Home office:
hér er allt í blóma og þetta er margra bolla mánudagur ..
Gleðilegan mánudag, vikuna eftir að við hjónin áttum bæði afmæli og ég keyrði mig í kaf á Hönnunarmars. Um helgina hélt lífið svo áfram í framkvæmdum hér á B27 þar sem allt er í blóma. Takk allir sem kíktuð við á vel heppnaða viðburðinn okkar í Sjöstrand á afmælisdaginn minn – takk Hönnunarmars fyrir mjög frábæra hönnunarhátíð.
LESTU LÍKA: KAFFIBOÐ Í SJÖSTRAND: GERSEMAR EFTIR STUDIO ALLSBER TIL SÖLU
LESTU LÍKA: HÖNNUNARMARS Í MYNDUM
Á afmælinu mínu klæddist ég bláu notalegu setti sem fékk mikið lof. Það var keypt samdægurs á hlaupum eins og ég á til að gera. Ó hvað ég elskaði að para nýja rauða íslenska eyrnalokka (kynntir á Hönnunarmars) við æpandi bláa litinn – kom vel út.
Skyrta: Lindex, Buxur: Lindex, Eyrnalokkar: Hlín Reykdal, Skór: Gia Borghini/Andrá
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg