fbpx

HEIMSÓKN: VARMA

HEIMSÓKN

Já núna er ég á leiðinni til landsins, einsömul í vinnuferð. Ég er voða spennt en ég get ekki sagt að ég sé spennt fyrir kalda veðurfarinu sem að bíður mín. Það er eins gott að klæða sig vel! Það er greinilega komið haust. Og það minnti mig á heimsókn í Varma fyrr í sumar.

Varma er stærsti framleiðandi í prjónavöru á Íslandi. Aðal vörumerki fyrirtækisins er Varma The warmth of Iceland, ásamt hönnunalínunni Blik. Helstu framleiðsluvörur fyrirtækisins eru sokkar, vettlingar, húfur, hárbönd, treflar og sjöl, ásamt  allskyns flíkum úr íslenskri ull, einkum slám, peysum og kápum. Varma selur þó ekki aðeins undir sínu eigin merki því mjög margar af þeim prjónavörum sem að við kaupum frá íslenskum hönnuðum koma einnig úr sömu verksmiðju. Allavega þær al-íslensku en því miður framleiða mörg íslensk fyrirtæki erlendis.

Hjá Varma er lögð áherslu á að þróa og nýta íslenska ull í hágæða íslenska vöru enda eru gæði íslensku ullarinnar og mokkaskinnsins einstök.

Þjóðarstoltið varð heillað eftir þessa heimsókn –  það er gott að vita til þess að íslenskt haldi á manni hita.

DSCF6259

Vík Prjónsdóttir –

DSCF6253
Þarna sjáið þið glitta í áþekka Farmers Market efnið –

DSCF6249 DSCF6236 DSCF6231 DSCF6230  Mátað frá Blik – DSCF6225 DSCF6219 DSCF6212_2 DSCF6208

Mokka draumavesti – DSCF6200 DSCF6199 DSCF6196 DSCF6184

Svona ættum við allar að eiga í einum lit … þessir eru bestir!
DSCF6183

Mjög áhugaverð og skemmtileg heimsókn … Takk fyrir mig.

xx,-EG-.

STJÖRNUSPÁ SIGGU KLING Á TÍSKA.is

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. G

    13. September 2013

    Þessi vesti eru geðveik! Í hvaða verslun varstu í?

    • Elísabet Gunn

      14. September 2013

      Ég er sammála!
      Ég heimsótti showroomið hjá þeim þegar að ég mátaði það. Ég þarf að komast að því betur hvar hvað fæst! Læt það svo hér undir.

  2. Dóra

    15. October 2013

    æi afsakið afskiftasemina :) enn ég veit hvar vestin fást. Þau fást í Cintamani Bankastræti,

    • Elísabet Gunnars

      16. October 2013

      Alls engin afskiptasemi. Takk kærlega fyrir þá fínu ábendingu. :)