Fötin voru gjöf
Eins og þið flest vitið þá eru heil 7 ár á milli barnanna minna. Vegna aldursmunarins kemst ég sjaldan upp með að klæða þau í stíl. Alba (10) hefur sterkar skoðanir á sínu fatavali og ég reyni að leyfa henni það upp að vissu marki. Við erum alls ekki alltaf sammála en það er partur af prógramminu held ég – mömmur tengja.
Ég var mjög glöð, að hún var glöð, með íslenska pocket kjólinn sem hún klæddist í stíl við bróður sinn í fermingarveislu fyrr í vor. Það er eitthvað svo sérstaklega sætt við það að klæða systkyni í stíl og þó að það séu mörg ár á milli minna barna þá kemst ég upp með það af og til.
Þessi samfestingur er auðvitað algjört æði!
Hattur: Petit (gamall), Sokkar: Petit, Skór GM: Vans, Skór Alba: Zara, Perluspenna: Glitter
Þið sem ekki þekkið brandið þá eru þetta föt sem stækka með börnunum – ég mæli með að kaupa stærra en minna og þá getið þið notað flíkurnar í mörg ár. Það er allavega reynslan á þessu heimili.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg