Sunnudagur til tiltektar var tilfellið á þessum bænum í dag. Vikudagur sem er ágætur til slíks.
Þið þekkið góðu(bestu) tilfinninguna sem fylgir því að sofna með hreint á rúminu? Í kvöld var tilfinningin enn betri þegar ég setti þessi fínu rúmföt á sængina í hreina herberginu mínu. Rúmfötin eru ný kaup sem hafa lengi verið á óskalista frá H&M Home. Keypt í vikunni í elsku Amsterdam.
Með kaupunum verð ég í stíl við draumaprins Svönuson – þann smekkmann!
_
Það er ágætt að vera tveimur tímum á undan í tímabeltinu þegar ég skrifa þetta rétt fyrir svefninn. Verður kannski innblástur fyrir aðra að sofna með hreint á rúminu í kvöld? – ég get lofað ykkur betri svefn inn í vikuna fyrir vikið.
Ah .. nú legg ég frá mér tölvuna.
Góð kaup, það er ég alveg viss um.
Sweet dreams.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg