Mér var boðið í dásamlega fallegan dinner með frönskum vinkonum á dögunum, þær sem umræðir koma frá Chanel í París og voru að heimsækja Reykjavík í fyrsta sinn. Ég fyllist alltaf svo miklu stolti af Íslandi þegar útlendingar mæta hingað í góða heimsókn.
Kvöldverðurinn fór fram í gullfallegri svítu á Edition þar sem allt var til fyrirmyndar. Boðsgestirnir voru fáir en góðir, í anda þess sem var og mátti á þeim tíma.
Undurfagri dinner
Góða gengi
je t’aime
Þegar þið finnið þessa í hinu svokallaða hamingjukasti
Morguninn eftir fengum við Sigríðurr kynningu á nýjung sem nú má loksins segja frá. CHANEL N°1 er ný förðunarlína frá París – sjálfbær fegurðarlína sem virkar á fyrsta stig öldrunar húðarinnar og kemur í veg fyrir og leiðréttir útlit 5 öldrunareinkenna. Í hjarta línunnar er rauð kamellía, blóm með endurlífgandi eiginleika, þar sem óvenjuleg orka gefur því ævarandi æsku.
Umbúðirnar eru nostalgía – vintage vibe sem ég elska
Kamellía fegurð
LESIÐ LÍKA: HÁTÍÐARFÖRÐUN MEÐ CHANEL
Takk fyrir mig Chanel, viðeigandi að skrifa þessa færslu og færa ykkur loksins þessar nýju fregnir, þegar ég er stödd í París.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg