fbpx

Cherry blossom

ALBADAGSINSLÍFIÐ

Fallegast í mínu lífi á vorin …. er þessi gullmoli hún dóttir mín og bleiku Cherry blossom
tréin sem sýna sig svo fallega á þessum tíma. Þetta tvennt saman á mynd er auðvitað listaverk að mínu mati.

image-6image-1

Cherry blossom tré eiga yfirleitt um 14 daga líftíma þegar þau eru hvað fallegust. Það fer eftir veðráttu hvenær árs þau blómstra og hér í franska hafa þau aldeilis verið í blóma uppá síðkastið. Ég á samt örugglega ekki mikið eftir af þessari fegurð þetta árið svo það er eins gott að njóta.

Þessar myndir hafa verið teknar á símann minn í mars mánuði – takið þær endilega með ykkur inn í daginn.

image-3image-3imageimage-4
Náttúruleg fegurð.

_

Eftir viku inniveru vegna veikinda þá þrái ég ekkert heitar en að komast út í frönsku vorblíðuna á þessum fína sunnudegi. Ég vona að þið eigið hann mikið góðan.

xx,-EG-.

Hönnunarkeppnin - síðasti séns

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð