fbpx

TÍMARIT: MAN og NUDE SMÁRALIND

MAGAZINE

Tvö ný íslensk tímarit koma út í dag. 

Önnur útgáfa Nude Magazine fyrir Smáralindina. Þar sem að farið er yfir hausttískuna í trendum fyrir konur, menn og börn í tilefni tískudaga helgarinnar –

nude

.. og MAN, nýtt íslenskt tímarit um tísku lífsstíl og hönnun. Það er Björk Eiðsdóttir (fyrrum ritstjóri Séð og Heyrt) og Elín Arnar (fyrrum ritstjóri Vikunnar) sem að ritstýra blaðinu saman –

Forsíðan 1tbl

Alltaf gaman að fá nýtt lesefni. Og hvað þá ný tímarit á markaðinn.

Spennandi!

xx,-EG-.

KIM KARDASHIAN FYRIR CR Fashion Book

EDITORIAL

Þetta er útlit þriðju útgáfu tískutímaritsins CR Fashion Book. Tímarit sem að er í eigu fyrrum ritstýru Vogue, Carine Roitfelds. 
Forsíðuna prýðir engin önnur en ólétt Kim Kardashian mynduð af Karl Lagerfeld (!)

Svar Roitfelds afhverju hún valdi að hafa ólétta Kim á forsíðu tískutímarits var áhugavert –
“Pregnancy is something that I always love. It’s about hope and the future and a new baby. This is not something for a gossip magazine that goes into the trash. This is a magazine that is a collector’s item.”



Ég hef aldrei verið hrifin af “þessum” Kardashian systrum .. eða frekar kannski ekki gefið mér tíma til að “kynnast þeim”.
En það er bara eitthvað við óléttar konur … ég hrífst af þeim, alltaf!

Stílisering myndanna er bjútífúl. Ekki væmin eins og típiskar óléttumyndir heldur kúl og mjög mikið fasjón. Og mér finnst það virka! Það var Riccardo Tisci sem að stíliseraði.

Eitthvað sem að allir þurftu að sjá …. vonandi eru þið sammála :)

xx,-EG-.

HÚKT: MORROCAN TEA

BEAUTY

Manneskjan sem að aldrei nota ilmvatn er orðin alveg húkt á Morroccan Tea lyktinni frá &OtherStories. 

Þessi litla túpa er handáburður sem að ég hef í veskinu og var keypt á litlar 5 Evrur.
Einnig er til Body Lotion sem að ég gaf einu sinni í gjöf en verð að eignast sjálf fljótlega. Það var uppselt þegar að ég ætlaði að næla mér í slíkt um helgina.

L O V E – I T
Mæli með.

xx,-EG-.

ELM BY MATTHILDUR

ÍSLENSK HÖNNUNLOOKBOOK

Ó vá Elm í haust er fallegt … Og það er Íslandið okkar líka.

Íslenska fatamerkið er selt víðs vegar um heiminn og fókusar á konur sem að ekki endilega fylgja trendum heldur velja frekar tímalausa hönnun og góð efni. Elm hannar út frá innblæstri frá fallegri íslenskri náttúru og kúltúr en það skilar sér vel í myndbandinu fyrir ofan.

Ég er mjög hrifin.

Ég gat því miður hvergi fundið hver kom að þessu fína verkefni fyrir merkið.

xx,-EG-.

FRÁ TOPPI TIL TÁAR

FRÁ TOPPI TIL TÁAR

Enn á ný frá toppi til táar frá íslenskum verslunum.
Þetta mætti alveg hanga á minni fataslá.

10104864_WhiteAsparagus_001_ProductLarge

Notalegur í haustveðrinu. Er líka til í svörtu. Mig langar í báða // Vero Moda

1236004_548977708501503_2014440472_n-1
Fallega blóma blússa (!)  – // Lindex
g17
Five Unites over sized leðurbuxur – ansi fínar!  // Gallerí17

1175086_10151845217335734_1990042709_n-1

Dreymir um þessa frá One Hundred // GK Laugarvegi

Líkar ykkur við það þegar að ég deili með ykkur mínum útvöldu vörum á Íslandi hverju sinni? Þetta eru allt flíkur sem að mig langar að klæðast sjálfri. Og að klæðast þeim saman yrði ekki verra.
Haustið kallar …

xx,-EG-.

GÓÐAN DAGINN

Góðan daginn París á þessum fallega sunnudegi !

image image

Ég vaknaði fyrir 8 í morgun með fyrsta bollann og þetta útsýni. Fylgdist með verslunarmönnunum gera tilbúið fyrir daginn rétt fyrir neðan mig og fyrsta fólki koma út á göturnar – Fylgdist með borginni vakna. Pörfekt!

Njótið dagsins xx,-EG-.

DRESS

DRESS

Ég fagna í hvert skipti sem að ég fæ tækifæri til að klæðast síðbuxum í þessu skrtítna veðurfari sem að ég get enn ekki vanist.
Eitt kvöldið í vikunni notaði ég í fyrsta skipti Riding Pants í army lit frá 5UNITS. Ótrúlega þæginlegar (!) – Sem að er of stór kostur fyrir það að nota þær ekki fullt meira í haust.

Riding Riding

Sólgleraugu: RayBan Wayfarer
Bolur: COS
Blússa: H&M
Buxur: Five Units frá Gallerí17
Skór: Adidas
Veski: MarcJacobs

xx,-EG-.

FATASALA: REGINSDÆTUR

FATASALA

561568_10151848527790797_598326500_n

Smekklegar systur úr Hafnafirði halda sína árlegu bílskúrssölu í dag. Þær eru Reginsdætur og allar með puttann á púlsinum þegar að kemur að smartheitum. 

Við kjósum að selja einungis fínar vörur í góðu standi og má finna merki á borð við J.Crew, Karen Millen, DAY, Reykjavík Collection, AndreA, Boss, Didrikson, MOLO og margt, margt fleira. Segir Ása Regins, ein þeirra systra, á bloggsíðu sinni. 

 




1170889_10151851241400797_1794498112_n 1175445_10151852675585797_2123101101_n 1238273_10151849441480797_174254384_n

Hvar? Brekkuás 15 í hfj
Hvenær? Í dag, 31. ágúst – milli 1200-1700.

Meira: HÉR

xx,-EG-.

WORK

TRENDNET

Ég færði “skrifstofuna” í þetta ágæta umhverfi í dag –

photo st

Góður seinnipartsbolli, nóg að gera og sól á bakhliðina (henni veitti ekki af smá tani).

Bikinihaldari: H&M
Sólgleraugu: CheapMonday/Gallerí17

Gleðilegan föstudag –

xx,-EG-.