fbpx

LUMMUDAGUR

LÍFIÐMATUR

img_9987

Sunnudagur = lummudagur hér á bæ. En það hefur aldeilis skilað sér til ykkar sem fylgið mér á Instagram.
Ég hef nú þegar sent ykkur mörgum þessa einföldu hollu uppskrift sem ég hendi reglulega í á þessum besta degi vikunnar. Mig minnir að ég hafi líka sett hana á bloggið en ég fann hana ekki í fljótu bragði enda líklega nokkur ár síðan. Hún gæti líka hafa breyst svo það er allt í góðu að setja hana hingað inn aftur.

Bananalummur eru uppáhalds uppskriftin hér á bæ. Þær eru hollar með meiru en það má vissulega bæta óhollustunni við með því að smyrja þær með nutella súkkulaði, sem er algjört spari hjá okkur. Annars er það besta bragðið að borða þær með osti, skinku og fersku avakató – mmmm …

fullsizerender_2 fullsizerender fullsizerender_3 fullsizerender_4 fullsizerender_5

 

UPPSKRIFT

2 stappaðir bananar
1 egg
Dass af höfrum
Smá mjólk

Hráefni hrært saman og hellt á pönnu – voila!

Þetta er vissulega einfalt og það er ástæðan fyrir því að ég geri þær aftur og aftur.
Gleðilegan lummudag!

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&

Trendnet á Facebook – HÉR

ALBA FYRIR i+i

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Halldóra

    30. January 2017

    Hæhæ.
    Prófaði þessar – mjög góðar!
    En eru þær ekkert lausar í sér hjá þér?

    • Elísabet Gunnars

      30. January 2017

      Nei alls ekki. Passaðu að hafa ekki of mikla mjólk (bara rétt slettu útí skálina) og settu 2 egg ef þau eru sérstaklega lítil :)

      • Halldóra

        31. January 2017

        Ok þannig að deigið er þá frekar þykkt væntanlega?