Upptekin er nýr myndaþáttur eftir Svanhildi Grétu, fyrir Húrra Reykjavík. Í myndaþættinum er einblínt á þau vörumerki sem eru meira “high street” en “streetwear” innan veggja verslunarinnar. Þau merki eru Libertine-Libertine, Mads Nørgaard, Maria Black, Wood Wood, Filling Pieces, Han Kjøbenhavn, Norse Projects og Common Projects.
„Í myndaþættinum er innblástur dreginn frá skandinavískri fagurfræði. Minimalisma, einföldum formum og stílhreinu umhverfi er blandað við sterka liti, ríkuleg munstur og dýr efni. Hér er klæðaburður málaður upp sem eins konar stöðutákn með aðstoð valdeflandi umhverfis og andrúmslofts sem fyrirsæturnar þrjár skila óaðfinnanlega frá sér.”
Ljósmyndir: Svanhildur Gréta/Studio Holt fyrir Húrra Reykjavík
Stílisering: Irena Sveinsdóttir & Ída Pálsdóttir
Förðun: Sara Linneth
Fyrirsætur: Guðrún Kara, Hanna Soffía og Sólveig Baldursdóttir


















TRYLLTUR myndaþáttur enda miklir snillingar sem komu að honum. Ég er líka extra hrifin þar sem þessi merki eru akkúrat þau sem ég hef klæðst hvað mest á því ári sem hefur liðið síðan dömuverslunin var opnuð.
—
Andrea Röfn
Fylgið mér á Instagram og Snapchat: @andrearofn
Nýjustu skórnir í sneaker safninu eru Air Max Jewell frá Nike. Týpan var kynnt til leiks fyrir Air Max daginn 2017, en dagurinn er haldinn hátíðlegur í mars ár hvert. Jewell er annar skórinn í sögu Air Max sem eingöngu er hannaður fyrir dömur, en Air Max Thea hafði hingað til verið sá eini. Thea hefur gert mjög gott mót fyrir dömur, sérstaklega fyrir þær sem kjósa einfalda skó eða eru jafnvel að kaupa sína fyrstu sneakers og vilja ekki hafa þá of tæknilega eða stóra. Jewell finnst mér frábær nýjung í dömu Air Max flóruna og er persónulega mun hrifnari af þeim en Thea, sem er aðeins of einföld týpa fyrir sneakerhausinn mig. Það sem ég fíla helst við Jewell er að þeir eru töffaralegir en á sama tíma „clean” og dömulegir.



Jewell fæst víða. Skóna mína veit ég ekki hvar hægt er að fá á netinu, en þessar fjórar týpur eru fáanlegar í Húrra Reykjavík og á vefversluninni, hurrareykjavik.is -> hér.

—
Andrea Röfn
Ég var stödd á Copenhagen Fashion Week fyrr í mánuðinum ásamt Húrra Reykjavík teyminu. Prógrammið okkar var þétt og megintilgangur ferðarinnar að hitta fyrir merkin sem eru í búðunum og panta inn vörur fyrir seasonið spring/summer ’18. Ólafur Alexander markaðsstjóri tók fullt af skemmtilegum myndum og mig langar til að deila þeim með ykkur ásamt því að segja ykkur aðeins frá fundunum og merkjunum.
Fyrsti fundurinn var með danska merkinu Mads Nørgaard sem margar íslenskar stelpur og konur hafa mikið dálæti á, allavega miðað við vinsældir þess í Húrra. Merkið er þekkt fyrir rendur, skæra liti og kvenleg snið og hefur á undanförnum árum fært stóran hluta framleiðslu sinnar til Danmerkur. Það sem ég elska við Mads Nørgaard er að ákveðnir stílar halda áfram season eftir season, þ.e. stílar sem virka vel og eru vinsælir. Þar að auki koma inn nýir ferskir stílar hvert season.
Annar fundurinn okkar var með Robba snillingi hjá Puma. Ég er spenntust fyrir Basket Heart skónum sem eru væntanlegir núna í haust, þessum hér:
Við pöntuðum einnig mjög nice Suede platform týpur sem hafa vakið mikla athygli upp á síðkastið og líkjast Rihönnu creeperunum sem hún hefur einmitt verið að hanna fyrir Puma.




Næsta stopp var í showroominu hjá Han Kjøbenhavn, dönsku merki sem hingað til hefur bara verið fáanlegt fyrir herra. Fyrsta dömulínan heillaði okkur mikið með veglegum yfirhöfnum og track göllum í bland við hettupeysur, boli og gallabuxur í fáránlega góðum sniðum, efnum og litum. Ég er sjúk í þessa línu og hlakka til að eignast nokkrar flíkur úr henni. Til viðbótar við fatalínuna bættust við þrjú sólgleraugnasnið sem voru sérstaklega hönnuð fyrir dömur, en hingað til hafa öll sólgleraugu frá Han verið unisex og vakið mikla athygli. Ég get ekki hætt að hugsa um þessi sólgleraugu sem ég er með á neðstu myndinni, þau eru svo falleg.



Deginum lauk svo hjá vinum okkar í Rich & Hanc agency þar sem The North Face, Filling Pieces, Han Kjøbenhavn (herra) og Kappa var pantað.
Filling Pieces er eitt af mínum uppáhalds merkjum og mér finnst alltaf skemmtilegt að skoða og velja nýjar týpur frá því. Ég skrifaði um merkið síðasta haust HÉR. Ítalska merkið Kappa, sem hóf nýlega endurkomu sína, verður fáanlegt í dömubúðinni í fyrsta sinn á komandi vikum ásamt The North Face en bæði merkin hafa fengist í herrabúðinni hingað til.


Við eyddum einum degi á CIFF vörusýningunni þar sem við pöntuðum Champion, Ellesse og Common Projects. Öll merkin eru að gera skemmtilega hluti bæði fyrir dömur og herra og eru í auknum mæli að einbeita sér að því taka klassíska stíla og sníða á á sem fallegastan máta fyrir bæði kyn.
Um kvöldið héldum við svo á fund Norse Projects, sem hefur verið í báðum búðum frá upphafi. Norse klikkar ekki á gæðum og fallegum sniðum og ég get staðfest að maður verður smá háður merkinu vegna þess. Arnór kærastinn minn vill til dæmis varla líta við öðrum stuttermabolum eftir að hann byrjaði að ganga í Norse.
Næst síðasti dagurinn hófst á fundi með Stussy sem vart þarf að fjalla um enda er merkið alltaf með sitt á hreinu og blandar skemmtilega saman basic vörum við spicy stíla líkt og þessa sem sjá má á myndunum.
Á Fashion Week kynnti vinkona okkar Melissa Bech til leiks nýtt merki, Blanche. Ég fór og hitti hana í upphafi tískuvikunnar til að skoða línuna og ég get staðfest það að Blanche er komið til að vera. Línan er gríðarlega falleg, vel sett saman og úthugsuð og því hef ég mikla trú á merkinu. Blanche verður fáanlegt í Húrra Reykjavík frá janúar/febrúar 2018.
Laugardeginum eftir Fashion Week eyðum við yfirleitt með Libertine Libertine. Tökum okkur góðan tíma til að skoða og velja enda gríðarlega vinsælt merki í báðum búðum og stórar línur hvert season. Ég var ánægð með SS’18 línuna en líkt og síðustu season inniheldur hún mikið af settum, printum og fallegum yfirhöfnum. Kápan sem ég er í á myndinni að ofan er mín uppáhalds en hún mun koma bæði í navy og grænu, sem sjá má á Sigrúnu einni mynd ofar. Libertine Libertine er merki sem mér þykir vænt um og elska að ganga í. 




6 daga Fashion Week maraþoni lokið og fullt af fallegum vörum á leiðinni. Vonandi fannst ykkur gaman að sjá allar myndirnar og heyra örlítið um hvert og eitt merki – þið megið endilega smella á LIKE eða hjartað ef þið fílið svona færslur!
—
Andrea Röfn
Ég var stödd í vinkonuferð í Kaupmannahöfn fyrir stuttu og kíkti aðeins í Acne Studios í Illum þar sem ég fann algjöra drauma sumarskó. Heppnin var með mér því á þessum tíma voru útsölurnar byrjaðar en ennþá fullt fallegt í boði og skórnir voru á helmingsafslætti. Þar sem ég er flutt í sólina í Aþenu, og segi ykkur betur frá því fljótt, fannst mér þeir tilvaldir í skósafnið sem samanstendur aðallega af sneakers.





Það eru ekki nema 38 gráður hérna (!) þannig að skórnir fá svo sannarlega að sinna sínu hlutverki á meðan hitinn er svona svakalegur :-)
–
Andrea Röfn
Innblástur af outfittum fyrir Sneakerball Nike sem fer fram í Gamla Bíó á laugardaginn kemur. Mix af mínum uppáhalds týpum af Nike skóm – Cortez, Mayfly, Air Force 1, Flyknit Racer, Airmax 95 og 97, Zoom Spiridon og Plus TN. Cortez afar áberandi í þetta skiptið.






Ef þið hafið áhuga á að fara á Sneakerballið í Gamla Bíó á laugardaginn kemur kíkið þá endilega á Facebook síðu Trendnet þar sem við ætlum að gefa miða.
xx
Andrea Röfn
Við Arnór fórum loksins í frí í júní. Á leið okkar til Ítalíu stoppuðum við einn dag í París, einni af mínum uppáhalds borgum. Ég hef komið þangað þónokkrum sinnum en Arnór hafði komið einu sinni til að spila leik síðasta sumar og því ekki náð að skoða borgina. Á þessum eina degi tókst okkur að sjá mikið ásamt því að setjast niður inn á milli og njóta veðursins og félagsskaparins.






Kjóll: Libertine Libertine
Skór: Nike Mayfly Woven
Sólgleraugu: Dior


París er svo sannarlega borg ástarinnar! Næsta blogg verður svo um fríið á Ítalíu sem var dásamlegt í alla staði.
xx
Andrea Röfn
Outfit gærkvöldsins. Ég var í vinnunni til lokunar og svo var leiðinni heitið á Mamma Mia í Borgarleikhúsinu með foreldrum mínum og enginn tími til að fara heim og skipta um föt. Það fannst mér ágætis ástæða fyrir að fá mér eitthvað nýtt úr búðinni og þessar buxur frá Libertine Libertine sem ég hafði haft augastað á lengi urðu loksins mínar.
Leðurjakkinn er frá Mads Nørgaard úr Húrra Reykjavík líkt og buxurnar, en ég hef varla farið úr honum síðan ég fékk mér hann. Eins og þið hafið líklega séð í fyrri færslum þá á ég annan leðurjakka úr endurunnu leðri en þessi hér er miklu dekkri sem gerir hann einnig fínni fyrir tilefni sem þessi. Ég sé hann líka fyrir mér yfir kjóla í sumar, síddin á honum er tilvalin fyrir þá samsetningu.
Svo er ég ótrúlega ánægð með Nike Air Force 1 skóna sem ég fékk fyrir stuttu. Þeir eru alltaf svo klassískir og verða meira áberandi á næstunni en þeir hafa verið undanfarið. Svo passa þeir bókstaflega við allt.. finnst mér.


Buxur: Libertine Libertine
Bolur: Norse Projects
Skór: Nike Air Force 1
Leðurjakki: Mads Nørgaard
En svo urðum við fyrir því óláni að vera akkurat á Mamma Mia sýningunni sem þurfti að hætta í hléi vegna alvarlegrar bilunar í sýningarbúnaði. Við gerðum gott úr því og drifum okkur niður í bæ í drykk áður en við löbbuðum heim í einu fallegasta sólarlagi sem ég hef orðið vitni af. 


Að lokum langar mig að minna ykkur á Sumarsprengju Húrra Reykjavík sem verður í verslun og á netinu í dag og einnig á netinu út morgundaginn. Það er 20% afsláttur af öllum vörum í báðum búðum og fyrstu kaupum dagsins fylgja veglegir kaupaukar frá L’Oreal. Seinna í dag munu svo DJ Egill Spegill og DJ Sunna Ben þeyta skífum og drykkir frá Ölgerðinni í boði fyrir gesti og gangandi! Endilega kíkið og gerið góð kaup fyrir sumarið, til dæmis blómabuxur eða leðurjakka. Þið getið lesið meira um Sumarsprengjuna hér.
Eigið góða helgi
xx
Andrea Röfn
Vín er rosalega falleg borg, stútfull af sögu, menningu og fallegum byggingum. Ég skellti mér ásamt austurrískri vinkonu niður í bæ í Vín í síðustu viku en hitinn úti er orðinn rosalegur og var um 34 gráður þennan dag. Við fórum því bara úr einni búð í aðra, en ég hlakka mikið til að sýna ykkur meira af borginni þegar ég fer aftur út í sumar.

Kjóll: Weekday
Skór: Nike Air Max Plus TN Ultra
Ég keypti þennan kjól i Weekday daginn áður og skóna eignaðist ég líka fyrir stuttu. Mig hefur lengi langað í þessa týpu af Air Max og að þeir séu all white gerir þá perfect.
xx
Andrea Röfn
Í síðustu viku skilaði ég loksins BSc ritgerðinni minni í viðskiptafræði. Ritgerðina skrifaði ég með Hebu en við höfum verið við hlið hvorrar annarrar í náminu frá fyrsta degi. Þar sem áhugi okkar beggja á samfélagsmiðlum er mikill, og hefur verið það lengi, lá beinast við að skrifa ritgerðina í tengingu við þá. Hún ber titilinn: Hvernig nýtast samfélagsmiðlar íslenskum fyrirtækjum í markaðssetningu?


Eftir að ég setti inn myndina hér að ofan á Instagram fékk ég nokkrar spurningar út í bolinn og buxurnar. Bolurinn er frá Libertine Libertine og fæst í Húrra Reykjavík og buxurnar eru frá DKNY.

Ég er svo þakklát fyrir þessa manneskju <3 Tékkið á henni á instagram – @hebafjalars

Nú er ég komin í langþráð knús til hans – lífið gæti hreinlega ekki verið betra <3
xx
Andrea Röfn