fbpx

HALLÓ ÍSLAND

LÍFIÐSHOP

 

photo
Hæ!

Ég birti myndina að ofan á Instagram um helgina og fékk í kjölfarið margar spurningar hvaðan fína höfuðfatið væri. Hatturinn er frá Ginu Tricot og var keyptur á dögunum í Þýskalandi. Ég átti einn svipaðan sem týndist og þessi ódýru kaup eiga að reyna að taka við af honum – “Emil caps” eins og dóttir mín orðaði það.

Annars er ég lent á klakanum góða. Og jii minn eini , þvílík veðurblíða sem hér tók á móti mér !! Vonandi hafið þið öll verið að njóta sólarinnar eins og ég.

Ég byrjaði ferðina á útskirft hjá nýjum fatahönnuði í vinkonuhópnum – frábært kvöld í alla staði!

photo 1 photo 2 photo 3
Útskriftarstúlkan Rakel (rauðhærða í miðjunni) er í kjól frá Stellu McCartney, keyptur í GK. Ég er sjúk í hann!!
Ég er ekki í júdóslopp, þetta er jakki frá Zöru.

Góðar stundir. Notum og nýtum vel þennan extra “sunnudag”.

xx,-EG-.

GÓÐAN DAGINN

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Flottar vinkonur – og jú júdósloppur var einmitt það sem ég hugsaði haha – alls ekki rosa sæt eins og alltaf:***