fbpx

FRÁ TOPPI TIL TÁAR

FRÁ TOPPI TIL TÁAR

Ég hef fundið fyrir miklu þakklæti frá lesendum þegar ég gef kauptips á blogginu inn í helgina. Í þetta sinn tók ég saman hversdagslúkk sem ég myndi sjálf klæðast með vorinu – allt vörur frá íslenskum verslunum eins og ég reyni að tileinka mér.

Ég hef alltaf verið hrifin af einfaldleika í klæðaburði og þetta dress er engin undantekning. Allt eru þetta flíkur sem ég sé mikið notagildi í hvernig sem þeim er parað saman, í þetta sinn á afslappaðan hátt.

//

I paired together a dress for the Icelandic spring – relaxed for the everyday life. Basic is always best and all the items can be used in so many ways. And like always, you can find it all in Icelandic shops.

 

dresstopp

 

Derhúfa/Cap: Ralph Lauren – Mathilda Kringlan
Jakki/Jacket: Carhartt – Húrra Reykjavík
Gallabuxur/Cropped jeans: Lindex
Skyrta/Blouse: FilippaK – GK Reykjavík
Skór/Sneakers: Adidas – Stan Smith

Happy shopping!

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR

&
Trendnet á Facebook – HÉR

 

Gellan í GoodHood

FASHIONFÓLKINSPIRATION

English version below

Maðurinn minn er að followa verslunina GoodHood í London (@goodhood) á Instagram. Það er ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að hann er alltaf að sýna mér myndir af þessari gellu sem er eitthvað svo svöl. Hún virðist vera algjörlega með sinn stíl, þó hún velji fötin alveg pottþétt ekki sjálf í þessu tilviki. Á öllum þeim myndum sem ég sé af henni er hún alveg með’etta.
Verslunin virðist líka vera rosalega flott, hipp og kúl og það er gaman þegar maður uppgötvar slíkt í gegnum samfélagsmiðla. Ég mun leggja leið mína þangað í næstu ferð til Lon og don.
Ég varð að fá að deila þessum töffara með ykkur ásamt nokkrum skemmtilegum kvótum frá síðunni þeirra. Auka “sunnudags” innblástur á þessum ágæta öðrum degi í páskum.

Screen Shot 2016-03-28 at 8.28.54 PM
Apiece Apart

Screen Shot 2016-03-28 at 9.46.17 PM
Ástin …

Screen Shot 2016-03-28 at 8.27.49 PM
Baserange

Screen Shot 2016-03-28 at 8.29.30 PM
Comme des garçons

Screen Shot 2016-03-28 at 9.45.27 PM
Gott að vera bestur í að vera góður

Screen Shot 2016-03-28 at 8.28.26 PM
mm6 – margiella – unusedlevis vintage clothing

Screen Shot 2016-03-28 at 8.27.23 PM

Layers fyrir vorið

Screen Shot 2016-03-28 at 8.27.00 PM
LF Markey

Screen Shot 2016-03-28 at 8.26.36 PM
Aries + Alexander Wang skór

Screen Shot 2016-03-28 at 9.44.11 PM
Svo sammála – þessi Valentínusardagur ekki minn tebolli

Screen Shot 2016-03-28 at 8.26.16 PM
Ganni

Screen Shot 2016-03-28 at 8.25.44 PM
Barena

Screen Shot 2016-03-28 at 9.47.16 PM
Stundum er bara allt í CHAOS!

Screen Shot 2016-03-28 at 8.25.14 PMDesigners Remix + Vans

Ég vona að þetta gefi ykkur einhver outfit inspiration inní vorið.

//

My husband is always showing me this cool chic from the Instagram account of the London based shop – GoodHood.
I wanted to share some of her looks with you – there is something about her…

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR

&
Trendnet á Facebook – HÉR

SUNNUDAGS INNBLÁSTUR

INSPIRATION

Þið eruð örugglega mörg með tövluna í fanginu og í þessum mikla letigír sem fylgir páskadegi ár hvert. Gleðilegan súkkulaðidag. Nú sit ég barn í annarri og tölvuna í hinni og fletti í gegnum innblástur sem mig langar að deila með ykkur.

//

Easter sunday is more lazy than other sundays …. Here you have inspiration to look at.

3202d591fdf5dfe59622202abe8dd3ab

Eru ekki allir í stuði?
/ Happy time –

9160cc633f1cb5683f7a86b9899d5cd4
Ég er byrjuð að plana sumarfríið. Strönd, vatn og slökun eru efst á óskalista …
/ Dreaming of summer vacation –

b14163718f16e9dbc5ef142891253c74

Ástin ..
/ Love –

natalia-vodianova-shot-by-mario-testino-for-vogue-uk-may-2008

Þessi mynd er viðeigandi í dag ..
/ Easter bunnie –

c

Gleðilega páska ..
/ Happy Easter –

daria-werbowy-by-vanmossevelde-n-for-marie-claire-france-march-2016-1

Einfalda sunnudags dressið. Stígvél og prjónapeysa í yfirstærð.
/ Sunday outfit inspiration –

Filippa K

Á óskalista. Þessi nude leðurjakki til vinstri. Frá: Filippa K ..
/ Wanted. From: Filippa K –



ShoesLouisVuitton
Draumaskór frá Lous Vuitton ..
Dreaming of these Lous Vuitton  –

smafolkid

Einfalt og fallegt á smáfólkið ..
/ Basic for the little ones –

FullSizeRender

Annars er planið ekki flóknara en nákvæmlega svona
/ Plan of the day –

_

Eigið gleðilegan dag með ykkar fólki.
Happy easter everyone

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR

&
Trendnet á Facebook – HÉR

SHOP: SMEKKBUXUR

SHOP

Í desember talaði ég um löngun mína í CK smekkbuxur sem urðu á vegi mínum í GK Reykjavík. Alla meðgönguna langaði mig nefnilega að klæðast smekkbuxum í góðu sniði, það varð þó aldrei raunin. Í vikunni fjárfesti ég loksins í góðum buxum þegar ég rakst á þær á búðarölti. Þær sem ég keypti eru meira aðsniðnar með styttri skálmum og ég held að ég verði svaka pæja í þeim í sumar.

//

Dungarees were on my wishlist for some time. I found a nice pair in Monki (Lisa dungarees) this week and I couldn’t resist. I look forward to wear them this summer.

0350988001_0_0 IMG_4571

Halló frá mátunarklefa Monki / Hi from Monki

Eigið langan og ljúfan föstudag.

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR

&
Trendnet á Facebook – HÉR

STÍLLINN Á INSTAGRAM: RAKEL

FÓLKINSTAGRAMSTÍLLINN Á INSTAGRAM

unspecified

Rakel Tómasdóttir er ung kona á uppleið. Ég fylgi henni á Instagram þar sem hún deilir gjarnan sínum bullandi hæfileikum en hún er svakalega klár að teikna og ég á stundum ekki til orð yfir því sem hún skapar. Eftir að hafa fylgst með henni í nokkra mánuði á þessum ágæta samskiptamiðli þá gat ég ekki annað en fengið að forvitnast örlítið um stúlkuna. Pant eignast verk eftir þessa kláru konu einn daginn … þó þau séu nú reyndar ekki til sölu enn sem komið er. Ég held í vonina, þið sjáið hversvegna, hér að neðan –

Hver er Rakel Tómasdóttir?
Þangað til ég útskrifast kýs ég að kalla mig grafískan þræl, þar sem grafískur hönnuður er verndað starfheiti. Annars er ég
nemí í LHÍ,  hönnuður hjá tímaritinu Glamour, fyrrverandi fimleikastelpa, nörd, laumu goth, sem elskar kaffi og innbirðir óeðlilegt magn af súkkulaði

Hvað veitir þér innblástur?
Það getur verið mjög mismunandi, mér finnst mannslíkaminn mjög áhugavert viðfangsefni og hvernig fólk hreyfir sig og hagar sér, hvað það er sem gerir fólk berskjaldað. Annars reyni ég bara að lifa eftir ráðum Grace Coddington: “Always keep your eyes open. Keep watching. Becaus whatever you see can inspire you.”

A eða B manneskja?
A manneskja á sumrin og B manneskja á veturna, ég lifi mig voða mikið inní árstíðirnar.

Hvaða hlut gætir þú ekki verið án?
Ég og fartölvan mín erum mjög nánar … en fyrir utan hana þykir mér mjög vænt um kríu hálsmenið mitt, sem ég er næstum alltaf með.

unspecified-1

Uppáhalds verslun?
Monki

Afhverju Instagram?
All sem ég geri, og bara hvernig ég hugsa, er mjög myndrænt og instagram hentar mér því mjög vel. Svo er instagram líka mjög góður vetvangur til að koma sér á framfæri og skoða hluti sem aðrir eru að gera.

Hvað er á döfinni?
Ég útskrifast úr grafískri hönnun í vor og er á fullu að klára útskriftarverkefnið mitt núna, sem er að hanna letur. (@silktype á instagram) Svo erum við í Glamour auðvitað alltaf að vinna að næsta blaði. Ég held ég hafi aldrei lært jafn mikið á stuttum tíma eins og þetta ár sem ég er búin að vinna hjá Glamour og þá sérstaklega af snillingunum sem ég er að vinna með. Ég hlakka til að geta staðið enn betur þar eftir útskrift.
Annars finnst mér grafísk hönnun fyrir tísku mjög skemmtileg og það á mjög vel við mig svo mig langar að halda áfram á þeirri braut. Það er endalaust af möguleikum og tækifærum út um allt, maður þarf bara að taka eftir þeim.

Takk @rakeltomasd fyrir að leyfa okkur að kynnast þér örlítið betur.
Við eigum alveg örugglega eftir að sjá meira af þessu hæfileikabúnti í framtíðinni.

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR

&
Trendnet á Facebook – HÉR

ÚTSÝNIÐ

LÍFIÐWORK

English version below

Jæja … Gleðilega nýja vinnuviku. Ég hef sjaldan verið eins peppuð á mánudegi eins og ég er í dag. Síðasta vika einkenndist af hinu mesta heilsuleysi og ég hélt að flensan ætlaði engan endi að taka. Í 7 (!!) daga var ég með háan hita og beinverki og í dag er ég loksins með sjálfri mér aftur – Halelúja!

Ég nýtti tækifærið og færði vinnuna í notalegra útsýni þennan morguninn. Hér hefur margt safnast upp og um að gera að fara að spýta í lófana ….

IMG_4447

Kaffi: Latte, Matur: Hafragrautur með kókosflögum og berjum, Tölva: Apple, Skór: Isabel Marant,
Sokkar: Topshop, Buxur: Lindex, Blússa: H&M Trend

IMG_4449

Áfram gakk! Eigið góðan dag ♡

//

Finally !! I am back on track after 7 days (!) with fever, I never get sick so this was very hard week for me. Today I went out with my computer and this is my Monday view – love it!
Have a nice day ♡

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR

&
Trendnet á Facebook – HÉR

FRÁ TOPPI TIL TÁAR

FRÁ TOPPI TIL TÁAR

English version belowtoppita

Þegar fer að vora þá tökum við fram sólgleraugun, reimum á okkur strigaskóna og skiptum varalitnum út fyrir nærandi varasalva. Það er ánægjulegt að sjá að það virðist vera vor í lofti víða þessa dagana, þar á meðal á Íslandi. Þó sú gula skíni skært þá má þó ekki gleyma að kíkja á hitamælinn sem segir okkur að það er ekkert t-shirt veður .. ekki ennþá!
Eins og þið vitið þá hef ég tileinkað mér að setja saman kauphugmyndir “Frá toppi til táar” hér á blogginu. Í þetta sinn ákvað ég að reyna að fara eins ódýra leið og möguleiki er á – úrvalið í ódýrari deildinni er alltaf að breikka og við fögnum því að sjálfsögðu. Hugmynd af helgardressi fáið þið hér að neðan ..

 

S0000007389818_F_W40_20160211145014-1

Kápa: Lindex – verð: 13.355,- 2875

 

Sólgleraugu: Lindex – verð: 2875,-
baby-lips-balm-blushVarasalvi: Maybelline – verð: 990,-

JT52701210-kr.2.460 kr.

Rúllukragabolur: F&F – verð: 2.550,-vijaku new shirt

Skyrta: Vila – verð: 6.390,-   jl521195-HJ52419307 - 4.930kr.Buxur: F&F – verð: 4.930,-

skorSkór: Skechers – verð: 13.995,-

//
I am used to put together “From top to toe” posts here on my blog. This time I tried to find some items that will not terminate your monthly budget.
So here you have some fairly priced dress – all from shops in Reykjavik with Icelandic prices.
The sunnies will soon be your most important accessory. The spring is coming even though it is no t-shirt weather yet. So in my opinion this could be the perfect casual dress for this time of the year.

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR

&
Trendnet á Facebook – HÉR

Rubens ECO Buds

LANGARSMÁFÓLKIÐ

English version below

Þessar fallegu dúkkur urðu á vegi mínum á Facebook í gærkvöldi. Petit.is mun hefja sölu á þeim í byrjun apríl.
Ég hef verið með opin augun fyrir taudúkku fyrir son minn og ég held að þessi verði fyrir valinu. Strákadúkkan heitir Aspen og hann er voða velkominn í okkar fjölskyldu, þar að segja ef ég næ eintaki. Þær eru víst svo vinsælar að verslunin hefur beðið viðskiptavini að vinsamlegast forpanta vilji þeir tryggja sér eintak. Dúkkan er úr 100% lífrænu bómul og pakkningin er úr endurunnum pappa. Bio er einhvernveginn alltaf betra.

 

12832364_447950655415135_8374149296175380972_n 10639487_447945678748966_1629870538508606168_n 10330380_447946322082235_923608640549594519_n 12798955_447947712082096_4392376844344134041_n 12096563_447946405415560_8446592256015071955_n

Sætar fyrir smáfólkið.

Langar ..

 

//

Rubens Eco buds is a good new buddy for my little Manuel. The little buddies are made from 100% organic cotton and the package from recycled paper. It will be available at petit.is in beginning of April. The little boy doll is called Aspen and he will be very welcome at our home.

 

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR

&
Trendnet á Facebook – HÉR

LAUGARDAGSLÚKK

DRESSLÍFIÐ

English version below

IMG_4026

Ég er byrjuð að finna lyktina af vorinu hérna hinu megin við hafið og það er ástæðan fyrir sólheimaglottinu á mér hér að ofan. Þarna var ég nýbúin að finna fyrsta blossom tréð sem var byrjað að blómstra, ég held að þetta sé minn uppáhalds vorboði. Ég get ekki beðið eftir því að þessi tré sýni sitt fallegasta og þá mun ég án efa deila með ykkur myndum.

IMG_4032 IMG_4033

Sólgleraugun eru ný, algjört uppáhald – segi ykkur betur frá þeim síðar.

Trefill: Lindex
Kápa: Zara
Buxur: Levis vintage
Skór: 67 / GS skór
Sólgleraugu: Céline

//

The spring is slowly coming and I was happy to find the first blossom tree showing some colors. I can’t wait to see the trees in couple of weeks, one of my favorite things about the spring.
I was wearing: Scarf: Lindex / Jacket: Zara / Jeans:Levis Vintage / Shoes: 67 / Sunnies: Céline (new)
.

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR

&
Trendnet á Facebook – HÉR

66°NORÐUR X OR TYPE

ÍSLENSK HÖNNUN

English version below

10647813_10153586772297568_2131402999_n

Góðan daginn .. héðan.

Ég get því miður ekki tekið þátt í Hönnunarmars að miklu leiti þetta árið. Eins mikið og ég myndi vilja það.
Í dag tek ég þátt í hátíðinni með 66°Norður og Or Type með því að bera þessa fínu íslensku húfu á höfði inn í helgina. Um er að ræða nýja útgáfu af húfukollunni vinsælu og nýtt letur sem er sérhannað af Or Type fyrir 66°Norður. Or Type er fyrsta og eina sérhæfða leturútgáfa Íslands.

Mín húfa kom í póstinum í gær og herra Jónsson “stal henni” úr póstkassanum og svona var hann þegar ég hitti mína menn í hádegisdeiti. Ég gæti trúað því að hann eigi eftir að nota hana meira en ég, enda myndarlegur með meiru.

IMG_3819
Manuel fékk enga 66 húfu að þessu sinni en er sætur með sína íslensku hönnun frá Ígló&Indí

IMG_3815

 

 

 

 

66 stendur fyrir 66°Norður – Or stendur fyrir Or Type – og 90 stendur fyrir 90 ára afmæli Sjóklæðagerðarinnar.

IMG_3816

Í dag verður sérstök kynning á húfunni milli kl. 17 og 19 á Skólavörðustíg 12. Tilvalið að koma þar við fyrir þá sem ætla að þræða sýningar dagsins. Svana á Svart á Hvítu er með puttan á púlsinum varðandi hvað er í boði og deilir hverjum degi fyrir sig á blogginu: HÉR

//

66°North made a special winter beanie with the Icelandic font designer Or Type. The collaboration is a part of Design March in Iceland and will be launched today at Skólavörðustígur 12 in Reykjavík.

I got mine in the post yesterday but Gunnar stole it right from the post box. He was wearing it yesterday in our first outside lunch this year. The spring is very welcome!

More: HERE

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR

&
Trendnet á Facebook – HÉR