fbpx

FRIDA GUSTAVSSON: “Magical Iceland”

FÓLKFRÉTTIR

1

Sænska “vinkona mín” Frida Gustavsson er á sólríka klakanum þessa dagana. En ég hef fylgst með ferðum hennar á Instagram þar sem hún lofsamar fegurð landsins. Ekki að undra! Sú var heppin með veður.
Nú þegar hefur hún heimsótt Bláa Lónið, Geysi og Vestmanneyjar samkvæmt samskiptamiðlinum.
photo 1 photo 2  photo 5 photo 3

Hennar persónulegi stíll hefur alltaf gripið augu mín og er ástæða þess að ég varð aðdáandi hennar í upphafi.
Síðustu árin hefur ofurfyrirsætan unnið fyrir stærstu merkin í hátískunni og má þar nefna Calvin Klein, Louis Vuitton og sænska Acne sem dæmi, en nöfnin eru orðin ansi mörg. Ég sá hana ganga pallana fyrir JPG x Lindex í Gautaborg í haust og hitti hana síðar í 60 ára afmæli Lindex þar sem skein af henni sjarmi. Myndin að ofan er tekin þar.
_

Takið vel á móti þessari glaðlindu fyrirsætu.
Hér getið þið fylgst með ferðum hennar fyrir áhugasama: @fridabgustavsson

Vällkommen till vackra Island Frida Gustavsson. Njut.

xx,-EG-.

SUNNUDAGS INNBLÁSTUR

Skrifa Innlegg