Eins og við Alba sögðum ykkur á Instagram story um helgina þá stendur Hagkaup fyrir frábæru fræðsluámskeiði í förðun og húðumhirðu fyrir fermingarbörn á miðvikudagskvöld, 8.mars klukkkan 20:00. Aðeins takmarkað sætaframboð var í boði og varð því uppselt mjög hratt.
EN fylgstu með fermingarkvöldinu í beinu streymi, annað kvöld !
Hagkaup og Beautyklúbburinn bjóða upp á klukkustundar námskeið í förðun og húðumhirðu fyrir fermingarbörn ásamt því sem sérfræðingar verða á svæðinu og veita ráðgjöf. Námskeiðið verður sýnt á vefnum í beinni útsendingu og verður einnig aðgengilegt í viku eftir að því líkur – virkilega vel gert hjá Hagkaup að veita þessa þjónustu, öllum að kostnaðarlausu.
Sjá þessar sætu fermingarstelpur, svona fallega farðaðar. Mér finnst það skipta miklu máli að krakkar á þessum aldri læri að farða sig fallega/náttúrulega. Ég er því mjög ánægð með þetta framtak Hagkaupa og Beautyklúbbsins.
![](http://trendnet.is/wp-content/uploads/elisabetgunnars/2023/03/alba.jpg)
![](http://trendnet.is/wp-content/uploads/elisabetgunnars/2023/03/thumbnail.jpeg)
![](http://trendnet.is/wp-content/uploads/elisabetgunnars/2023/03/332901150_1079866759618940_8032971114111264957_n.jpg)
Meira: HÉR
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg