Hún hlýtur að vera einstaklega hæfileikarík hin nýútskrifaða Berglaug sem tók myndirnar af mér fyrir Blæti, fyrir utan það hvað hún er líka bara yndisleg og þægileg að vinna með – mæli með henni. Myndirnar eru nefnilega æði þráttt fyrir að hafa verið teknar á mettíma rétt áður en ég átti flug frá Íslandi fyrr í vor. Það sem ég vissi ekki þegar á myndatökunni stóð var að ég var orðin veik af einhverri flensu. Ég skyldi ekki í því hvað mér var heitt og opnaði gluggana upp á gátt í stúdíóinu, eftir tökuna strönglaðist ég svo uppá flugvöll og í fluginu byrjaði ég í hita og kuldaköstum, heppin að vera með uppáhalds flugfreyjuna, hana systur mína innan handar. Ég verð svo sjaldan veik en ég man að ég hélt mér uppi á verkjatöflum útaf beinverkjum í þessari ferð … note to self, og ykkar: líkaminn vinnur að lokum!
Annars stíliseraði ég saman þrjú dress úr mínum fataskáp/ferðatösku og útkoman er þessi – ólík dress en öll svo næs að mínu mati og öll mjög mikið “Elísabet Gunnars”. Ég lagði þetta verkefni þannig upp vegna þess að blaðsíðurnar mínar voru undir kaflanum “karakter” í tímaritinu. Hér að neðan sjáið þið hvert dress fyrir sig.
Rósa María Árnadóttir er besti aðstoðamaður í heimi en ég vil helst ekkert auglýsa það neitt sérstaklega því ég þarf að halda í hana sjálf ;) auðvitað besta konan mín (margir halda að við séum systur) en líka klárasta mua, þó hún sé ekkert nema sjálflærð þá verð ég alltaf svo glöð þegar hún penslar á mér andlitið.
Jakki: Ganni x 66°Norður, Toppur: H&M Studio, Buxur: H&M Trend, Skór: Vagabond/Kaupfélagið
Blazer: Selected Femme, Buxur: Gamlar, Eyrnalokkar: Lindex, Skór: H&M
Kimono: Notes du Nord / AndreA Hafnafirði, Hálsmen AndreA
Nóg af Blæti frá mér í bili en ég mæli með að allir skoði og tryggi sér eintak af tímaritinu þegar það fer í sölu strax eftir helgi. Þangað til getið þið “mætt” í útgáfuhófið með því að skoða myndir úr gleðskapnum HÉR og lesið mínar síður HÉR.
Eigið góðan dag.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg