn)
4 eggjahvítur
100 g döðlur, saxaðar
50 g Valor sykurlaust súkkulaði (hægt að nota venjulegt suðusúkkulaði)
1 dl kókosmjöl

Setjið saman döðlur og vatn í pott á miðlungs stillingu og leyfið að malla þangað til það er orðið að mauki. (Mér finnst best ef ég á ekki til ferskar döðlur að saxa allar döðlurnar og bæta út í döðlumaukið ásamt smá aukavatni og kremja létt með sleif eða skeið þegar þær hafa mallað smá.) Þannig blandast döðlurnar betur við kökuna.

Stillið ofn á 170°c blástur.

Stífþeytið eggjahvíturnar, hægt er að kaupa saxaðar döðlur en ef þið notið heilar skerið þær niður í litla bita ásamt súkkulaðinu. Setjið döðlumaukið, döðlurnar, súkkulaðið og kókosmjölið saman við eggjahvíturnar og hrærið varlega saman með sleikju.

Spreyið 20 cm form að innan en einnig hægt að setja bökunarpappír í botninn. Skellið deiginu í formið og bakið í 15-20 mín. Leyfið kökunni að kólna.

Krem

100 g dökkt súkkulaði – Ég nota Valor sykurlaust ýmist ljóst eða dökkt:)
2 msk kókosolía
½ dl kókosmjólk (hægt að nota rjóma líka að mínu mati)

Setjið hráefnin saman í skál og bræðið saman yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni, leyfið því að kólna og taka sig í smá tíma, dreyfið kreminu síðan yfir kökuna.

Dásamlega góð kaka sem ég féll kylliflöt fyrir. Eina breytingin sem ég gerði er að nota sykurlaust súkkulaði og nota þá yfirleitt það sem ég á til af Valor í skúffunni, stundum með fyllingu eða hreint mjólkur- eða dökkt súkkulaði. Get sagt ykkur að allar útkomur eru góðar! Einnig hef ég prófað með ferskum og þurrkuðum döðlum, og finnst áferðin með ferskum döðlum nær skúffuköku því þá blandast allt svo vel saman, eða þá að hita þær þurrkuðu í potti með döðlumaukinu og smá aukaskvettu af vatni.

Mmmmm.

Ég er í samstarfi í dag við Valor – eftir langan tíma að hafa elskað þetta súkkulaði og keypt sjálf hundrað stykki. 

Uppskriftin er mjög einföld og hver sem er getur bakað þessa snilld!

Mæli svo sannarlega með að prófa og berið fram með rjóma!

Eigið góðan dag kæru lesendur – fylgist einnig með á Instagram @svana.svartahvitu