Hinn fullkomni sunnudagur? Þessi komst nokkuð nálægt því.
Byrjaði á brunch í garðinum okkar sem fylltist hratt af góðum glöðum andlitum – stórum sem smáum.
Uppskriftina af lummunum finnið þið: HÉR .. þið voruð nokkuð sem báðuð um hana á IG.
Þetta er ungt og leikur sér .. Má ég vera með?
Síðan var ekki annað hægt en að rífa allt liðið með á ströndina þar sem íslenska mafían kældi sig niður. Sjáið þið þennan dásemdar hóp.
Þegar maður býr erlendis er lífið örlítið öðruvísi en gengur og gerist með fjölskylduna sér við hlið á Íslandi. En þá er ekki annað hægt en að búa sér til samfélag á hverjum stað fyrir sig. Við höfum verið svo heppin með liðsfélaga og Íslendinga almennt í kringum okkur síðustu árin og sú lukka heldur áfram hér í Esbjerg.
Sirka svona lítur fullkominn sunnudagur út fyrir mér. Family first.
xx,-EG-.
@elgunnars á Instagram HÉR
Skrifa Innlegg