Eins og þið sem lesið bloggið mitt/fylgið mér á Instagram vitið, þá hef ég alla tíð verslað reglulega í Lindex, bæði á mig og börnin. Haust úrvalið hefur sjaldan verið betra og því ánægjulegt að fá að sýna ykkur þrjú dress frá toppi til táar, í samstarfi við sænska móðurskipið.
Hér að neðan er brot af mínum uppáhalds flíkum sem fást í búðum núna, linka á hverja flík fyrir sig finnið þið fyrir neðan myndirnar. Fötin fást svo að sjálfsögðu í verslunum Lindex í Kringlu og Smáralind.
Ég hef varla farið úr þessari dragt síðan ég keypti hana. Buxurnar eru í æðislegu sniði og ég tók jakkann í stórri stærð – nota saman og í sitthvoru lagi. Þið verðið ekki svikin.
Jakki: HÉR, Buxur: HÉR, Kragi: HÉR
Beige er best? Peysan minnir mig á aðra sem ég á frá Lindex og hef notað i 12 ár (sama efni og svipað snið). Buxurnar eru uppháar í beinu sniði og verða mikið notaðar á aðventunni er ég viss um.
Peysa: HÉR, Buxur: HÉR
Ég elska elska þessar stuttbuxur sem ég keypti snemma í haust – þetta er flíkin sem þú þarft að sjá einhvern klæðast til að fatta fegurðina. Ég hef fengið margar fyrirspurnir um jakkann, enda æði.
Dúnjakki: HÉR, Stuttbuxur: HÉR .. Húfa: HÉR … svo verð ég að segja ykkur frá þessum stígvélum líka: HÉR
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg