Mér finnst það ágætis siður að byrja fyrsta dag vikunnar á góðum orðum. Ykkur líka?
Orð dagsins eru þessi að neðan.
Meikar sense.
xx,-EG-.

Mér finnst það ágætis siður að byrja fyrsta dag vikunnar á góðum orðum. Ykkur líka?
Orð dagsins eru þessi að neðan.
Meikar sense.
xx,-EG-.

Boston bauð uppá fallegt veður og mikinn kærleik með einni dýrmætri rétt fyrir helgi. Ótrúlegt hvað sólahringur í sól gefur mikið ..
Ég leyfi myndunum að tala sínu máli.
T A K K fyrir mig.
xx,-EG-.

Hvað ætlið þið að gera í dag? Ég ætla að njóta síðasta sunnudagsins á Íslandi í bili.
Náði að byrja daginn á innblæstri sem ég deili með mér …

Innan undir –
Langar í Triangle sólgleraugu til skiptana – mest langar mig í sólina sjálfa.
Þessi eru frá Dusen Dusen.
Hvaða týpa ert þú?

Brooke Gregson hringur á (minn) fingur –

Vetements AW14 – fyrir haustið –
xx,-EG-.

Yfir sumartímann virðist fólk duglegt við að hreinsa út og gefa fataskápnum nýtt líf með fatasölum hér og þar um bæinn. Um helgina veit ég um tvo flotta markaði sem vert er að kíkja á.
Annar þeirra er í dag og er staddur í Bíó Paradís, Hverfisgötu 54. En aðra hverja helgi í sumar eru haldnir markaðir sem allir geta tekið þátt í – sniðugt! Þar má finna eitthvað fyrir alla – vintage, vinyl, skartgripi auk fleiri gersema.
Hinn er á morgun og er staddur í höfuðstöðvum Króm að Smiðjuvegi 11 , en þar verða nokkrar fashionistur með mikið úrval tískuklæða til sölu á spottprís.
Er ekki tilvalið að þræða markaði í rigningunni?
Happy shopping!
xx,-EG-.

Söngkonan Karin Sveinsdóttir er mörgum orðin kunnug en hún hluti af hljómsveitinni Yong Karin ásamt Loga Pedro Stefánssyni.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Karin skapað sér persónulegan stíl sem gaman er að fylgja eftir.
Mér fannst tilvalið að birta “stílinn á Instagram” frá unga töffaranum sem á framtíðina fyrir sér – ég var ekki svona mikið með þetta þegar ég var 17 ára!
Hver er Karin Sveins?
Ég er 17 ára menntaskólastelpa sem hefur áhuga á tísku og list.
Hefur þú alltaf spáð í tísku?
Nei alls ekki, tískuáhuginn kviknaði samt þegar ég uppgötvaði Spice Girls, sem var nokkrum árum eftir á öllum öðrum.
Er hver dagur í lífi þínu útpældur þegar kemur að klæðaburði?
Ef ég hef tíma þá pæli ég í hverju ég klæðist en er oft á seinustu stundu þannig þá ég hendi mér í það sem er nálægast.
Áttu þér tískufyrirmynd?
Í rauninni ekki einhverja ákveðna. Mér finnst mest gaman að skoða streetstyle blogg og í augnablikinu held ég mikið upp á Mimi Elashiry – stelpu sem ég fann í gegnum instagram, mér finnst hún alltaf vera mjög kúl.
Framtíðarplön?
Ferðast og njóta lífsins.
Hvað er á döfinni hjá Young Karin?
Við erum að spila á Lunga art festival núna í vikunni, endurútgefum síðan EP plötuna okkar og spilum erlendis í lok sumars. Nóg að gera.
Takk fyrir spjallið @karinsveins
Það verður gaman að fylgjast með þér áfram.
xx,-EG-.

Bara ef ….
ég væri enn í Feneyjum.
Ég fletti í gegnum myndir og ó hvað stundirnar voru góðar. Þessir þrír dásamlegu dagar.
Kvöldklæðnaðurinn eitt kvöldið var klassísk Elísabet Gunnars – ég notaði reyndar nýjar fallegar perlur um hálsinn sem ég er rosalega ánægð með.
Bolur: Zara
Buxur: Zara
Blússa: H&M
Perlur: Gjöf
Skór: Bullboxer/GS skór
Buxurnar eru algjör snilld en ég keypti þær í franska fyrr í sumar. Sniðið er upphátt og rassvasarnir á réttum stað. Mæli með! Ef þær eru til hér á landi líka?
xx,-EG-.

Orð eins og þessi að neðan eru tilvalin til birtingar á fyrsta degi vikunnar, eins og stundum áður –

Það er svo auðvelt að smitast og því um að gera að minna sig á.
Stöndum með sjálfum okkur sama hvernig náunginn hagar sér. Tökum til okkar, alla daga, alltaf.
xx,-EG-.

Munurinn var mikill að rölta um í 101 í 10 gráðum+ og léttskýjuðu í gærkvöldi.
Elsku fallega Reykjavik – afhverju hefur þú verið svona léleg að sýna þitt fegursta þetta sumarið?

Ég fékk leðurjakkann að láni (mikið væri ég til í að eiga hann sjálf ….) en sagan segir að Ragga Gísla hafi klæðst honum í hlutverki sínu sem hin eina sanna Harpa Sjöfn Hermundardóttir (!) Er einhver fróður sem getur staðfest það?
Kjóll: Lindex
Gallabuxur: Zara
Skór: NY/Enzo Anciolini
Ljúft laugardagskvöld.
xx,-EG-.



Victoria Becham prýðir forsíðu breska Vogue í ágúst. Hlutverk frú Becham á myndunum er óraunverulegt miðað við það sem við þekkjum af henni, glansdrottningunni sjálfri.
Tvær forsíður fara í sölu og klæðist Victoria Prada á þeirri fyrri og Chanel á seinni.
Lúkkin að neðan eru til fyrirmyndar en mér finnst stíliseringin sérstaklega viðeigandi fyrir veðrið sem júlí hefur boðið okkur á klakanum uppá. Við ættum því að getað náð okkur í ágætis innblástur fyrir næstu gráu daga.
Fabjúlös að mínu mati.
xx,-EG-.

Mér finnst ný sólgleraugu vera eitt af því sem er must á mínum lista fyrir sumarið. Fylgihlutur sem við grípum mest í á þeim tíma.
Ég fékk fallega nýja RayBan týpu í afmælisgjöf í byrjun maí sem ég var efins með frá upphafi, eftir nokkra umhugsun ákvað ég að skipta þeim í þessi gömlu góðu – back to basic. Besta ákvörðun sem ég gat tekið!
Þó að mig hafi langað að vera voða pæja með nýja týpu á nefinu þá er örugga leiðin oft bara betri.. Ég er allavega í skýjunum með mín – klassísku WayFarer sem verða alltaf fyrir valinu þegar sú gula lætur sjá sig. Sem mætti auðvitað vera miklu miklu oftar hér á skerinu.
Mæli með!
xx,-EG-.



