fbpx

DAGSINS

DAGSINSDRESSLÍFIÐSHOP

Örstutt en ánægjulegt skot í lunch í dag.

photo 1photo

Það eina nýja sem fékk að fylgja mér heim frá tískuborginni  um helgina voru ódýr en ágæt sólgleraugu sem ég er strax byrjuð að nota. Þau voru keypt í secondhand búðinni Factory sem ég mældi með hér fyrir ári síðan. Ég var svo hrifin af sniðinu en viðurkenni að þetta voru svolítil skyndikaup. Sjáum til hvort þau verði lengi á nefinu. Ég vona það.

photo 10

Kápan er nýleg frá H&M – þetta snið kemur aftur og aftur en í ólíkum litum frá ári til árs. Þessi er nokkuð sumarleg.

Skyrta: SecondHand
Hanskar: H&M
Skór: Converse
Clutch: Chloé/Sævar Karl

Góðar stundir –
xx,-EG-.

PFW: FÓLK

Skrifa Innlegg

5 Skilaboð

  1. Pattra S.

    5. March 2014

    H&M frakka systur.. Mín er þó örlítið öðruvísi frá Barce(skil ekki alveg hvað ég var að gera í H&M úti á Spáni!!)
    Svo fín!

    • Elísabet Gunn

      5. March 2014

      Hún var náttúrlega á svo rosa góðu verði :) Svo það er bara í lagi að leyfa svoleiðis að fylgja sér heim frá H&M, þó það sé í Barcelona x við verðum sætar saman “systurnar”.

  2. Ásdís

    5. March 2014

    var einmitt að fjárfesta í þessari og bíð eftir henni núna enn spenntari:) gott að vita að maður er mögulega með oggupons tískuvit:)

    • Elísabet Gunn

      5. March 2014

      Úllala .. engin spurning! Þú verður ekki fyrir vonbrigðum. :)

  3. Annetta

    5. March 2014

    Æði!! Ég keypti mér líka þessa kápu í vikunni :)