fbpx

#TRENDNEGLUR: AÐALVINNINGUR

INSTAGRAM

Úps. Ég fæ bara móral. Það eru greinilega margir sem að huga vel að nöglunum sínum. Og ekkert smá vel. Ég þarf að taka ykkur til fyrirmyndar.
Þáttaka helgarinnar í #TRENDNEGLUR á Instagram með @MaybellineReykjavik gekk vonum framar og inn bárust tæplega 800 myndir(!) á þessari einu helgi.
Þið eruð algjörir snillingar. Það er svo gaman þegar að lesendur taka þátt – þá verður miklu meira líf á síðunni.


Þessi fallega stílhreina mynd er á allan hátt með þetta! Litur 569 er sigurmyndin að þessu sinni. Bæði á nöglum og á bolla.
Verðlaunin eru sannarlega vegleg því að Maybelline Reykjavík ætlar sér að gefa 50.000 króna inneign til eigandans.

Til hamingju @mariablondal88 -hafðu samband á trendnet@trendnet.is fyrir frekari upplýsingar.

Það borgar sig að merkja við #TRENDNET á Instagram.

xx,-EG-.

 

COPY/PASTE

COPY/PASTE

Ég er örugglega ekki sú eina sem að dreymir um Balenciaga hringi –

S-Moda-April-2013-Anja-Rubik-by-Eric-Guillemain-Balenciaga-rings 2013-Fall-Paris-Elena-Balenciaga-rings

Fást: HÉR 

Vegna vinsælda hringjanna varð normal maðurinn uppspenntur þegar að Asos hannaði eftirlíkingu og setti strax í sölu fyrir sama tímabil.

ASOS-Stackable asos-rings-www.cocoandcowe.com_ IMG_4674 svdsv

Fást: HÉR

Það sem að við sjáum í hátískunni og dreymir um … sjáum við oft á lægri kjörum (og í lægri gæðum) mjög fljótt á eftir.
Þeir eru ekki alveg eins, en það er sama hugmyndin í gangi. Þeir ná að uppfylla trendið sem að Balenciaga skapaði.
Sitt sýnist hverjum. En það er greinilega eitthvað fyrir alla.

Fallegir eru þeir hringirnir.

xx,-EG-.

Í GÆR

LÍFIÐ

Ég kom til landsins í fyrri nótt. Ég nýtti tækifærið í gær til þess að hitta vinkonur í dásamlegu Laugar Spa og dinner á nýjum stað, Cava, niðri á Laugavegi. Yndislegt að loksins hitta sínar en vegna flugþreytunnar gat ég ekki valið betri stað en afslöppunina í baðstofunni – pörfekt.

DSCF9485 DSCF9443 DSCF9454 DSCF9482 DSCF9479 DSCF9473 DSCF9488 DSCF9492 DSCF9493 DSCF9497 DSCF9496 DSCF9508

Eftir svona góðar stundir verður auðvelt að takast á við langa viku … Fylgist með. Það verður spennandi að segja ykkur frá áhugaverðum atburði að vegum Trendnet í næstu viku.

xx,-EG-.

HAUSTKÁPAN

SHOP

Ég mátaði þessa fyrr í vikunni. Pörfekt í sniðinu að mínu mati og góð kaup fyrir það leiti hvað hún er tímalaus.
Langaði … 

.. og eignaðist svo í gær.

Maðurinn minn var dúlla því að hann keypti hana fyrir mig og gaf mér rétt áður en að ég tók flugið frá franska. Eflaust reyndar vegna þess hversu oft ég var búin að minnast á hana þessa þrjá daga síðan að ég mátaði hana. Vildi líklega losna við “suðið”. Úps.

Takk Gunni ♥

Frá Zara 

xx,-EG-.

 

HEIMSÓKN: VARMA

HEIMSÓKN

Já núna er ég á leiðinni til landsins, einsömul í vinnuferð. Ég er voða spennt en ég get ekki sagt að ég sé spennt fyrir kalda veðurfarinu sem að bíður mín. Það er eins gott að klæða sig vel! Það er greinilega komið haust. Og það minnti mig á heimsókn í Varma fyrr í sumar.

Varma er stærsti framleiðandi í prjónavöru á Íslandi. Aðal vörumerki fyrirtækisins er Varma The warmth of Iceland, ásamt hönnunalínunni Blik. Helstu framleiðsluvörur fyrirtækisins eru sokkar, vettlingar, húfur, hárbönd, treflar og sjöl, ásamt  allskyns flíkum úr íslenskri ull, einkum slám, peysum og kápum. Varma selur þó ekki aðeins undir sínu eigin merki því mjög margar af þeim prjónavörum sem að við kaupum frá íslenskum hönnuðum koma einnig úr sömu verksmiðju. Allavega þær al-íslensku en því miður framleiða mörg íslensk fyrirtæki erlendis.

Hjá Varma er lögð áherslu á að þróa og nýta íslenska ull í hágæða íslenska vöru enda eru gæði íslensku ullarinnar og mokkaskinnsins einstök.

Þjóðarstoltið varð heillað eftir þessa heimsókn –  það er gott að vita til þess að íslenskt haldi á manni hita.

DSCF6259

Vík Prjónsdóttir –

DSCF6253
Þarna sjáið þið glitta í áþekka Farmers Market efnið –

DSCF6249 DSCF6236 DSCF6231 DSCF6230  Mátað frá Blik – DSCF6225 DSCF6219 DSCF6212_2 DSCF6208

Mokka draumavesti – DSCF6200 DSCF6199 DSCF6196 DSCF6184

Svona ættum við allar að eiga í einum lit … þessir eru bestir!
DSCF6183

Mjög áhugaverð og skemmtileg heimsókn … Takk fyrir mig.

xx,-EG-.

STJÖRNUSPÁ SIGGU KLING Á TÍSKA.is

ALMENNT

Stjörnuspáin á Tíska.is hefur heldur betur slegið í gegn. Það er engin önnur en Sigga Kling sem að gerir spánna og nær henni fram á skemmtilegan og sannfærandi hátt. Spáin kemur inn á hálfsmánaðar fresti og flestir fésbókar vinir mínir láta það ekki fara fram hjá mér.
Ný spá kom inn í gær. Ég mæli með að þið kíkið á ykkar merki.

Ég er Naut … Þú líka?

NAUT

,,Þú ert að átta þig á því þessa daganna hvað er mikilvægast í lífinu, elsku naut.  Ekki það að þú hafir ekki alltaf vitað það innst inni, en málið er það að það er fjölskyldan sem skiptir öllu máli.”

Þó að það séu búnar að vera áhyggjur af fjölskyldumeðlimi sem hafa hrukkað aðeins ennið þitt munu þau vandamál leysast og þetta er tími bjartsýninnar.  Ekki einu sinni hugsa um að fylla þessar hrukkur með bótoxi, þetta jafnar sig.

Ævintýrin eru að kalla á þig og láttu hjartað ráða för í öllum ákvarðanatöku sem snúa að ást og fjölskyldu.  Aðlaðandi orkan þín mun hafa það mikil áhrif á aðra að það er sama hvað þú biður um, já verður svarið.

Það eru einhverjir erfiðleikar í stöðunni sem má rekja til fortíðar. Ekki láta það eyðileggja daginn, það er seinni tíma vandamál.

Það eru töfrar og galdrar í kringum þig svo mundu það bara að trúa að hlutirnir fari á besta veg og hættu allri neikvæðni því hún stuðlar aðeins að þunglyndi sem gerir lífið svo asskoti leiðinlegt og það veistu vel.  Í nautsmerkinu eru andlegustu verurnar, munið það, og það er ykkar að skapa skemmtilegra líf.


  

Öll stjörnumerkin finnið þið: HÉR

Hreinskilni og bjartsýni inn í þennan ágæta föstudaginn þrettánda ..

xx,-EG-.

LANGAR: LA PYRAMIDES DE PERLES

LANGARSHOP

Ég get ekki hætt að hugsa til perlueyrnalokka skartgripahönnuðarins Sophie Bille Brahe – þeir eru svo sannarlega ekki þessar típisku perlur sem að við áttum allar sem börn heldur svo miklu meira fasjón og svo virkilega fallegir á eyranu. Efst á óskalistanum þessa dagana … Það má láta sig dreyma. En vörulínan, La Pyramaides de perles er ný og kemur í verslanir í nóvember. Ég kannski stelst til þess að (allavega) snerta þá og virða þá þannig betur fyrir mér, í Colette – næst í París.

Elipse dor
bille1

xx,-EG-.