fbpx

BARCELONA BEIBÍ

LÍFIÐ

Margir vilja meina að það sé fyrir löngu kominn tími á myndablogg frá Barcelona. Ég er þar alveg sammála en raunin er bara sú að ég hefði mátt vera miklu duglegri á vélinni. Ferðin var að mestu ætluð í afslöppun og við stóðum við þau orðin með því að halda okkur mikið á (fullkomna) sundlaugarbakkanum. Við vorum þó ekki bara á bakkanum, þvi við hjóluðum líka um alla borg, tókum bíl í sólahring þar sem við leituðum uppi leynistrandir, skoðuðum helstu túristastaði, kíktum smá í búðir og fylgdumst með iðandi mannlífinu. Þegar ég hugsa til baka … æ hvað við höfðum það gott! Þetta eru þær myndir sem rötuðu í fjölskyldualbúmið –

Barcelona bíður uppá eitthvað fyrir alla. Ég heillaðist af fallegum byggingum borgarinnar og fjölbreytta mannlífinu. Ég mæli með því að taka hjól í borgarferðum því þannig nærðu að upplifa meira á styttri tíma.

Takk fyrir okkur. Ég kem aftur einn daginn, engin spurning.

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR

CARIN WESTER SLIPPERS

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

7 Skilaboð

  1. Fatou

    28. August 2015

    Æðisleg borg og við förum klárlega að þínum ráðleggingum næst og verðum hjólandi :)

    • Elísabet Gunnars

      28. August 2015

      Þá verður litli prins orðinn stærri og því auðveldara að taka því ráði :)

  2. Ísabella

    28. August 2015

    Hvaða myndavél ertu að nota? :)

    • Elísabet Gunnars

      29. August 2015

      Ég nota símann og myndavélina til skiptis. Fujifilm x100s hefur nýst mér vel :)

  3. Anna Guðmundsdóttir

    28. August 2015

    sæl, getur þú mælt með veitingahúsi í Barselona ed maður vill gera vel við sig?

  4. Anna Guðmundsdöttir

    31. August 2015

    Takk fyrir :)