fbpx

LÍFIÐ: AFMÆLISSTÚLKA

LÍFIÐ

Ég fagnaði afmælisdeginum hér í franska í gær. Tók á móti góðum gestum frá Íslandi og naut dagsins með þeim og mínu fólki.
Jónsson kom færandi hendi með pakka og blómvönd sem fangaði hamingjusama mómentið hér að neðan hjá mikla afmælisbarninu. Ég sýni ykkur hvað var í pakkanum fljótlega.

photo 1photo 4
photo 3

Já! Þó ótrúlegt megi virðast, þá kláruðu allir afmælisburgerinn ala Sissi (mágur).
Naaammiii …

photo10171007_10152129640467568_5239388850448934322_n
Það sem gleður mig mest á afmælisdögum eru kortin sem fylgja með afmælispökkunum. Ég fékk þrjú slík í gær sem öll hittu í mark, en eitt stóð uppúr og það var frá dóttur minni útbúið af henni sjálfri af mikilli einlægni:

“Til MÖMMU
FRÁ ÖLBU

VIÐ ELSKUM ÞIG

.. mér finnst ég rík.

photo
Í gær klæddist ég kjól frá &OtherStories sem ég keypti mér í Paris um helgina. Skórnir eru líka nýjir frá GS skóm, merkið er ódýra fína Bullboxer (!)

photo 20194166003_1_100011 1535025_762796300418300_5789650588489291971_n

Ansi góður afmælisdagur.

takk fyrir mig.

xx,-EG-.

KJÓLARNIR Á MET GALA 2014

Skrifa Innlegg

6 Skilaboð

  1. Sólveig

    7. May 2014

    Þú ert alltaf jafn flott og vel til fara, til hamingju með afmælið :) – Mig vantar samt hjálp, veistu hvar ég fæ fallegan útskriftarkjól ?

    • Elísabet Gunnars

      8. May 2014

      Takk fyrir það Sólveig.
      Ég skal reyna að finna hugmyndir og setja í póst :)

  2. Andrea

    11. May 2014

    Ég á einmitt sama kjól í þessum fjólubláa lit. Hefuru prófað að þvo hann? Rennilásinn varð allur bylgjóttur á mínum :/

    Takk fyrir öll þessi frábæru blogg, þú ert æði :)

  3. Sara

    26. May 2014

    Þetta er ekkert smá sætur kjóll , en þeir senda ekki til Íslands veistu hvort það sé hægt að finna hann á eitthverri síðu sem sendir á klakann?

    • Elísabet Gunnars

      26. May 2014

      Því miður er ég ekki alveg sure á því fyrir þig. Ég skal reyna að kanna það betur og svara aftur hér eða ef þú sendir mér póst á eg@trendnet.is

  4. Sara

    26. May 2014

    Takk kærlega ég sendi þér póst :)