fbpx

LANGAR: BAKPOKI

LANGARSHOP

Ég er búin að leita mér töluvert að bakpoka fyrir sumarið og eftir umhugsun er þessi að neðan orðinn efstur á lista. Hann varð á vegi mínum á dögunum, frá &OtherStories.

Þó mér líki vel við ágætu taupokana sem ég nota mikið þá er ekki verra að geta losað hendurnar með farangurinn á bakinu. Ekki satt?

bakpoki

0286881002_5_100013

Finnst þeir svo clean og því tel ég mig geta notað þá mikið. Ég er með valhvíða hvorn litinn? Svart er alltaf safe en ég er líka hrifin af þessum tvílita sem ég birti hér,  fyrir Glamour.
Þar skrifaði ég ítarlega um þetta skemmtilega sumartrend og gaf fleiri hugmyndir um hvar þeir fást í íslenskum verslunum. Skoðið endilega.

Getið þið hjálpað mér með þessa “stóru” ákvörðun ;) ? Ég þarf einn á axlirnar … það er engin spurning.

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR

ÞAÐ BORGAR SIG AÐ BROSA

Skrifa Innlegg

8 Skilaboð

  1. Hildur Guðrún Halldórsd

    15. April 2015

    ég segi báða litina :)
    ég ætti erfitt með að velja á milli, þekkjandi mig myndi ég enda á svörtum eða báðum!
    Geggjaðir btw

    • Elísabet Gunnars

      15. April 2015

      Já – þú myndir líklega kaupa báða, elsku vitleysingur. Ég er að hallast að svörtu. Uppá notagildið.

    • Hildur Ragnars

      15. April 2015

      Haha týpískt þú að kaupa báða HGH!

      Ótrúlegt en satt segi ég svarta!

  2. Andrea

    15. April 2015

    Já ég segi svartur líka !!! (geri það samt ekki oft )

  3. Rut Rúnars.

    15. April 2015

    mér finnst tvíliti flottari…. en svarti kannski með meira notagildi…..
    ..mikil hjál í mér :)

    • Elísabet Gunnars

      16. April 2015

      Ég er eiginlega sammála þér Rut – finnst nefnilega hinn eiginlega flottari. En svarti fór með mér heim – hugsaði um notagildið. :)