fbpx

KIM KARDASHIAN FYRIR CR Fashion Book

EDITORIAL

Þetta er útlit þriðju útgáfu tískutímaritsins CR Fashion Book. Tímarit sem að er í eigu fyrrum ritstýru Vogue, Carine Roitfelds. 
Forsíðuna prýðir engin önnur en ólétt Kim Kardashian mynduð af Karl Lagerfeld (!)

Svar Roitfelds afhverju hún valdi að hafa ólétta Kim á forsíðu tískutímarits var áhugavert –
“Pregnancy is something that I always love. It’s about hope and the future and a new baby. This is not something for a gossip magazine that goes into the trash. This is a magazine that is a collector’s item.”



Ég hef aldrei verið hrifin af “þessum” Kardashian systrum .. eða frekar kannski ekki gefið mér tíma til að “kynnast þeim”.
En það er bara eitthvað við óléttar konur … ég hrífst af þeim, alltaf!

Stílisering myndanna er bjútífúl. Ekki væmin eins og típiskar óléttumyndir heldur kúl og mjög mikið fasjón. Og mér finnst það virka! Það var Riccardo Tisci sem að stíliseraði.

Eitthvað sem að allir þurftu að sjá …. vonandi eru þið sammála :)

xx,-EG-.

HÚKT: MORROCAN TEA

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Helgi Omars

    5. September 2013

    Elísabet, þessi kona er svo gott sem SYSTIR MÍN! Downloada Keeping Up with The Kardashians núúúúna og kynnast elsku systrum mínum og frænkum!! hahaaha .. You are gonna looooove!

    • Elísabet Gunnars

      5. September 2013

      Haha – Já! .. næst á dagskrá. Þegar að ég gef mér tíma í það. Hef heyrt af fleirum sem að eru farnir að þekkja hana ansi persónulega.

  2. Dagný Björg

    12. September 2013

    Flottar myndir, fíla hvað hún er með látlausa förðun á myndunum.