Gleðilega hrekkjavöku kæru lesendur.
Hér í franska fagnaði heimasætan deginum í þrígang í vikunni og nú síðast í dag.
Við fjölskyldan tókum þátt í eitt skiptið þegar okkur var boðið í þemapartý um síðustu helgi.
Kannski að maður fari að gera meira úr þessari ágætu hefð. Byrjaði fínt þetta árið.
Skemmtilegast væri að taka þetta alla leið með þemaskreyttu húsi og kræsingum í ógnvekjanlegum anda. Ég á nokkrar þannig minningar með vinkonum mínum í denn þegar að ég bjó á Íslandi. En ein þeirra er algjör snillingur í að plana partý og sérstaklega þemapartý. Ég væri meira en til í þannig reunion. Kannski næst.
Góða skemmtun um helgina – ég veit að það eru margir á Íslandi byrjaðir að gera meira úr þessu en áður.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg