Elsku Sylvía og Eva hjá Norminu náðu að plata mig í podcast spjall áður en ég kvaddi klakann í haust. Það spjall má nú nálgast á flestum streymisveitum sem og HÉR fyrir áhugasama.
Það er alltaf smá erfitt að fara í svona langt viðtal sem breytist í spjall og lætur manni því líða eins og maður sé bara að ræða daginn og veginn við vinkonur. En ég vona að þetta sé bara í lagi.
Við förum yfir fjölskyldulifið, viðskiptasöguna, frumkvöðlastarf, hreyfingu, heilsu, góðgerðamál, allt og ekkert.
Kannski er þetta tilvalin hlustun inn í rólega helgi? Mæli með <3
Eru þið að fylgja Sylvíu og Evu á Instagram, flottar fyrirmyndir með skýra sín á lífið, held með þeim.
Takk fyrir mig Normið <3
Góða helgi kæru lesendur, farið varlega, verið næs.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg