Færslan er unnin í samstarfi við Baum und Pfergarden á Íslandi
Það var svo gaman hvað þið voruð spennt fyrir heimsókn minni í sýningarherbergi Baum und pfergarden í Kaupmannahöfn í síðustu viku. Ég elska að heimsækja og skoða fallegar flíkur í beinni og það er ennþá skemmtilegra þegar þið takið svona virkan þátt með því að senda mér línur á IG á meðan dvöl minni stendur. Fyrir ykkur sem misstuð af mér máta þá getið þið fundið heimsóknina í highlights HÉR …
Cindarella story?
Þetta var mín fyrsta heimsókn í sýningarherbergi Baum í Kaupmannahöfn og tímasetningin var einstaklega skemmtileg, daginn eftir frumsýningu fatanna á CPHFW. Ég hafði setið og séð fyrirsætur ganga tískupallana í sömu fötum daginn áður og fékk svo að máta mínar uppáhalds flíkur strax í kjölfarið. Svo er það alltaf þessi blessaða bið …. allar flíkurnar hér að neðan eru að koma í sölu í haust, ágúst – október. Ég hlakka svo til!
Þetta bláa sett greip augu mín strax ..
Vesti í öllum gerðum og litum ..
Þessi yfirhöfn er mjög mikið Baum und Pfergarden ..
.. og það er til hattur í stíl. Langar!
Æi þessi drauma kjóll, sjáið hann líka í bláum lit neðar í póstinum ..
Þetta sett er efst á óskalista undiritaðrar, kemur líka í svörtu ..
Hnepptar peysur í miklu úrvali ..
Þessi blái kjóll var vinsæll af Instagram fylgjendum mínum, kemur líka í hlébarðamunstri ..
Okkur yrði ekki kalt í þessari ..
Þetta vesti kemur líka sem úlpa en ég heillaðist sjálf af ermalausa lúkkinu, myndi klæðast því yfir létta jakka ..
Þessi gallaskokkur!!
Baumf und pfergarden á Íslandi er staðsett á Garðartorgi og ég hef reynt að heimsækja verslunina reglulega þegar ég er heima. Hér í DK finn ég merkið til sölu í fallegustu tískuvöruverslunum og það verður alltaf betra eftir árunum sem líða.
Í færslunni finnið þið aðeins brotabrot af því sem koma skal og ég skal minna ykkur á þegar þetta fer í sölu .. ætli ég verði ekki fremst í röð, jafn spennt og ég var í þessari heimsókn.
Takk fyrir mig Baum und Pfergarden, miikið hlakka ég til haustsins!
xx,-EG-.
@elgunnars á Instagram
@Baum und Pfergarden Ísland á Instagram
Skrifa Innlegg