fbpx

13.09.14

Persónulegt

Það er kominn tími til að kynna fyrir ykkur fallega litla strákinn minn sem kom í heiminn fyrir akkúrat viku síðan. Hann var tekinn með keisara eftir 42 vikna meðgöngu eftir að reynt hafði verið að koma mér af stað í tvo daga. Hann var svo sannarlega biðarinnar virði og ríflega það, hann er heilbrigður, mjög vær og bræðir okkur upp til agna á hverjum degi.

IMG_20140920_104509-1

Ég tók mér ágæta pásu frá internetinu síðustu daga og hér hafa bara verið að birtast tímastilltar færslur svo ég hef engum kommentum svarað né tölvupósti. -Þið hljótið að skilja það.

Það er jú full vinna að dást að svona mola, þið fáið svo fleiri fréttir af okkur innan skamms:)

-Svana

GÆRUR VOL.2

Skrifa Innlegg

15 Skilaboð

  1. Soffia

    20. September 2014

    Til lukku aftur! Hann er dásamlegur :)

  2. Matthildur

    20. September 2014

    Mikið er hann dásamlegur. Til hamingju með litla gullið þitt :)

  3. Thelma

    20. September 2014

    Hamingjuóskir…hann er ótrúlega sætur

  4. Sólveig

    20. September 2014

    Hann er yndislegur, innilega til hamingju :)

  5. Elísabet Gunnars

    20. September 2014

    Velkominn í heiminn elsku Svönuson. Þú ert alveg yndislegur :*

  6. Karen Lind

    20. September 2014

    Mesta krútt í heimi… æðislegur <3

  7. Sigrún

    20. September 2014

    Gullfallegur❤️ njótið nú tímans.

  8. Hanna Dís

    21. September 2014

    Guðdómlegur og vel sætur! Til hamingju krúttí pútt!

  9. Ragnheiður S.

    21. September 2014

    Innilega til hamingju !

  10. Eva

    21. September 2014

    elsku Svana mín og Andrés! innilega til lukku með litla ljósið <3 njótið í botn :) p.s. flott sængurföt!!! xxx

  11. Margrét

    21. September 2014

    Innilega til hamingju með prinsinn!

  12. Þórdís Brynjólfs

    24. September 2014

    Innilega til hamingju með fallega strákinn þinn. Guð hvað hann er fallegur. Þetta er yndislegast í heimi, þetta er lífið. Njótið í botn! ;)