Kápan er gjöf frá Notes Du Nord
Halló fallega nýja haustflík – þú ferð stofunni minni svo vel!
Það er smá synd að hitatölurnar hækkuðu sama dag og þessi barst í hús. Ég verð því að bíða örlítið með að nota hana … en sjáið þið hvað þessi camel kápa passar vel í litapallettuna heima hjá mér? Ég leyfi henni að hanga hér þangað til ég get klæðst henni á næstu vikum.
Aftur voru það elskulegu Notes du Nord sem komu mér á óvart og sendu mér hana að gjöf … AndreA klæddist henni í síðustu bloggfærslunni sinni – hér.
Ég hef stundum verið beðin um að sýna meira frá heimilinu mínu á blogginu, er áhugi fyrir því?
Notes Du Nord fæst í AndreA í Hafnarfriði. Púðinn sem sést glitta í á myndinni er brúðkaupsgjöf frá hæfileikaríkri frænku að norðan, fæst hér. Okkur þykir svo vænt um hann.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg