Hvað var ég að brasa í sóttkví? Ég var að græja elsku B4, íslensku íbúðina okkar í gamla Vesturbænum sem nú er farin á sölu. Þetta er fyrsta eign okkar fjölskyldunnar og því eru það blendnar tilfinningar að deila þessum fréttum með ykkur. Kannski er ég bara ekkert tilbúin að kveðja þennan skandinavíska draum? Björt og falleg íbúð, á besta stað (ef þið spyrjið mig) sem bíður upp á svo marga möguleika.
Þið getið kíkt í heimsókn á morgun þegar það verður opið hús, bókið tíma hjá yndislegu Erlu, HÉR
Um er að ræða bjarta og rúmgóða 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð í fallegu húsi við Brávallagötu í Vesturbæ Reykjavíkur. Sjarmerandi eign með aukinni lofthæð, loftlistum og stórum gluggum. Húsið hefur verið mikið endurbætt á árinu og má þar nefna múrviðgerðir, málun og skipti á öllum gluggum. Frábær staðsetning í fallegri götu – göngufæri við miðbæinn, stutt í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.
Myndir: Gunnar Sverrisson
Þegar þetta er skrifað, sit ég hér –
Bæ B4 (sagt með kökk í hálsinum) – get lofað góðu lífi hér.
Skoðið endilega highlights á Instagram hjá mér af td portinu sem býr yfir miklum sjarma, en líka af mér að þrífa, gera og græja í síðustu viku ;) hihi … Highlights HÉR
BRÁVALLAGATA 4, TIL SÖLU HÉR FYRIR ÁHUGASAMA
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg