fbpx

DRESS: BAG & BARN

DRESS

 

English Version Below

Myndirnar að neðan fönguðu stöðuna þegar ég hljóp á milli húsa í gær (þau voru ekki öll gul eins og þessi fyrir aftan mig haha)
Fylgihlutirnir eru í fleirtölu alla daga þegar ég burðast með barnið á annarri og veskið í hinni. Ég er að safna í kúlu á upphandlegginn því barnið ber sín kíló og yfirleitt er veskið stútfullt af “nauðsynjum”.
Það eru aðrir tímar í dag en var. Ég nota enga sérstaka skiptitösku heldur vel mér frekar veski í stærra lagi sem gefur pláss fyrir bleiur og aukahluti fyrir barnið. Þessi er ný skvísutaska úr ekta rúskini frá Lindex. Í þessum lágvöru tískukeðjum má einnig finna betri gæði inná milli en verðið var líka aðeins hærra fyrir vikið.

14509146_10154089818417568_1149233530_n 14518660_10154089817722568_1778897866_n

Blazer: SamsoeSamsoe/Vintage
Buxur: H&M gamlar
Skór: Gardenia/GS skór
Veski: Lindex

//

My daily accessories these days, baby in one hand and handbag in the other. I am working my biceps all day long with my big boy.
The inside of my bag has also changed. I don’t have any special diaper bag so I choose bigger bags so all the necessary stuff fits in. This one is new from Lindex.

 

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&

Trendnet á Facebook – HÉR

BLEIKA SLAUFAN #FYRIRMÖMMU

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. sigridurr

    30. September 2016

    Svo fín bæði tvö! x

  2. Svart á Hvítu

    1. October 2016

    Ofurmömmuskvís á ferð, ekki verra að fá svona fína upphandleggsvöðva haha;)

  3. Andrea

    1. October 2016

    Flottir fylgihlutir & mamman….. fjúttfjú