Talandi um notalega náttsloppa þá var einn á listanum sem ég tók saman fyrir helgi sem ég féll sérstaklega fyrir. Um er að ræða slopp úr samstarfslínu Emilia Ilke fyrir Lindex, í línunni finnum við fallegar flíkur á fullorðna jafnt sem börn.
Emilia Ilke er sænskur listamaður sem er hvað þekktust fyrir sína handskornu fígúrur, lífleg form og mjúka liti. Með sínum skapandi verkum breytir hún hversdagslegum hlutum í litlar sögur sem gefa okkur innsýn í einstakan og listrænan heim. Ljósir tónar tala til mín en svo var G. Manuel sætur í dökkbláu í stíl við mömmu sína um helgina. Þó fötin séu vissulega seld sem náttföt þá finnst mér þau ganga sem fínustu hversdagsklæði. Við mæðginin vorum ekkert að flækja þetta á sunnudegi og klæddumst “náttfötum” allan daginn.
Velkomin í heimsókn –
Sloppur úr þessu þykka gæðaefni (100% lífrænn bómull) sem hélt vel utan um mig í óveðrinu
Litla barnið mitt, ekki svo lítill lengur
Náttfötin sem G.Manuel klæðist fást einnig í fullorðinsstærðum
Mamma & Manu í stíl, elska svoleiðis
Vörurnar í samstarfslínunni eru framleiddar úr lífrænum trefjum og uppfylla GOTS skilyrði fyrir félags- og umhverfisleg viðmið í gegnum öll stig framleiðslunnar. Vottað af Alþjóðavinnumálastofnuninni.
Notalegur janúar, já takk.
xx,-EG-.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg