fbpx

PANDABJÖRN FRÁ FÓU FEYKIRÓFU

BarnaherbergiVeggspjöld

Ég er svo heppin með mínar hæfileikaríku vinkonur, en ein af þeim hún Áslaug Þorgeirsdóttir sem er menntuð sem grafiskur hönnuður var loksins að opna facebooksíðu þar sem hún deilir myndum af fallegum grafískum teikningum sem hún hefur verið að gera, myndirnar teiknar hún undir nafninu Fóa Feykirófa en síðuna hennar má finna -hér.

10846504_881310731914201_3653968157518075721_n

20141211_190411

Hún færði Bjarti svona fína pöndu um daginn en mig langar til að benda ykkur á að hún er með gjafaleik í gangi á síðunni sinni þar sem hægt er að vinna svona fína pöndumynd:)

10688386_880948745283733_727079684449073577_o

Algjört krútt, ég mæli með að taka þátt en það getið þið gert með því að smella hér og líka við Fóu Feykirófu:)

-Svana

 

BORÐ FRÁ SYSTRUNUM GRÆNU & KOPARVASINN GÓÐI

Fyrir heimilið

Eruð þið ekki alveg pottþétt með á hreinu að það er að koma nýr gámur í Söstrene Grene stútfullur af þessum borðum svo það verði pottþétt enginn útundan á landinu. Því á hvað eigum við annars að leggja kopar Omaggio vasann okkar (!)

bord2+DD

Og eruð þið ekki líka pottþétt með á hreinu að það er að koma sending af 12 cm kopar vösunum í Hrím þann 18.desember?

Klárlega einar vinsælustu vörur ársins?

Ég er sek, því ég luma á einum svona stórum uppá hillu. Var þó hætt við að eignast hann þegar ég sá í hvað stefndi en fékk hann svo í gjöf og get ekki neitað að mér þykir hann afskaplega fallegur:)

Kannski einhverjir hér sem eiga bæði vasa og borð?

VÍK PRJÓNSDÓTTIR BY ELÍSABET DAVÍÐSDÓTTIR

Íslensk hönnun

Ljósmyndarinn Elísabet Davíðsdóttir tók þessar fallegu myndir af vængsteppunum frá Vík Prjónsdóttur,  það var ágæt áminning þegar ég sá að Theódóra skrifaði um fínu sólhattana þeirra í gærkvöldi, sjá hér, því ég er búin að sitja á þessum myndum í nokkra daga. Vængsteppin frá Vík Prjónsdóttur eru prjónuð teppi úr 100% íslenskri ull sem hönnuð eru með það í huga að hægt er bæði að nota það utandyra sem hlýja yfirhöfn eða einfaldlega til að kúra í uppí sófa. Ég er sérstaklega hrifin af seinni möguleikanum, en ég á reyndar tvo vængi frá þeim, bæði stóra verndarvænginn, sjá hér, og lítinn svan sem sjá má hér að neðan svo mér ætti ekki að verða kalt í vetur. Teppin koma í fjórum ólíkum týpum svo allir geta fundið eitt við sitt hæfi:)
llPapageno vængur

Vik-TheSwan-blanket-EDThe Swan vængur

Vik-TheRaven-blanket-EDThe Raven vængur

Vik-WingBlanket-Eider-01-ED

King Eider vængur

Ljósmyndari: Elísabet Davíðsdóttir
Módel: Heather Boo

Flottar myndir af enn flottari hönnun! Ég verð nú líka að segja ykkur hvað það er gott að kúra í svona vængsteppi því það er hægt að stinga höndunum í gegnum “fjaðrirnar” og því er auðveldlega hægt að narta í eitthvað á meðan þú klæðist teppinu, lúxus ekki satt?

FALLEGT HEIMILI HJÁ BLOGGARA MITT LILLE HJERTE

Heimili

Hin norska Janne Iversen er smekkkonan að þessu sinni, hún er einnig bloggari og heldur úti bloggsíðunni Mitt lille hjerte. Heimilið er mjög trendy og virðist Janne vera dugleg að sanka að sér hönnunarvörum sem þykja mjög vinsælar um þessar mundir. Instagramið hennar má finna hér og bloggið hér. 

Screen Shot 2014-12-09 at 10.27.03 PMScreen Shot 2014-12-09 at 11.19.32 PMScreen Shot 2014-12-09 at 11.18.55 PMScreen Shot 2014-12-09 at 11.18.40 PMScreen Shot 2014-12-09 at 10.36.13 PM Screen Shot 2014-12-09 at 10.35.55 PM Screen Shot 2014-12-09 at 10.35.34 PM Screen Shot 2014-12-09 at 10.34.55 PM Screen Shot 2014-12-09 at 10.31.32 PM Screen Shot 2014-12-09 at 10.31.18 PM Screen Shot 2014-12-09 at 10.30.40 PM Screen Shot 2014-12-09 at 10.30.26 PM Screen Shot 2014-12-09 at 10.29.23 PM Screen Shot 2014-12-09 at 10.28.50 PM

*Uppfært*

Ég er mjög sammála athugasemdunum hér að neðan varðandi þetta heimili, það vantar allt persónulegt touch og er nánast eingöngu að finna hluti sem eru mjög trendy núna, þessvegna tala ég um “trendy heimili” hér að ofan. Þrátt fyrir það hef ég gaman af svona myndum, því þetta er jú nánast eins og útstilling fyrir verslun og hægt að sjá hluti sem þig jafnvel langar til að eignast þrátt fyrir að hafa engann áhuga á að búa þarna:)

JÓLAGJÖF SVART Á HVÍTU HLÝTUR…

Hitt og þetta

Hún er svo sannarlega lukkunnar pamfíll hún Anna Kristín Óskarsdóttir sem ég dró út rétt í þessu sem vinningshafa gjafaleiksins. Hlýtur hún því samtals 100.000 kr. gjafabréf í flottustu netverslunum landsins.

Cover

Verslanirnar sem um ræðir eru:

EPAL ESJA DEKOR HJARNHRÍMI AM HAPPYMINIMAL DEKOR

MJÓLKURBÚIÐPETITREYKJAVÍK BUTIKSNÚRAN

Ég vona svo sannarlega að gjafabréfið komi sér afskaplega vel fyrir hana Önnu Kristínu, ég hefði viljað geta glatt enn fleiri en þátttakan fór fram úr mínum björtustu vonum með um 3.000 þátttakendum.

Kæra Anna Kristín, sendu mér endilega póst á svartahvitu@trendnet.is

Ég þakka kærlega fyrir allar athugasemdirnar sem bárust og býð í leiðinni nýja lesendur velkomna og vonandi endurtökum við svona leik aftur seinna. Án ykkar væri þessa bloggsíða ekki neitt neitt:)

 Með bestu kveðju, Svana

LITUR ÁRSINS 2015

Umfjöllun

Alþjóðlega litakerfið Pantone hefur tilkynnt lit ársins 2015 og er það Marsala 18-1438 eða öðru nafni rauðvínsbrúnn. Fjölmörg fyrirtæki fara eftir slíkum litaspádómum og eru mörg hver þegar farin að leggja línurnar að vörum í Marsala litatónum, snyrtivörumerkið Sephora gaf einmitt út tilkynningu að þeir muni gefa út innan skamms snyrtivörulínu innblásna af litnum, og munum við svo sannarlega sjá meira af þessum lit á komandi ári.

_660-1

Mér finnst liturinn vera fallegur, elegant og hlýlegur. Hann er sérstaklega flottur þegar kemur að snyrtivörum og fatnaði en ég er ennþá að melta hann fyrir heimilið, mögulega of þungur fyrir minn smekk. Ég sé þó fyrir mér fallega púða, teppi og glervörur sem kæmi vel út.

Í tilkynningu Pantone segir: “Sensual and bold, delicious Marsala is a daringly inviting tone that nurtures; exuding confidence and stability while feeding the body, mind and soul. Much like the fortified wine that gives Marsala its name, this robust shade incorporates the warmth and richness of a tastefully fulfilling meal, while its grounding red-brown roots point to a sophisticated, natural earthiness.”

Liturinn nærir s.s. líkama, huga og sál í stuttu máli.

Hvað finnst ykkur um þetta val?

FALLEGT HEIMILI Í SVÍÞJÓÐ

Heimili

Ég er varla með töluna á því hversu margar færslur hafa heitið eitthvað í þessa átt, en aðdáun mín á sænskum heimilum fer ekki minnkandi með tímanum. Þessi íbúð er með allt það sem ég óska mér, með skreytilistum í loftinu, fallegri kamínu í stofunni og ljósu viðargólfi, ég bið ekki um meira en það.

Íbúarnir hafa kosið að hafa frekar milda litapallettu og maður fyllist smá ró að skoða myndirnar, þó er nóg um grænar plöntur á heimilinu eða að minnsta kosti ein í hverju rými sem færir heimilinu töluvert meira líf en ella.

SFD6DF36390725F46778A039DCB337A943F

Svarthvít plaköt skreyta borðstofuna, ljósakrónan er frá House Doctor og látlausir Tolix stólarnir eru flottir við.

SFD8B9362E5A97D462C9A5DF24394AE42E4

Hýasintur eru einstaklega fallegar og jafnvel nauðsynlegar fyrir suma um jólin.

SFD284E4AD67F944D43867C4C90E256655F

Einföld vinnuaðstaða, -búkkar og borðplata frá Ikea og Panton stóll við.

SFD7510E6D8AAA941AB80B99AAE1AD88D48

Það eru nokkuð látlausar jólaskreytingarnar á þessu heimili ef kalla skyldi jólaskraut. Lítið krúttlegt jólatré í potti, mér var einmitt bent á í dag að það sé hægt að nálgast svona litla jólatrésgræðlinga í gróðrastöðvum.

SFD9094D53F5B2448C580A3C41259733246 SFDF9EEA2A335544CE2BD505DB8C4386235SFD2628B11B5EAF40DE83D7F3143336524DSFD47450B1C1C6443A4B2FA0863F837B01E

Einföld og sniðug fataslá.

SFDA56F0771484B47CBAE1ADB86740EEBB0

Gifsrósettur í loftum eru það allra fallegasta.

SFDB25EBE0B3AB446948EEE54FFBAD610C9 SFDB93C9A1EBFF5414189BF3F102349C863

Eruð þið ekki búin að taka eftir hvað græni liturinn gerir mikið fyrir heimilið?

SFDBF5D3DCB1B4C4421B91D00CE00DD5D33 SFDCA07768DE9334C1EB855A60A76060B36 SFDCEFFB442378245D3BF52B604DBBD4839 SFDE6197E2A83FC48E8B68E7E74D6FA1C37

Dásamlegt heimili! Jú og ef þú ert í flutningshugleiðingum, mögulega úr landi þá eru fleiri myndir frá fasteignarsölunni að finna hér.

P.s. ég er í sjokki yfir viðtökunum á leiknum hér að neðan, það verður full vinna fyrir mig að draga út úr leiknum:)
-Svana

VINNUR ÞÚ 100.000 KR. GJAFABRÉF?

Fyrir heimiliðJólÓskalistinn

Eins og áður hefur komið fram átti bloggið mitt SVART Á HVÍTU nýlega fimm ára afmæli. Í tilefni þess og í anda jólanna vil ég bjóða ykkur að vera með í skemmtilegum gjafaleik þar sem vinningurinn er ekki af verri endanum. Eins og við vitum flest þá er sælla að gefa en þiggja og því ætla ég að gefa einum heppnum lesanda samtals 100.000 kr. gjafabréf í uppáhalds verslununum mínum.

Ég hef ekki leynt ánægju minni af glæsilegu úrvali netverslana hér á landi en þær munu hreinlega bjarga mér um jólin. Það er nefnilega ekki hlaupið að því að skjótast út í búð með eitt lítið kríli á arminum og því verða öll mín jólainnkaup í ár gerð á netinu -uppí sófa!

Hvernig væri nú ef við slepptum jólastressinu í ár? Það er hægt að velja gjafir í körfuna á meðan að smákökurnar bakast eða rétt fyrir svefninn þegar allir eru komnir í háttinn og svo það besta við þetta allt, -að fá gjafirnar sendar heim að dyrum. Við þurfum ekkert að ræða þetta frekar:)

Þessar flottu verslanir sem um ræðir gefa hver 10.000 kr. gjafabréf sem hægt er að nota til að kaupa jólagjafirnar, en þó hvet ég vinningshafann til að gera einnig smá vel við sig í leiðinni og fá sér eins og allavega einn fallegan hlut. Ég tók saman fimm hluti úr hverri verslun til að sýna brot af vöruúrvalinu, og hver veit nema jólasveinninn minn rekist á þetta.

epal

EPAL 

Epal rekur þrjár verslanir, í Skeifunni, Hörpu og í Leifsstöð. Í netverslun þeirra er að finna bæði klassíska hönnun ásamt spennandi nýjum hönnunarfyrirtækjum. Dæmi um vörumerki: Normann Copenhagen, Ferm Living, Design House Stockholm, Hay, Menu.

esjadekor

ESJA DEKOR 

Esja Dekor er vefverslun með öðruvísi og skemmtilega hönnunar- og gjafavöru frá upprennandi hönnuðum víðsvegar úr heiminum. Dæmi um vörumerki: Silke Bonde, Snurk, Present time, Faunascapes, Miss etoile.

hjarn

HJARN

Hjarn Reykjavík living er falleg lífstílsverslun fyrir fjölskylduna, heimilið og garðinn. Dæmi um merki: Lucie Kaas, House Doctor, One must dash, OYOY, Brita Sweeden.

hrim copy

HRÍM HÖNNUNARHÚS

Hrím rekur tvær flottar verslanir á Laugavegi en heldur einnig úti vefverslun. Dæmi um merki: Kahler, Stelton, Umemi, Design house Stockholm, Bloomingville.

iamhappy

I AM HAPPY

I am happy er skemmtileg barnavöruverslum með fallegum hlutum fyrir barnaherbergið ásamt úrvali af barnafötum. Dæmi um merki: Vilac, Wu and Wu, Barbapapa, Mói.

minimaldekor

MINIMAL DEKOR

Minimal Decor er vefverslun sem sérhæfir sig í hönnun hjá ungum og upprennandi listamönnum í bland við aðra einstaka hönnun frá Skandinavíu. Dæmi um merki: Funky Doris, I love my type, Mette Hagerndorn, Rikke Frost.

mjolkurbuid

MJÓLKURBÚIÐ

Mjólkurbúið er lífstílsverslun sem selur falleg leikföng, innanhússmuni, gjafavöru og barnafatnað. Dæmi um merki: By nord, Mini rodini, OMM design, Hunte, Sebra.

petit

PETIT

Petit er falleg skandinavísk barnavöruverslun sem selur barnafatnað og sérvalda hluti fyrir barnaherbergið. Dæmi um merki: Färg&Form Sweden, Babynest, Mini Empire, Mini Willa, OMM design. 

rvkbutik

REYKJAVÍK BUTIK

REYKJAVÍK BUTIK er vefverslun sem býður upp á fallega hönnun fyrir heimilið ásamt fatnaði fyrir konur og börn. Dæmi um merki: Zolo design, Kristina Dam, Norm Architects, Snug studio, Vee Speers.

snuran

SNÚRAN

Síðast en alls ekki síst er það Snúran sem kappkostar að bjóða upp á spennandi og fallegar vörur sem prýða heimilið. Dæmi um merki: Nynne Rosenvinge, Prettypegs, Pia Wallén, Finnsdottir, Nagelstager Repro.

Eruð þið að trúa þessu flotta úrvali af netverslunum á Íslandi?

Til að komast í pottinn og eiga möguleika á að vinna 100.000 kr. gjafabréf í flottustu netverslunum landsins þá þarft þú að,

1. Skilja eftir athugasemd með fullu nafni.

2. Líka við og deila þessari færslu.

3. Og svo máttu endilega fylgja Svart á hvítu á facebook til að missa ekki af neinu!

Dregið verður út sunnudaginn 7.desember.

Með bestu kveðju, Svana

MUUTO DOTS

Hönnun

Ég eignaðist nýlega þrjá Dots hanka frá Muuto og mikið hefur mér þótt erfitt að finna þeim réttan stað á heimilinu. Þeir enduðu að lokum inni í svefnherbergi þar sem að ég réttlætti fyrir mér að þarna myndi ég hengja á nokkur hálsmen, en núna er ég að íhuga að rífa þá niður og skella fram á gang undir jakka og veski. Ekki hefði mig grunað að ég gæti fengið svona mikinn valkvíða útaf svona litlum og sætum hönkum:)

4edbb2945a91a064b6789f7eb30b173b8efc816b1a8bfe0194a2dd283ac67f01 713fd751998d283ff6f48213dcfe6a35da1662a5236d7883470812a7795bc083 b98c0446fad1544a452ba9b7a5010765e19fdcf7d0bea6b8ab0ae61403402a49

Svo hef ég smá fréttir að færa ykkur! Jóla+afmælisgjafaleikurinn er að fara í loftið, planið var að starta honum í kvöld en ég á pínupons eftir í undirbúning. Til að gefa forvitnum smá vísbendingu þá er vinningurinn xxx.xxxx xx. gjafabréf í …..

Meira um það á morgun, ég mæli með að fylgjast með:)

x svana