Af nokkrum tískuviku dressum þá vakti sjóræningjalúkkið mesta athygli. Klúturinn var jólagjöf frá Chanel sem ég er afskaplega ánægð með og hef notað mikið frá því að hann varð minn í desember. Stelið stílnum með því að gramsa í vintage búðum sem margar leyna á næs klútum í sölu fyrir ódýrt verð.
Svarta kápan sem ég klæddist þennan daginn er einmitt dæmi um slík kaup, ódýrt úr Rauðakross búð. Taskan með perlunum er væntanleg frá Andreu minni – falleg með eindæmum.
LESIÐ LÍKA: ÍSLENSK TÍSKA TEKUR ÞÁTT Á DÖNSKU TÍSKUVIKUNNI
Æ já svo er auðvitað það besta við mómentið á myndinni, sólin sem skein svo fallega þegar ég kom út af tískusýningu. Það rigndi mikið síðustu daga svo þessi gula var mjög kærkomin.
Takk fyrir myndirnar @thestreetland
Buxur: Zara, Skór BilliBi
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg