fbpx

DRESS: HÆ HAUST

DRESSLÍFIÐ

English Version Below

14608143_10154103509687568_1188309076_n

Ég var á Trendnet Snapchattinu í dag: @trendnetis fyrir ykkur sem eigið eftir að bæta okkur við.

Þetta var kaldasti sænski morguninn hingað til. 4° klukkan 08:00 sönnuðu það. Svo hækkaði nú aðeins hitinn, sem betur fer.
Ég hef beðið svo spennt eftir þessum fallega árstíma og er því nokkuð glöð yfir kólnandi veðurfari – maður klæðir sig bara betur fyrir vikið. Þið eruð eflaust farin að átta ykkur á því á Íslandi þar sem haustið kom aðeins fyrr.

14593193_10154103508542568_61525723_n

Útsýnið var fallegt á leiðinni á leik hjá mínum manni fyrr í kvöld. Næstu daga verður það svo enn fallegra og litríkara þegar gulu og rauðu laufblöðin láta sjá sig og falla.

Á ferðinni, í nýrri peysu sem keypt var í dag.

14569792_10154103508527568_2035041776_n

 

Húfa: Lindex
Buxur: AndreA Boutiqe
Peysa: H&M Trend (þar leynast mjög oft gersemar)

Þetta hefur verið langur en nokkuð góður dagur sem ég enda hér við tölvuna. Nú er það koddinn sem kallar ….
Takk fyrir daginn þið sem fylgduð mér frá því í morgun. Snapchat er skemmtilegur miðill og Trendnet á þar góða vini.

//

The fall is coming here in Sweden. Early morning with 4°c was refreshing.
I had the Trendnet snapchat (@trendnetis) today so you can have a look at my “today” there.

Fall is one of my favorite time of the year. The colors are so beautiful and you can start wearing layers. On the picture you can see me wearing new sweater from H&M trend which I bought it today.

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&

Trendnet á Facebook – HÉR

ADIDAS ER INN

Skrifa Innlegg