fbpx

SNEAKERS OF THE DAY

HÚRRA REYKJAVÍKNIKESNEAKERSSNEAKERS OF THE DAY

Nýjustu skórnir í sneaker safninu eru Air Max Jewell frá Nike. Týpan var kynnt til leiks fyrir Air Max daginn 2017, en dagurinn er haldinn hátíðlegur í mars ár hvert. Jewell er annar skórinn í sögu Air Max sem eingöngu er hannaður fyrir dömur, en Air Max Thea hafði hingað til verið sá eini. Thea hefur gert mjög gott mót fyrir dömur, sérstaklega fyrir þær sem kjósa einfalda skó eða eru jafnvel að kaupa sína fyrstu sneakers og vilja ekki hafa þá of tæknilega eða stóra. Jewell finnst mér frábær nýjung í dömu Air Max flóruna og er persónulega mun hrifnari af þeim en Thea, sem er aðeins of einföld týpa fyrir sneakerhausinn mig. Það sem ég fíla helst við Jewell er að þeir eru töffaralegir en á sama tíma  „clean” og dömulegir.

Jewell fæst víða. Skóna mína veit ég ekki hvar hægt er að fá á netinu, en þessar fjórar týpur eru fáanlegar í Húrra Reykjavík og á vefversluninni, hurrareykjavik.is -> hér.

Andrea Röfn

CPH FASHION WEEK

Skrifa Innlegg