fbpx

SNURK FYRIR SMÁFÓLKIÐ

SHOPSMÁFÓLKIÐ

SNURK_KIDS_OVERVIEW17846a825658fcc2e145ed9017734a00

Kaup dagsins voru þessi fínu rúmföt frá Snurk. En mig er búið að dreyma um þau lengi fyrir heimasætuna.
Dóttir mín er ekki enn farin að fylgjast með Trendnet (ótrúlegt en satt) svo mér er örugglega óhætt að segja frá því sem leynist í jólapakkanum hennar þetta árið.

 Screen_Shot_2014_08_29_at_19.54.05 Prinsessbarabedding 68bdc5a505ca0967d1088fe7d5cb606eFirefighter_packshot_minnkud 10250774_10152089636703131_593020150_n


Við mæðgur eigum það til að vera ekki alltaf sammála um hvað sé fallegt en í þessu tilviki hittir mamman örugglega í mark. Ég vona að ein fimm ára ballerina eigi eftir að sofna vel á aðfangardagskvöld montin með sig í nýjum rúmfötum. Ég veit að ég er allavega glöð með kaupin á þessari fallegu hollensku hönnun.

Esja Dekor selur sængurfötin á Íslandi og þau fást HÉR fyrir áhugasamar mömmur.

Allir fá þá eitthvað fallegt … ég vona að mín nái hingað yfir hafið fyrir jólin.

xx,-EG-.

Fylgstu endilega með:
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR

STÍLLINN Á INSTAGRAM: SIGRÚN EVA

Skrifa Innlegg