Ég hef verið beðin um frekari útskýringu á þessari mynd sem þið sjáið hér að neðan, en hún var tekin um helgina á jólahlaðborði VFL Gummersbach og birtist á Instagram hjá mér sama kvöld. Málið er að ég er komin 36 vikur á leið með dreng í maganum og hingað til hefur ekki verið möguleiki á að fela það ástand. Sú varð óvart raunin þegar myndin var tekin í beinni línu við bumbuna og það ruglaði í mínu nánasta fólki.
Sem betur fer tók ég líka sjálfsmynd af okkur fjölskyldunni – en á þeirri mynd má greinilega sjá bumbuna áberandi út í loftið, girta ofan í buxurnar eins og það væri jólasveinaþema , sem var ekki raunin ;)
Kápa: Malmain fyrir H&M
Blazer: Lindex
Bolur: Acne
Buxur: Mango
Skór: Won Hundred/GK Reykjavik
Hóhóhó og gleðileg jól.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg