Góða kvöldið! Jæja .. Er ekki löngu kominn tími á þetta blogg? Það hafa allavega margir lesendur kvartað yfir því að ég sé ekki að standa mig í fréttaveitunni, komin þetta langt á leið. Í síðustu póstum hefur ekki farið fram hjá neinum að ég er ekki einsömul kona þessa dagana. Ég ber semsagt lítinn dreng undir belti sem er væntanlegur í heiminn í janúar. Spennandi tímar framundan ..
Ég hef ekki reynslu af því að vera strákamamma og sé það ekki alveg fyrir mér – en er þó ótrúlega spennt og þakklát fyrir litla tippalinginn í maganum. Ég tók smá rúnt í tilefni þess að ég færi ykkur fréttir og gerði smá óskalista fyrir litla töffara. Þannig tengi ég þetta betur við bloggið mitt og veiti vonandi einhverjum mömmum innblástur eða hjálpa til við jólagjafa innkaup. Þetta er líka lúmsk leið hjá mér til að fá nothæfar sængurgjafir ;)
Flestar af vörunum eru til í íslenskum verslunum og því auðvelt að nálgast þær. Það er nokkuð skemmtilegt að sjá það eftir á að það rataði nánast ekkert blátt á stráka listann minn – það er þó bara jákvætt að mínu mati.
Hattur: Lindex, Bolur: Ígló&Indí, Plakat: Boligheter.se, Tigergalli: Heritage/BiumBium store,
Baukur: Tulipop/Hrím, Ullargalli: FUB/Geysir, Skór: Nike Jordan/Nike verslun
Skór: EnFant, Gíraffi: Sophie the giraffe, Náttgalli: Lindex,
Buxur: Tinycottons/Petit.is, BabyNest: Petit.is, Pandagalli: ÍglóIndí
Snjógalli: 66°Norður, Teppi: Ígló&Indí, Peysa: As We Grow, Bíll: Goki/Lítil í upphafi, Húfa: Huttelihut/BíumBíum, Buxur: Lindex
Eitthvað hef ég keypt nú þegar en annað er blikk á ömmurnar heima á Íslandi ; )
Vonandi líður tíminn hratt næstu mánuði. Gleðileg jól?
Happy shopping!
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg