fbpx

SÓLARHRINGUR Í SÆLU

DRESSLÍFIÐ

11100957_10152856853277568_522611704_n 11119320_10152856853187568_826462292_n 961728_10152856476877568_1655842603_n
Princess Alba að leik í kastalagarði

11139735_10153150102561253_1284653516_n

Við fjölskyldan nýttum tímann aldeilis vel á 24 tímum núna fyrr í vikunni. Við keyptum okkur last minute herbergi yfir eina nótt í gömlum kastala um 30km frá heimili okkar og það var nú meiri draumurinn!!

Það er vinsælt að sjarmerandi gömlu byggingunum sé breytt í hótel – að mínu mati góð nýting.
Þegar við lögðum í hann seinni partinn tókum við krókaleið til að skoða þennan kastala á myndinni fyrir ofan. Hann heitir Bensberg og er töluvert meira glamorous en sá sem við gistum í.
“Okkar” heitir Auel og er meira sveitó – en í leiðinni meira (eða allavega öðruvísi) rómantískur að mínu mati.

Við fengum herbergi við hliðiná fallegasta bókasafni sem ég hef komið á. Sé eftir því að hafa ekki tekið fleiri myndir, geri það næst. Þetta var ekki í síðasta sinn sem ég mun nýta mér þessa perlu sem liggur svona stutt frá heimili mínu.

 

11118707_10152856470542568_38063004_n11122460_10152857014302568_1337155261_n
Gaf mér loksins tíma í lestur á fína íslenska glanstímaritinu

 

11122410_10152856464552568_1031849948_n
Monday night at the library11149060_10152856460062568_626037048_n
Útsýnið yfir morgunbollanum 

11148889_10152856458227568_532778989_n
Ég kann vel að meta þýska sveitasælu

11156970_10152856457877568_903409535_n 11160082_10152856456332568_1877880888_nÉg klæddist köflóttri skyrtu frá F&F, hatt frá Spútnik og skóm frá Birkenstock.

11145919_10152856965027568_1408879674_n

Þetta á maður að gera oftar … þegar tími til gefst.
Draumur í dós, það er ekki hægt að segja annað.

xx,-EG-.

 Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR

LANGAR: BAKPOKI

Skrifa Innlegg