Lífið í franska. Í gær.
Ég sá fyrir mér notalega stund einsömul á röltinu um bæinn í gærmorgun. Mér varð þó alls ekki skemmt því það byrjaði að rigna þá mínútu sem að ég labbaði inn á göngugötuna. Og þegar ég segi rigna – þá á ég við úrhellir! Ég var heppin að klæðast góðri yfirhöfn. Vaxkápu sem að ég keypti mér í 30stiga hita í sumar, frá Hunter.
Það var þó ekki nóg því ég skottaðist á milli húsþaka þangað til að ég fann verslun með regnhlíf mér til bjargar. Sem að ég fann.
Svo hitti ég þessa:
Við fjölskyldan erum beyglusjúk. Og heimsækjum uppáhalds beyglustaðinn okkar mjög reglulega. Alba er mjög heimavön.
Það borgar sig að vera við öllu búinn. En rigninginn ákvað að hætta um leið og við tókum myndina. Þeirri yngri fannst það mjög fyndið.
Fallegt fólk í fallegum haustlitum.
Dýrmætt að eiga fjölskyldustundir á frídögum. Það dýrmætasta.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg