Æ hvað við GM áttum ljúfan laugardag á flakki um sólríku ísköldu Reykjavík. Það var jólastemning á Grandanum þar sem við borðuðum brunch á Coocoo’s Nest og röltum svo í Kalda sem nú selur notaðar hönnunarflíkur meðhliða fallegum skóm, mæli með heimsókn.
Kápan mín er frá danska merkinu Meotine / fékk margar fyrirspurnir um hana á IG
Það er svo næs á Grandanum og stopp dagsins að þessu sinni voru ..
Og þaðan fórum við í heimsókn í Hörpu.
Listval hefur opnað í Hörpu og ég er svo stolt af vinkonu minni Elísabetu Ölmu sem blómstrar með litla fyrirtækið sitt sem stækkar svo hratt og örugglega, enda frábært concept. Íslensk list í jólapakkann?
Í Hörpu finnið þið meira íslenskt því þar hefur Rammagerðin opnað nýja verslun með sitt mikla og góða úrval. Æ ég elska þetta hús.
LESIÐ LÍKA: STÚLKAN SEM STARIR Á HAFIÐ
Yndislega Aðventa.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg