Þessi tók á móti mér fremst á rekkanum í H&M í síðustu viku. Það stóðu aðeins örfáar eftir og ég leyfði mér að fækka þeim enn frekar.
Það var ágætis ákvörðun því ég hef ekki farið úr minni síðan. Góð í sniðinu og heldur á manni hita. Eins og akkurat núna. Velkomin í heimsókn hingað heim.
Ég er ótrúlega hrifin af kraganum sem að er frekar langur og krumpast eftir því.
Jólapeysan mín þetta árið – kósý.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg